Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Fékk á sig 129 mörk í 16 leikjum: „Ég er mjög æfður og löngu hættur að flækja mig í netinu“

Takið eftir textanum undir myndinni.
Takið eftir text­anum undir mynd­inni. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Huginn Fellum er fornfrægt knattspyrnulið frá Fellabæ á Héraði. Liðið lék mestan part í utan­deildinni fyrir austan en árið 1992 lék Huginn í fjórðu deildinni með skelfi­legum árangri en liðsmenn héldu þó ávalt í húmorinn og nutu sín á vellinum. Liðið samanstóð að mestu af bændum úr Fella­sveitinni og síðhærðum unglings­piltum frá Fellabæ en sennilega var þekktasti leikmaður liðsins hæstaréttar­dómarinn Ólafur Börkur Þorvaldsson en hann þótti afar góður í föstum leik­atriðum.

Hið fagra merki Hugins Fellum

Hinu Fellbæska liði gekk vægast sagt illa í fjórðu deildinni árið 1992 en þegar tvær umferðir voru eftir var liðið með 1 stig og höfðu fengið á sig 129 mörk í 16 leikjum. Pressan tók stór­skemmtilegt viðtal við markmann liðsins, Arnfinn Bragason:

Átta mörk í leik

Mark­vörður sá sem hefur fengið flest mörk á sig á þessu knattspyrnu­tímabili heitir Arnfinnur Bragason og leikur með íþrótta­félaginu Huginn, Fellum, í fjórðu deildinni. Fyrir þá sem ekki þekkja til er Fellabær stað­settur rétt utan við Egils­staði og erki­fjendurnir því Höttur á Egils­stöðum.

Arnfinnur hefur fengið á sig 129 mörk í sextán leikjum eða um átta mörk i leik. PRESSAN hafði samband við mark­vörðinn fima og spurði hann hvernig tílfinning það væri að þurfa sífellt að hirða boltann úr netinu. Arnfinnur kvaðst alls ekki taka það nærri sér þótt boltinn væri oftar fyrir aftan hann í netinu en fyrir framan hann á vellinum. „Ég er mjög æfður og löngu hættur að flækja mig í netinu þegar ég sæki boltann,“ sagði Arnfinnur.

Huginn er nú í neðsta sæti D-riðils í fjórðu deildinni, með eitt stig, en efsta liðið í riðlinum er sem oft áður Höttur, með 42 stig, og ljóst að þeir munu leika til úrslita í deildinni. Stærsta tap Hugins í sumar var gegn Hetti 12:0. Þrátt fyrir það voru þeir Hugins­menn ánægðir með frammistöðuna og þótti það helst til baga í leiknum, að dómarinn hafði dæmt tvö mörk af Hetti vegna rangstöðu. Þrátt fyrir heldur dapurlega stöðu er Arnfinnur hvergi banginn og segir þá félaga stefna beint á toppinn. „Við höfum fimm ára áætlun sem miðar að því að verða á undan Hetti upp í aðra deild. Þeir hafa verið að baksa við þetta í mörg ár, nær alltaf verið í úrslitum en aldrei komist upp.

Í bókinni Íslensk knatt­spyrna 1992 eftir Víði Sigurðsson kemur fram að að markatala liðsins í lok móts hafi verið 8-153 sem þýðir að Huginn fékk á sig 24 mörk til viðbótar í síðustu tveimur leikjunum en stærsta tap þeirra var gegn Huginn Seyðis­firði en sá leikur fór 0-18. Það var Íslandsmet í þó nokkur ár eða þar til lið Skallagríms bætti það. Bjarni Fel, íþrótta­frétta­maðurinn goðsagna­kenndi, hafði einstaka unun af því að lesa upp úrslit leikja Hugins Fellum sem heyrðist vel á glaðhlakkanlegri rödd hans er hann las upp nýjustu úrslitin. Fimm ára takmarkinu náði Huginn Fellum aldrei en liðið æfir enn innandyra á veturnar og keppir á árlegu pollamóti á Akureyri á sumrin, oft með góðum árangri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið