Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Ricky Martin sakaður um heimilisofbeldi og sifjaspell – Segir hugmyndina ógeðslega

Ricky Martin
Ricky Martin

Söngvarinn Ricky Martin hefur verið kærður fyrir heimilis­ofbeldi af ungum frænda sínum í Púertó Ríkó. Frændinn segist hafa átt í ástar­sambandi við Martin um sjö mánaða skeið. Söngvarinn hefur þvertekið fyrir að ásakanirnar séu sannar.

Málið verður tekið fyrir 21. júlí í Púertó Ríkó. Ef Martin verður ákærður fyrir heimilis­ofbeldi gegn skyldmenni gæti hann átt nærri 50 ára fangelsisdóm yfir höfði sér, verði hann fundinn sekur.

Lögmaður Martin, Marty Singer, hefur lýst því yfir að ásakanirnar séu með öllu ósannar. Hann segir Martin aldrei hafa átt í sambandi af þessu tagi með frænda sínum.

„Því miður glímir einstaklingurinn sem kom fram með þessar ásakanir við alvarlegan geðrænan vanda,“ sagði Singer í samtali við miðilinn Deadline.

„Ricky Martin hefur að sjálfsögðu aldrei verið, og myndi aldrei vera, í neinskonar kynferðis­legu eða rómantísku sambandi með frænda sínum. Hugmyndin er ekki aðeins ósönn, heldur er hún ógeðsleg.“

Singer sagði alla vonast til þess að ungi maðurinn fengi þá hjálp sem hann þyrfti. „En mest af öllu hlökkum við til þess að þessu hræðilega máli verði vísað frá, um leið og dómarinn hefur fengið að sjá allar stað­reyndir.“

Frændinn sem um ræðir er 21 árs og fékk nýlega nálgunar­bann á Martin, sem að hans sögn var eftir að sambandi þeirra lauk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Honum er lýst sem ástsælum samstarfsmanni og kærleiksríkum fjölskyldumanni
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt