Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Skúli fór á hausinn með látum: „Þetta er ákaflega sársaukafullur lærdómur“

Flugfélag athafna- og ævintýra­mannsins Skúla Mogensen, WOW Air, fór á hausinn með látum í mars mánuði árið 2019. Þá hafði félagið háð langvinnt dauða­stríð fyrir opnum tjöldum og reynt ýmsar leiðir til bjargar.

Eftir mik­inn upp­gang árum saman lenti íslenska lág­far­gjald­ar­flug­fé­lagið hans Skúla í veru­legum vand­ræð­um. Innan við hálfu ári fyrir endanlegt fall WOW Air réðist félagið í skuldabréfa­útboð þar sem 50 milljónir dala söfnuðust. Þær dugðu þó skammt.

Þá voru gerðar tilraunir til að renna félaginu undir Icelandir en þær viðræður sigldu í strand. Íslenska ríkið taldi sig heldur ekki hafa neinar for­sendur til að ganga inn í rekstur WOW air. Og að morgni 28. mars 2019 fór félagið í þrot.

Skúli ætl­aði sér stóra hluti með WOW Air en end­aði í risa­stóru gjald­þroti.

Svakalegt tap

WOW air óx mjög hratt á skömmum tíma og átti ekki sjóðs­stöðu til að takast á við þær sveiflur sem félagið lenti í. Flug­félagið hans Skúla tap­aði 2,4 millj­örðum króna á árinu 2017 og um mitt ár 2018 átti fyr­ir­tækið of lítið eigið fé til að takast á við þá stöðu sem var uppi.

Fjöl­miðlar birtu gögn um veru­lega dapra fjár­hags­stöðu WOW air haustið 2018 og virtist félagið þá í líf­róðri. Þrátt fyrir margra mán­aða leit og ótelj­andi fundi með fjár­festum fékkst eng­inn til að leggja WOW air til það fé sem vant­aði upp á. Á end­anum voru það leigu­salar WOW air sem kyrr­settu vélar félags­ins sem leiddu til þess að það fór í þrot.

Blikur voru á lofti á þónokkurn tíma áður en WOW féll og varð margra milljarða tapa á rekstri flugfélagsin undir það síðasta.

Hópuppsagnir

„Þetta er ákaflega sársauka­fullur lærdómur,“ sagði Skúlí í bréfi til starfs­fólks á aðventunni árið 2018. Þann 13. desember var hundrað og ellefu fastráðnum starfs­mönnum félagsins sagt upp. Uppsagnirnar voru þvert á deildir og svið félagsins. Á sama tíma lá fyrir að miklar breytingar yrðu gerðar á leiða­kerfi félagsins og var til dæmis nýtilkynntu flugi til Nýju-Delí blásið af. Einnig var hætt við flug til ýmissa áfanga­staða vestanhafs, þar á meðal Los Angeles og Chicago. Fjöldi hluta­starfsmanna og verktaka var einnig tekinn af launaskrá á sama tíma og var heildar­fjöldi uppsagna 237. Í bréfi til starfs­manna sagðist Skúli vera algjör­lega miður sín.

Daginn eftir hópuppsagnirnar sendir WOW frá sér tilkynningu þar sem fram kom að bandaríska fjár­festinga­félagið Indigo Partners myndi fjárfesta í flug­félaginu. Fjár­festingin átti að geta numið allt að 75 milljónum Bandaríkja­dala, sem samsvaraði nærri 9,3 milljörðum íslenskra króna.

Þetta gekk ekki eftir og síðla mars 2019 tilkynnti WOW að viðræðum þess við bandaríska fjár­festinga­félagið hafi verið slitið Á sama tíma samþykkti stjórn Icelandair að hefja viðræður um aðkomu að rekstri WOW. Þær viðræður runnu einnig út í sandinn þar sem slæm fjárhags­staða WOW kom í veg fyrir að forsvars­menn Icelandair treysti sér til að halda áfram.

Vildi ríkisábyrgð

Um miðjan febrúar 2019 bað Skúli um frest fram í miðjan mars 2019 til að gera upp ógreidd lendinga- og farþega­gjöld á erlendum flug­völlum. Skömmu síðar óskaði hann eftir því að íslensk stjórn­völd veittu félaginu ríkis­ábyrgð á lána­fyrir­greiðslu frá Arion banka til þess að tryggja rekstur félagsins til skemmri tíma. Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra, sagði það af og frá og að það væri ekki hlutverk ríkisins að koma fyrir­tækjum til hjálpar vegna rekstrar­vanda.

Aðeins tveimur dögum fyrir fall WOW, þann 26. mars 2019, samþykktu kröfu­hafar félagsins að breyta skulda­bréfum sínum í hlutafé og hófust á sama tíma viðræður við fjárfesta um mögulega aðkomu að rekstri félagsins. Aðeins tveimur dögum síðar var allt flug WOW til og frá landinu stöðvað. Farþegar WOW sem áttu bókað flug með félaginu voru því strandaðir og var ekki ljóst hvenær næstu flug WOW færu í loftið, ef þau myndu gera það yfir höfuð. Tveimur klukku­tímum eftir að þetta var tilkynnt lá fyrir að WOW Air var farið á hausinn.

Icelandair flaug um 7.500 stranda­glópum WOW til síns heima í kjölfar gjald­þrots WOW. Áhafnar­meðlimir sem strandaðir voru víða voru um hundrað talsins og var þeim flogið heim þeim að kostnaðar­lausu. Í kjölfar falls WOW misstu ellefu hundruð einstaklingar vinnuna.

Play verður til

Þúsundir gerðu kröfu í þrotabú flug­félags Skúla Mogensen. Þegar kröfu­lýsinga­skrá var lokað námu kröfur í þrotabúið 128 milljörðum króna og voru 5.964 einstaklingar og lögaðilar sem lýstu kröfu í búið.

Hópur fjárfesta og tveir fyrr­verandi stjórn­endur hjá WOW hófu vinnu við stofnun nýs íslensks lággjalda­flugfélags á grunni WOW Air. Síðla árs 2019 var svo flug­félagið Play Air kynnt til leiks.

Þá keypti bandaríska fyrir­tækið Oasis Aviation Group allar rekstrar­tengdar eignir úr þrotabúi WOW Air. Eigandi fyrir­tækisins, Michelle Ballarin, er bandarísk athafna­kona og á sér skraut­lega sögu.

Í dag eru því tæp fjögur ár liðin frá falli WOW Air og hafði fall félagsins mikil áhrif á atvinnu- og efnahagslíf á Íslandi. Skúli Mogenssen hefur hins vegar ekki setið aðgerðar­laus og hefur hann meðal annars opnað sælustað í Hvammsvík í Hvalfirði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning