Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Hjalti Úrsus beitti klókindum í máli sonar síns: „Þar með held ég að björninn hafi verið unninn“

Hjalti Úrsus.
Hjalti Úrsus. Mynd: Skjáskot úr heimildarmyndinni Fall risans

Hjalti Úrsus talar við Hildi Maríu Sævars­dóttur um mál sonar síns, Árna Gils Hjalta­sonar, sem sat saklaus í fangelsi á sínum tíma í 277 daga, en hann hafði verið dæmdur í Héraðs­dómi Reykja­víkur til fjögurra ára fangelsis­vistar fyrir tilraun til manndráps árið 2017. Lands­réttur sýknaði svo Árni Gils í fyrra. Árni Gils lést daginn eftir að viðtalið var tekið. Hér er brot úr viðtalinu.

Kærði brotaþola

Hjalti Úrsus segist hafa gert svolítið klókt. „Árni fór niður á lögreglustöð af því að Aron [innsk. blm. maðurinn sem Árni á að hafa ráðist á] var búinn að játa að hann hefði komið með hnífinn; hann hefði bara verið undir svo miklum áhrifum áfengis og eitur­lyfja að hann hefði ekki vitað það. Þá kærðum við Aron fyrir ólöglegan vopnaburð. Við kærðum hann líka fyrir rangar sakar­giftir af því að hann sagði að Árni hefði komið með hnífinn. Við kærðum hann fyrir yfir­hylmingu sönnunar­gagna, því þrjú vitni sáu hann fara með hnífinn í burtu. Þannig að þá var hitt málið nátt­úrlega í gangi og hann var búinn að játa þetta allt fyrir rétti. Þannig að það þurfti ekki að rannsaka þetta. Og þeir rann­sökuðu aldrei þetta mál á móti honum, því þeir vissu að ef þeir myndu gera það þá myndi hitt málið eyði­leggjast. Þannig að lögreglan bara mat það sem svo að ákæru­valdið: Heyrðu, hérna er komin kæra, við skulum aldrei yfirheyra. En það stendur í lögunum að ef þú átt að ákæra mann þá er möguleiki á að kostnaðurinn sé svo mikill og ákæran svo kostnaðarsöm og sé mikill vafi á hvort hann verði sakfelldur, þá getir þú sleppt því að ákæra; ef það er mikill vafi.

En þegar það liggur fyrir játning þá er enginn vafi lengur. Engu að síður var þessu hent út um gluggann. Og þeir dæmdu hann aftur. Og fengu Sebastian Kunz réttar­meina­fræðing, sem er þýsku­mælandi, og málið var flutt og svo var verið að þýða þetta yfir á ensku og íslensku. Það komu þarna kaflar sem engin skildi. Þetta er flókin enska. Það vissi enginn hvað var að gerast.“

Ég fékk pró­fess­ora í íslensku til að lesa þetta og þeir sögðu að þessi texti hafi enga merk­ingu í íslensku og að þetta væri bara þýð­ing­ar­klúður.

Hjalti Úrsus segir að í áliti Kunz hafi sagt að ef Árni hefði staðið fyrir aftan manninn, þá hefði hann staðið eitthvað til hliðar, „eða vinstra megin eða hægra megin til hliðar ef hann stóð fyrir aftan hann. Ég fékk prófessora í íslensku til að lesa þetta og þeir sögðu að textinn hefði enga merkingu í íslensku, þetta væri bara þýðingar­klúður. Og þetta fór inn í réttinn. Þrír íslensku­fræðingar sögðu: „Þetta gengur ekki; annaðhvort er hann fyrir aftan hann eða fyrir framan hann og það þarf að segja frá hvaða horni hann var vinstra megin“.“

Í frétt Vísis kemur fram að þjarmað hafi verið að réttar­meina­fræðingnum við aðal­meðferð í máli Árna Gils og þar segir meðal annars: „Kunz lagði mat á áverka brotaþola en tvær mats­gerðir réttar­meina­fræðingsins eru á meðal þess sem mest er deilt um í málinu. Sú fyrri var ekki talin í samræmi við sakamálalög að mati Lands­réttar þar sem réttar­meina­fræðingnum hafði láðst að boða matsfund og fá þar með gögn og sjónarmið fram frá ákærða og verjanda hans, Oddgeir Einars­syni.“

„Sebastian talaði í um fimm mínútur, en var svo sagt: „ég er ekki að spyrja að því“ (sagði Oddgeir): Ef hann var beint fyrir aftan hann eins og brotaþoli segir hvernig gat hann gert þetta? Svo sagði hann „it’s impossible“. Það er útilokað! Þar með held ég að björninn hafi verið unninn.“

Hjalti Úrsus telur vera mikilvægt að lærdómur verði dreginn af svona mistökum.

Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá