Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Húðflúrari og BDSM áhugamaður: „Ég hef húðflúrað talsvert af kynfærum kvenna“ EKKI FYRIR VIÐKVÆMA

Boff í öllu sínu veldi.
Boff í öllu sínu veldi. Mynd: Aðsend

Viðtal þetta birtist fyrst 21. mars 2022.

Nýjasti gestur bræðranna Gunnars og Davíðs Wiium er enginn annar en Boff Konkerz. Boff er húðflúr­meistari frá London sem býr yfir mörgum sérkennum og einstæðum hæfi­leikum. Boff er mikill Íslands­vinur enda búinn að venja komu sína til Íslands síðustu ár með mjög reglulegu millibili í þeim tilgangi að húðflúra landann.

Boff Konkerz

„Ég kem úr umhverfi þar sem var mikið pönk rokk og ég einhvernvegin aldrei verið drifin áfram á löngun í mikla peninga eða efni­hyggju almennt. Ég man þegar ég var lítil í Bretlandi, það var mikið atvinnu­leysi á Tatcher árunum og ég man að ég spurði mömmu á hverju þetta atvinnu­lausa fólk lifði eiginlega. Mamma sagði að ríkið gæfi þeim peninga og ég hugsaði engin spurning, það er það sem ég vil gera þegar ég er orðin stór,“ segir Boff er hann ræðir upphafið.

Ekki týpískur húðflúrari

Kúnna­hópurinn hans Boff er frekar sérstakur hvað stíl varðar, Boff nefnilega sérhæfir sig í véllausum húðflúrum. Stílinn sem ber heitið Machine free tattooing eða Stick and poke sem fer þannig fram að hann notar í raun bara sérstakan penna með áföstum nálum sem hann svo notar til að koma blekinu inn undir húð skjólstæðingsins. Allt gert í höndum, ekkert rafmagn eins og helst tíðkast í hefð­bundinni húðflúr­list.

Fallega skeyttur lófi og rúm­lega það.

„Ef þið skoðið mikið af fangelsis húðflúrum sjáið þið að þeir búa til vélar þarna inni úr rafmagns­rakvélum til dæmis. Vanalega þegar talað er um þetta stick and poke tattoo þá tengir fólk það við svona eitthvað hobby sem gert er heima í stofu eða í fangelsum,“ segir Boff við bræðurna.

Hann er með tryggan hóp fasta­kúnna sem koma til hans aftur og aftur með jöfnu millibil. Sjálfur er Boff nánast flúraður um allan líkama, það eina sem vantar upp á er undir iljarnar og höfuð, meira að segja viðkvæmustu staðir Boffs eru flúraðir en það fer hann inn á í viðtalinu. Spurður út hvort höfuðið og andlit séu eftir svarar Boff ákveðin að svo verði ekki. Hann kann vel við þennan kontrast sem myndast í þessu samspili hreins andlits og flúri upp fyrir hálsmál.

Boff í öllu sínu veldi.

„Svolítið eins og í gamalli James Bond mynd þar sem kona var gullhúðuð og dó, það er ekki svoleiðis með húðflúr. Það að húðin geti ekki andað fyrir húðflúrum er bara goðsögn og ekki satt. Mér líkar alls ekki við hugmyndina um að húðflúrari sé ekki þungt húðflúraður sjálfur, mér finnst ekki að maður eigi að gera hluti við fólk sem maður er ekki tilbúin að gera við sjálfan sig,“ segir Boff og heldur áfram: „Ég er húðflúruðar nánanast allsstaðar nema á haus og andliti sem og á iljunum, bókstaf­lega allsstaðar annarsstaðar.“

Er Davíð spyr hann hvort einka­staðirnir séu húðflúraðir segir Boff svo vera en þeir séu þó  enn í vinnslu. „Ég hef húðflúrað talsvert af kynfærum kvenna, það er frekar auðveld.“

Þetta þykir sumum fal­legt.

Bræðurnir spyrja Boff hve langt maður kemst hvað varðar kvenkyns kynfæri og Boff segist í raun getað flúrað eins langt og maður kemst með verkfærin.

Hræðist ekki sársauka

Boff virðist ekki hræðast né forðast sársauka eins og flestir kannski gera í hefð­bundnum skilningi. Hann hefur einnig verið síðustu árin mjög virkur í BDSM senu Lundúna sem og heimsótt viðburði og dýflissur um allan heim. Konan hans Boff er atvinnu Dominatrix eða sársauka­gjafi í London sem þýðir að hún veiti fólki þjónustu sem kannski fólk fær ekkert endilega fullnægt heima hjá sér. Allskonar kink eru í gangi þarna úti og nefnir Boff sem dæmi að kúnni gæti þess vegna pantað tíma eða tvo í svokallaða fóta­dýrkun þar sem fætur eru tilbeiðnir á fjórum. Tám troðið í andlit, tær og fætur sleiktar og nefnir hann að í þessu samhengi geti kynferðisleg spenna orðið þannig að full­næging einfald­lega komi að sjálfu sér óháð ytra áreiti á kynfærum.

Hinsvegar þurfi svo ekkert að vera að athöfnin sé kynferðsleg, hvort sem um er að ræða fóta­dýrkun, flengingar eða hvað eina. Hann talaði meira að segja um viðburð sem hann fór á fyrir nokkru síðan þar sem gengið var hart að fólki með fullu samþykki. Fólki blæddi á gólfið því barsmíð­arnar voru svo miklar og spennan sem myndaðist var ekkert endilega kynferðisleg heldur var líkt og æðra sviði úforíu hefði náðst.

„Þetta með kynörvunina er athyglis­vert, til dæmis þegar ég fór um daginn á viðburð sem heitir Corporal punishment night þar sem fólk var virkilega barið og pínt harkalega, blóð út um allt, mjög harkalegt en það var engin sjáanleg kynörvun á bakvið gjörninginn og engin sjáanleg kynmök eða neitt slíkt en losunin var klárlega eins og svona endorfín losun.“

Boff í góðra vina hópi.

„Atvinnu dominatrix bíður upp á allskonar þjónustu innan BDSM. Stundum er þjónustan einungis á netinu en oftast fara viðskiptin fram í dýflissum viðsvegar í stór­borgum sem hægt er að leiga fyrir BDSM hitting með atvinnu­manneskju. Sumir vilja aðeins láta sparka í punginn á sér, sumir vilja láta stinga sig með nálum, láta binda sig, mögu­leikarnir eru enda­lausir,“ segir Boff spurður út í það hvað felst í því að vera atvinnu dominatrix.

Davíð spyr Boff hvort það séu margar atvinnu dominatrixar á Íslandi. Boff sagði svo ekki vera og svaraði Davið þá að það hlyti þá að vera miklir mögu­leikar til staðar eða „gap in the market“ eins og hann orðaði það.

Krókar komu einnig til tals en hann sagðist kannski ekki vera maðurinn til að ræða þetta í þaula en sagðist þó hafa orðið vitni að svona athöfnum og meira að segja tekið þátt í að útfæra athöfn í eitt skipti. Það sem þarna fer fram er til dæmis að flug­beittum krókum, 6-8 mm þykkum er einfald­lega þrýst í gegnum húð og fólk svo híft upp með talíum. Ýmist á einum krók eða nokkrum, allt eftir reynslu og löngun hvers og eins. Fólk dinglar svo bara þarna í einhvern tíma, oft í þvílíku sælu­ástandi þar til því er svo slakað niður aftur, krókarnir teknir út og sárin saumuð saman. 

Hann segir að þetta hafi verið gert hér á landi en ekki hafi verið margir sem voru tilbúnir í þetta ferli sem var framkvæmt af erlendum sérfræðing í þessum málum. „Suspension eða það sem þið talið um, það að hengja fólk upp í krókum er í raun ekki hluti af kinki. Þetta er svolítið sér á báti þar sem fólk hittist á svona viðburðum og lætur hengja sig eða horfir á fólk hengt upp á krókum. Allskonar, mikið í gegnum húðina á bakinu og þá ýmist með einum krók eða fleirum. Algengt er að krókar séu settir í gegnum húð á baki og kannski öxlum og svo er fólk híft upp með talíu. Fólk virðist upplifa einskonar úforíska eða andlega upplifun en ekki kynferðislga örvun í þessum aðstæðum.“

Gunnar spyr Boff hvort það þurfi að skera húðina svo hægt sé að koma krókunum fyrir. „Nei alls ekki, krókarnir eru flug­beittir, þykkastir geta þeir verið í kringum 6-8 mm, þeir þurfa að vera sterkir svo þeir geti borið líkaman, þeir eru super beittir og málið með húð, það er ekkert mál að skera húð en ómögulegt að rífa hana svo þegar krókarnir eru í gegnum húðina myndi fólk halda að auðvelt væri fyrir krókana að rífa sig lausa en það er ekki séns, gerist aldrei.“

Fatalínan SATANAL

Boff hefur hafið hönnun og fram­leiðslu á eigin fatalínu sem hann kallar SATANAL. Þetta verkefni segir hann að sé ein af þeim mörgu áttum sem sem hann hefur farið í gegnum tíðina án þess að vita né setja neina kröfu á fyrirfram ákveðna útkomu. Hann sé einfald­lega bara komin af stað með þetta og þetta lofi góðu og sé farið að skila sér, fata­línuna má sjá hér. https://www.instagram.com/officialsatanal/

Hann sagði að tískan og tengslin sem húðflúrin hafa við BDSM eða kink heiminn séu talsverð en fljótandi samt sem áður. Flóran sé einfald­lega svo viðamikil því allt er nánast leyfilegt svo lengi sem virðing og mörk séu í hávegum höfð. Hann til dæmis klæðir sig talsvert í kvenn­mannsföt við ýmis tilefni og engin venjuleg kvenn­mannsföt. Við erum að tala um að Boff til að mynda gæti fundið upp á því að klæða sig sem satanísk nunna eða í rautt pils eftir eigin hönnun með mynd af risa­stórri rassa­innstungu (e. butt plug) framan á með öfugum kross í miðri rassa­innstungunni.

Boff í klæðn­aði sem hann bjó til sjálfur. Takið eftir öfuga kross­inum inni í rassainnstung­unni.

Boff nefnilega skilgreinir sig sem satanista þó án þess að tilheyra neinum skipulögðum hóp í þeim efnum. Hann segist ekki vera tilbúinn að tilheyra neinum hóp því þar liggi einmitt kúgunin sem hann upplifi svo oft í kringum skipulögð trúar­brögð eins og kristni, Islam, Búddisma eða Hinduisma, svo eitthvað sé nefnt. Hann vill meina að ef maður les satönsku bíblíuna sem gefin var út árið 1969 af Anton Szandor LaVe komist maður að því að þar liggi einmitt sjálfskærleikurinn því sjálfs­ákvörðunar­rétturinn og sjálfbærnin er færð manninum. Þar er einfaldega enginn guð nema innra með hverjum og einum, mörkin séu þar afstæð og undir hverjum og einum að setja þau, allt sé í raun leyfilegt nema þá að mörk annarra séu brotin.

Sjálfsákvörðunarrétturinn í hávegum hafður í satanisma

„Satanismi fyrir mér er þegar enginn eða ekkert getur sagt þér hver þú ert eða hver þú átt að vera, kynferðis­lega, líkamlega. Það er satanismi. Ég afneita ykkar guð, ég er minn eiginn, ég ákveð hver mín reynsla er en ekki kerfið ykkar,“ segir Boff og bætir við: „Svona í lokin vil ég segja að ef þið hafið áhuga á kynna ykkur satanisma frekar byrjið að lesa satönsku biblíuna eftir Anton LaVe, hún gæti komið ykkur á óvart.“

Þegar hann talar um sjálfákvörðunarrétt hvers og eins yfir eigin líkama, tekur hann það sem gott dæmi þegar fólk ákveður í þessari senu að brenni­merkja sig, þekkt sem „branding“, koma fyrir aðskota­hlutum úr riðfríu járni undir húð sem kallast „Inplantation“, kljúfa tungur, skera til eða fjarlæga eyru, fjarlægja fingur eða einfald­lega skera getnaðar­limi af. Allt eru þetta dæmi um öfgar sem eru fordæmdar og þykir umdeilt en þegar á öllu er á botninn hvolft er þetta sjálfákvörðunarréttur hvers og eins, að gera hvað sem því sýnist við sinn eigin líkama. 

„Mér finnst að fólk eigi bara að leyfa öðrum að vera það sjálft, svo ef fólk vill skera af sér fingur eða kljúfa á sér tunguna, fikta í augn­steinunum á sér eða höggva af sér getnaðrliminn þá bara gangi ykkur vel, þetta er ykkar líkami. Allt svona kynlífs­tengt veistu sjálfur hvort það sé að kveikja í þér. Vandinn með svona trúað lið er að þau eru alltaf að reyna að segja þér hvað þú á að gera, mega og verða. Ég meina gerðu það sem þú vilt, ef þú vilt nota rassa­innstungu þá notaðu rassa­innstungu en ef þú vilt ekkert upp í rassgatið á þér þá bara slepptu því, gerðu það sem vilt.“

Þetta áhuga­verða viðtal við þennan sérstak­lega áhuga­verða mann má hlusta og horfa á hér fyrir neðan í heild sinni. Viðtalið fór fram á ensku.

Instagram­síðu Boffs má sjá hér.

https://www.instagram.com/bofftattoo/

Viðtal þetta er endurbirt en það birtist fyrst 21. mars 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið