Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

„Nei litla barn, þú mátt ekki hitta mömmu og pabba og þú mátt heldur ekki hitta ömmu og afa“

Sara Pálsdóttir er baráttumanneskja.
Sara Páls­dóttir er bar­áttu­mann­eskja.

Lögmaðurinn Sara Páls­dóttir ritar áhuga­verða grein sem ber yfirskirftina:

Þegar börnum er refsað fyrir veikindi for­eldra – ó­mann­úð­leg og van­virðandi með­ferð barna­verndar á þegnum landsins.

Byrjar svona:

68. gr. Stjórnar­skrár Íslands, nr. 33/1944Stjórnar­skrár Íslands, nr. 33/1944:

„Engan má beita pyndingum né annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu.“

Hún ávarpar þega landsins:

„Kæri Íslend­ingur. Ef þú hélst að pyntingar væru eitthvað sem var eingöngu stundað á miðöldum eða í fangelsum í miðausturlöndum þá skjátlast þér hrapal­lega, því miður. Í dag, í íslensku samfélagi, er verið að pynta fólk og láta fólk sæta ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð, líka ungum saklausum börnum. Í barna­verndar­kerfi Íslendinga er daglega verið að brjóta gegn mann­réttindum og friðhelgi heilu fjöl­skyldna, refsa ungum saklausum börnum með því að slíta öll tengsl þeirra við fjöl­skylduna sína og nærumhverfi, sundra fjöl­skyldum, þvinga aðskilnað milli foreldra og barna þeirra, milli lítilla barna og ömmu þeirra og afa, milli systkina.“

Hún nefnir að „bann við pyntingum og ómannúðlegri meðferð er alþjóð­lega viðurkennt, ófrávíkjanlegt bann sem gildir alls staðar, um alla, óháð aðstæðum. Skilgreining á pyntingum eða ómannúðlegri meðferð felur einnig í sér svokallað falið form pyntingar og ómannúðlegrar meðferðar, þ.e. nauðungar sem veldur alvarlegum sársauka eða þjáningu þess sem fyrir því verður.

Yfirvöld beita stundum földum pyntingum og skýla sér á bakvið göfug markmið, t.d. að slík meðferð sé nauðsynleg til verndar hagsmunum barnanna sem yfirvöld eigi að vera að vernda. Slíkt er blekking sem notuð er til að réttlæta ómannúð­lega meðferð sem er undir algildu, alþjóð­legu banni og telst skv. lögum aldrei réttlætanleg.“

Sara bendir á að „í barna­verndar­kerfi Íslendinga eru einstaklingar og börn á degi hverjum látin sæta pyntingum, ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð. Núna verður þetta rökstutt með vísan til vinnu­bragða barna­verndar og laga. Hvað gerir barna­vernd barni, sem taka þarf að heimili vegna óreglu? Barna­vernd á Íslandi telur sig engar skyldur bera til að leitast eftir því að vista barn innan stór­fjöl­skyldunnar. Þvert á móti, hefur framkvæmdin iðulega verið þannig, að barna­vernd reynir eftir fremsta megni að vista barn utan stór­fjölskyldu, hjá algerlega ótengdum, bláókunnugum fóstur­foreldrum. Oft búa þeir jafnvel í öðrum lands­hluta.“

Hún bendir á að „þegar meðlimir stór­fjölskyldu leitast eftir að fá barnið til sín, t.d. ömmur eða frænkur/frændur eða návinir foreldra, er þeim yfirleitt synjað. Barna­vernd lítur á ,,raskið“ sem fylgir því að slíta öll tengsl barnsins ekki bara við foreldri sitt eða foreldra, heldur líka öll tengsl við ömmur og afa, leik­skólann og starfs­menn þar og önnur börn, vini sína, nærumhverfi og stór­fjölskyldu­meðlimi, sem „óhjákvæmilegt rask“ þegar barn er sett í fóstur. Oft er barna­vernd að taka barn frá foreldri þar sem foreldrið „skortir innsæi í þarfir barnsins“, en á sama tíma sýnir barna­vernd full­kominn skort á innsæi inn í hið sálræna áfall sem slíkt tengslarof og rask veldur litlu barni, sem er plantað á ókunnugt heimili, hjá ókunnugu fólki, í nýjan leikskóla, nýjar reglur og oft án fullnægjandi útskýringa. Og það á afar viðkvæmum tíma fyrir barnið, sem þarf á stór­fjölskyldu sinni að halda meira en nokkru sinni fyrr.

Framkoman sem barnið fær er: „Nei litla barn, þú mátt ekki hitta mömmu og pabba og þú mátt heldur ekki hitta ömmu og afa, ekki frænku, ekki frænda og þú færð heldur aldrei að fara aftur á leik­skólann þinn. Þér er bannað að fara í jólaboð hjá ömmu, þú mátt heldur ekki hitta vini þína lengur. Hér er ný mamma, nýr pabbi, nýtt heimili, nýr leikskóli.“ Framkoman sem foreldrið fær, óháð stöðu þess er: ,,Nei, þú færð aldrei aftur að hitta barnið þitt, nema tvisvar á ári í tvo klukku­tíma í senn, í óboðlegu spes húsnæði þar sem þið eruð lokuð inni og ókunnug manneskja situr yfir ykkur og hefur eftirlit með ykkur allan tímann. Ef svo ótrúlega vill til að þið fáið að fara út í ísbúð eltir ókunnuga manneskjan ykkur þangað. Hlustar á allt sem þið segið og horfið á allt sem þið gerið“. Framkoman sem amma og afi fá: „Nei, þið fáið aldrei að hitta barna­barnið ykkar aftur, nema kannski 20 mínútna símtal, einu sinni á ári.“

Bætir við:

„Flestir, ef ekki allir foreldrar, ömmur og afar myndu frekar kjósa 20 svipuhögg á almanna­færi heldur en svona sálræna og tilfinninga­lega pyntingu sem barna­vernd fremur gegn þeim.

En hvað svo með börnin? Þau hafa ekkert val. Þau gerðu ekkert rangt. Hvers vegna er talið réttlætanlegt að brjóta svona alvarlega gegn þeim? Hvernig getur þetta ekki flokkast sem pyntingar eða í það minnsta ómannúðleg og vanvirðandi meðferð? Telst þetta ekki vera nauðung sem veldur alvarlegum sársauka og þjáningu þess sem fyrir henni verður? Fyrir utan það að barn myndi hreinlega deyja hlýtur þetta að vera það versta og sársauka­fyllsta sem foreldri, sem amma og afi, geta hugsað sér. Og þessir einstaklingar þurfa að upplifa þennan sársauka og þjáningu, út lífið, viðvarandi – í boði yfirvalda.“

Hún bætir því við að „þegar barnið sýnir gríðarleg streitu­einkenni, vanlíðan, kvíða, grátur og niðurbrot í kjölfar þessa tengslarofs, þá er sjálfs­blekkingin svo mikil að vanrækslu hjá „foreldri“ er kennt um líðan þess, en ekkert horft á tengslarofið og algerlega kúvendingu á öllu í þeirra lífi, á öllu því sem skiptir mestu máli í lífi lítils barns, tengslum þeirra við sína nánustu og nærumhverfi. Hversu mikilli sjálfs­blekkingu er hægt að vera í?“ spyr hún:

Heldur áfram:

„Svo gefur barna­vernd sig út fyrir að vinna af heilindum til að tryggja eftir fremsta megni „stöðug­leika“ í lífi barns. Þetta er frasi sem finna má í hverjum einasta úrskurði og greinar­gerð barna­verndar. Á sama tíma og barnavend sjálf fremur mestu og alvarlegustu stöðugleika­röskun gegn þessum börnum og hugsast getur. Barna­vernd er ekki að fara að lögum. Lög og meðalhófs­reglan gera ráð fyrir að ávallt eigi að leitast við að beita úrræðum sem eru sem minnst íþyngjandi fyrir borgarana. Það sem verið er að gera þessum fjöl­skyldum er eins íþyngjandi og hugsast getur. Hvort er meira íþyngjandi fyrir lítið barn, foreldra þess og stór­fjölskyldu, að þegar nauðsynlegt er að taka barn úr umsjá foreldra, sem nánast ávallt er vegna vímuefna­neyslu, að leita allra leiða til að vista barn hjá ömmu/afa, frænku/frænda eða þeim sem nákomnir eru fjöl­skyldunni, leita síðan allra leiða við að tryggja barninu sem mesta umgengni við foreldrið, ef það er unnt, leyfa barninu vera áfram í sama leikskóla, hjá fólki sem það þekkir og treystir, leyfa umgengni á heimili foreldra, eða fara í húsdýra­garðinn, eða heima hjá vistunar­aðila, við mannúðlegar og eðlilegar aðstæður, eða; slíta öll tengsl barnsins við fjöl­skyldu og stór­fjölskyldu, banna alla umgengni barnsins við foreldrið nema tvisvar eða fjórum sinnum á ári, banna barninu alfarið að hitta ömmu sína nema einu sinni á ári undir eftirliti, barnið fær ekki að fara í jólaboð, afmælisboð innan fjöl­skyldu, fær ekki að fara á leik­skólann sinn, fær þess í stað nýja foreldra, nýtt heimili, nýjan leikskóla, jafnvel nýtt sveitar­félag, „nýja ömmu“?

Tengsl barnsins við foreldra, systkini, afa og ömmu og aðra í stór­fjöl­skyldunni eru friðhelg, varin í stjórnar­skrá, mann­réttinda­sáttmála Evrópu og Barna­sáttmála SÞ. Þessi friðhelgi er algerlega virt að vettugi af barna­vernd. Öll gerræðisleg afskipti af einkalífi, fjöl­skyldu eða heimili barns eru bönnuð skv. 16. gr. Barna­sáttmálans. Þarna fellur t.d. leikskóli barns undir og tengsl við stór­fjöl­skylduna.“

Sara spyr hvort það séu það „gerræðisleg afskipti af einkalífi og fjöl­skyldu barns að banna því að hitta mömmu og pabba, sem jafnvel eru löngu orðin edrú, lifa eðlilegu heil­brigðu lífi, í nema 2-4 skipti á ári, í hrörlegu húsnæði á vegum barna­verndar, undir eftirliti eftirlits­manns? Hver vill rökstyðja það, að þetta teljist til mannúðlegrar meðferðar og feli í sér virðingu fyrir friðhelgi fjöl­skyldunnar? Getur umgengni barns í tvö skipti á ári við foreldri, talist fullnægja skilyrðum 3. mgr. 9. gr. Barna­sáttmálans um rétt barnsins til þess að halda persónu­legum tengslum og beinu sambandi við foreldra sína með reglu­bundnum hætti? Hvert barn sem taka þarf af heimili sínu og frá aðalumönnunar­aðila á marg­varinn rétt til að barna­vernd leiti allra leiða til að koma því fyrir innan stór­fjölskyldu.

En barna­vernd gerir þveröfugt. Þess í stað fer barna­vernd í kostnaðar­sama auglýsinga­herferð þar sem auglýst er grimmt eftir nýjum fóstur­foreldrum á sama tíma og ekkert er reynt til að vista börnin innan stór­fjöl­skyldunnar. Hvað er að gerast? Er barna­vernd hafin yfir lög, stjórnar­skrá og mann­réttindi sem gilda fyrir alla í landinu? Hvernig haldið þið að ömmu líði að fá ekki að hitta barnabarn sitt nema einu sinni á ári og þá undir eftirliti? Hvernig haldið þið að litlu barni líði, að fá ekki lengur að hitta ömmu, að fá ekki að hitta mömmu nema fjórum sinnum á ári? Þetta er sársauki og þjáning sem þetta fólk, sem þessi börn þurfa að lifa með dags daglega, út lífið. Af hverju er verið að refsa litlum börnum fyrir veikindi foreldra? Í barna­verndar­kerfi Íslendinga er fólk beitt grimmilegri, ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð og pyntingum, alvarlegum friðhelgis­brotum sem allt felur í sér brot gegn 71. og 68. gr. stjórnar­skrár Íslands, 8. gr. Mann­réttinda­sáttmála Evrópu, 16. gr. Barna­sáttmála Sameinuðu þjóðanna, meðalhófs­reglu stjórn­sýslu og barna­verndar­laga, ofl. Sálrænar pyntingar eru pyntingar, og þær eru miklu verri en líkamlegar. Ég spyr þá sem ábyrgð bera á þessu kerfi, og þá sem hafa völd til að snúa þessu við, ráðherra barnamála, Umboðs­mann Alþingis, úrskurðar­nefnd velferðar­mála, dómstóla, hvað hyggist þið gera?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning