Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

„Það eru fleiri leikendur í þessu viðbjóðslega máli en þær“

Sólveig Anna Jóns­dóttir, formaður Eflingar, birtir á Facebook  skjal sem hún segir varpa nýju ljósi á innbrot á tölvu­póstfangi hennar sem hún segir forvera sinn hafa staðið að. Hún segir það innbrot hafa verið framið í pólitískum tilgangi og sýni vel að andstæðingar hennar svífist einskis. Hér fyrir neðan má lesa pistil hennar um málið og sjá téð skjal.

Hér má sjá mynd af skjali sem að mér var afhent 12. nóvember 2021 af Agnieszku Ewu Ziolkowska, þá formanni Eflingar og Ólöfu Helgu Adolfs­dóttur, þá vara­formanni Eflingar. Skjalið er útbúið af lögmanni þeirra tveggja og eins þið sjáið undir­ritað af Agnieszku og Ólöfu.

Í skjalinu kemur m.a. þetta fram:

Ég á að veita Agnieszku Ewu allar upplýsingar og gögn sem telja má rétt og skylt að forysta félagsins hafi, svo og þær upplýsingar og gögn sem að nýr formaður Eflingar óskar eftir, svo fremi það sé mögulegt og við hæfi.

Ég á að gera nýjum formanni grein fyrir öllum þeim ráðum, nefndum og stjórnum sem að ég hef verið skipuð í fyrir hönd Eflingar.

Ég á að vera nýjum formanni til ráðgjafar, ef þurfa þykir, varðandi mál sem eru í gangi í því skyni að þekking innan skrif­stofunnar og félagsins haldist og upplýsingar glatist ekki.

Ég á að veita stjórn­endum og stjórn Eflingar umbeðna ráðgjöf og upplýsingar er varða mál sem eru í gangi.

Einnig kemur þetta fram:

Ég á að skila lyklum og öðru sem eðlilegt er að skilað verði við mótttöku bréfsins. Ég fæ að eignast þá tölvu sem að ég hafði notað við störf mín að því skilyrði uppfylltu að ég afhendi fyrst tölvuna til tölvu­sérfræðings Eflingar svo að unnt sé að aftengja tölvuna neti Eflingar. Öll rafræn starfs­tengd gögn ber að afhenda á USB lykli til Eflingar. Frumgögn pappíra skal einnig afhenda.

Einnig kemur þetta fram:

Öllum aðgangi að Eflingu, þ.m.t aðgangi að Office365 og Eflingar netfangi mínu verður lokað.

Ég meðtók þetta skjal og gerði allt sem að mér bar að gera samkvæmt því. Ég skilaði USB lykli með gögnum sem ég hafði vistað á tölvunni. Ég skilaði frum­gögnum pappíra sem að ég hafði. Ég gerði grein fyrir öllum þeim ráðum o.s.frv. sem að ég hafi setið í vegna formennsku í Eflingu. Og ég fór til tölvu­sérfræðings Eflingar svo að hann gæti aftengt tölvuna af neti Eflingar, lokað öllum aðgangi sem að ég hafði sem formaður félagsins og launaður starfs­maður, og gæti lokað Eflingar-netfangi því sem að ég hafði notað, [email protected]

Mér datt ekki til hugar að reyna að koma mér undan neinu af því sem að upp var talið. Og mér datt ekki til hugar að þær sem að undir­rituðu skjalið sem formaður og vara­formaður Eflingar myndu sjálfar virða það sem að þeim snéri að vettugi. En það gerðu þær að því sem næst öllu leiti, að því frátöldu að mér voru sannarlega greidd laun á uppsagnar­fresti.

Staðreyndin er sú að Agnieszka Ewa eða Ólöf Helga höfðu aldrei samband við mig til að afla upplýsinga eða gagna um eitt eða neitt. Þær höfðu aldrei samband til að fá ráðgjöf eða upplýsingar varðandi mál sem voru í gangi á vettvangi félagsins.

Ekki í eitt einasta skipti.

Ástæðan fyrir því að þær létu brjótast inn í póst­hólfið [email protected] var ekki vegna þess að ég hafi ekki veitt upplýsingar eða að þær yrðu að hjálpa félags­manni í vandræðum eða finna lykil­upplýsingar um kjara­samninga eða önnur mikilvæg plögg. Nei, ástæðan er eins augljós og hugsast getur. Svo augljós að engin manneskja komin til vits og ára getur litið fram hjá henni:

Agnieszka Ewa og Ólöf Helga brutust inn í póst­hólfið [email protected] til að stunda njósnir í pólitískum tilgangi. En það er almennt talið gróft brot, ekki aðeins í skilningi laganna, heldur ekki síður þegar kemur að þeim grund­vallar leik­reglum lýðræðisins sem að okkur hefur verið kennt að virða og starfa eftir. Frá 12. janúar 2022 höfðu þær óheftan aðgang að öllum póstum sem að ég hafði móttekið og sent frá því 26. apríl 2018. Ekki var lokað fyrir aðganginn þegar að ég tilkynnti þann 28. jánúar síðastliðinn að ég gæfi kost á mér í kosningum um forystu í Eflingu, en þar var Ólöf Helga einnig í framboði. Ekki var lokað fyrir aðganginn þegar að ég og félagar mínir á Baráttu­listanum unnum svo lýðsræðislegar kosningar í félaginu 15. febrúar. Þær létu ekki loka fyrir aðganginn fyrr en 5 dögum eftir að aðal­fundur félagsins hafði verið haldinn og ég var tekin við sem formaður, eða þann 13. apríl.

Það eru fleiri leikendur í þessu viðbjóðs­lega máli en þær og ábyrgð þeirra er mikil. En ábyrgð, og skömm, þessara tveggja kvenna er auðvitað mest. Þær lögðust eins lágt og hægt er að hugsa sér. Þær beittu aðferðum í pólitískum frama­leikjum sínum sem að engin manneskja með lágmarks siðferðis­kennd myndi nokkru sinni nota. Þær grömsuðu og rótuðu, lásu og prentuðu, ekki í einn eða tvo daga, heldur í 4 mánuði. Ekki af neinni annari ástæðu en til að reyna að finna eitthvað sem að þær gætu notað gegn mér í pólitískum tilgangi.

Engin umræða fór fram í stjórn félagsins um þessar fyrir­ætlanir Agnieszku og Ólafar Helgu, og stjórn var ekki upplýst þegar að póst­hólfið hafði verið tengt við Outlook-pósthólf starfandi formanns. Hvervegna? Jú, vegna þess að þetta mátti ekki fréttast. Þessu var haldið leyndu, af þeim tveimur og af þeim sem að liðsinntu þeim í þessu ógeðslega njósna-verkefni. Stjórn félagsins var aldrei upplýst og ég var aldrei upplýst.

Agnieszka Ewa og Ólöf Helga hafa sýnt að þær svífast bókstaf­lega einskis. Þær hafa með framferði sínu orðið sjálfum sér til ævarandi skammar. Það hátt setta og máls­metandi fólk innan og utan Alþýðu­sambandsins sem styður framboð Ólafar Helgu hefur með þeim stuðningi orðið sjálfu sér til ævarandi skammar. Ég myndi segja að þau hefðu náð botninum, en því miður held ég að svo sé ekki. Í vissum kreðsum virðist botninn hvergi vera sýnilegur.

Enn á ný sjáum við að orð Styrmis Gunnars­sonar, mannsinns sem sjálfur njósnaði um pólitíska andstæðinga fyrir Morgun­blaðið, Sjálfstæðis­flokkinn og sendiráð Banda­ríkjanna, eru hinn mikli sann­leikur um þjóð­félagið okkar. Það er ömurlegt að þurfa að horfast í augu við það. Ég vona að við komust einhverntímann undan þessari bölvun. Við getum varla þolað lengur að svona sé fyrir okkur komið:

„Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt. Það eru engin prinsipp, það eru engar hugsjónir, það er ekki neitt. Það er bara tækifæris­mennska, valda­barátta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning