Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Logi Geirsson gaf sér mótorhjólaferð í fertugsafmælisgjöf: „Fer alla leið… það er eina leiðin“

Logi Geirsson.
Logi Geirsson.

Logi Eldon Geirsson er afmælis­barn dagsins en hann er fertugur í dag og fagnar því stór­afmæli.

Logi var einn besti hand­knattleiks­maður Íslands áður en hann hætti vegna þrálátra axla­meiðsla en með lands­liðinu vann hann silfur­verðlaun á Ólympíu­leikunum í Pekíng 2008 og brons­verðlaun á Evrópu­mótinu í Austur­ríki 2010. Síðan hann lagði skóna á hilluna hefur hann verið með fjar­þjálfun og einnig komið fram sem handbolta­sérfræðingur í sjón­varpinu.

Mannlíf spurði Loga hvort og þá hvernig hann hyggðist halda upp á stór­afmælið og ekki stóð á svörum:

„Já, gera með glaðan dag með krökkunum mínum tveimur. Fara í óvissu­ferð með þeim sem endar á Hótel Keflavík sem er að mínu mati glæsilegasta hótel landsins. Mæli með því að fólk prófi að heimsækja það þó ekki væri nema prófa að borða þarna.“

Bætti Logi því við að hann hefði gefið sér mótor­hjólaferð í fertugsgjöf. „Ég gaf mér í fertugsafmælis­gjöf að fara á mótor­hjólinu mínu frá Grundar­firði þar sem ég er með sumar­húsið mitt og keyra til Afríku. Árið 2019 prófaði ég að keyra frá Hamburg til Malaga og það er eitthvað það skemmtilegasta sem ég hef gert. Núna lengi ég ferðina, þræði Frakkland og Portúgal og fer alla leið… það er eina leiðin.“

Þetta er ferðin sem Logi fór 2019.

Logi er annars með nóg á prjónunum á næstunni: „Ég er bara á fullu með FjarForm fjar­þjálfun og ég er að vinna í sjón­varpinu bæði með Olísdeildina og svo á Rúv með lands­liðið sem er að hefja undir­búning fyrir heims­meistara­mótið. Það gæti komið medalía núna í janúar. Það er bara spurning um litinn á henni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning