Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Lektor segir RÚV sýna hlutdrægni í fréttaflutningi um Gaza

Gagnrýnir RÚV fyrir að hunsa umfjöllun New York Times um kynferðis­ofbeldi á hendur palestínskum föngum

Ingólfur Gíslason
Ingólfur Gíslason Ingólfur hjólar í RÚV Mynd: Háskóli Íslands

Ingólfur Gíslason, lektor við Háskóli Íslands, gagnrýnir frétta­stofu RÚV harðlega í pistli sem birtist á Vísi. Þar sakar hann ríkis­miðilinn um einhliða og valkvæða umfjöllun um átökin í Palestínu og Ísrael.

Tilefni pistilsins er grein sem birtist í The New York Times 11. maí um kynferðis­ofbeldi sem palestínskir fangar hafa orðið fyrir af hálfu ísraelskra fanga­varða, hermanna og yfirheyrslu­aðila.

Ingólfur bendir á að blaðið sé almennt talið hliðhollt Ísrael og því hafi umfjöllunin vakið sérstaka athygli. Hann segir ísraelsk stjórn­völd hafa brugðist harkalega við greininni og meðal annars fordæmt hana opinber­lega.

Í pistlinum segir Ingólfur að ekkert hafi komið fram í greininni sem ekki hafi áður birst í skýrslum palestínskra, ísraelskra og alþjóðlegra mann­réttinda­samtaka, auk stofnana Sameinuðu þjóðirnar.

Hann gagnrýnir jafnframt að frétta­stofa RÚV hafi ekki fjallað um greinina eða nýlegar skýrslur mann­réttinda­samtaka um meint kynferðis­ofbeldi í ísraelskum fangelsum. Þar nefnir hann sérstak­lega skýrslu ísraelsku mann­réttinda­samtakanna B'Tselem sem kom út í janúar og ber heitið Living Hell: The Israeli Prison System as a Network of Torture Camps.

Samkvæmt Ingólfi eru nú taldir vera á milli níu og tíu þúsund Palestínu­menn í ísraelskum fangelsum og fanga­búðum, þar af hundruð barna.

Í pistlinum spyr hann hvers vegna RÚV hafi kosið að fjalla um nýja skýrslu ísraelskra samtaka um meint kynferðis­ofbeldi Hamas árið 2023 en ekki umfjöllun New York Times eða skýrslur gamal­gróinna mann­réttinda­samtaka.

„Ég á bágt með að sjá þann trúverðug­leika eða óhlutdrægni þegar frétta­stofan velur með þessum hætti að vekja athygli á ótraustri heimild um hvað gerðist á einum degi fyrir meira en tveimur árum en hunsar traustar heimildir um ofbeldi á miklu stærri skala sem á sér enn þá stað nákvæmlega núna,“ skrifar Ingólfur meðal annars.

Hann tekur einnig undir gagnrýni sem birtist nýlega á Vísi þar sem því var haldið fram að íslenskir fjöl­miðlar endur­ómuðu áróður ísraelskra stjórn­valda án nægrar gagnrýni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Hvetur fólk til að eiga reiðufé.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto