Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

„Aldraðir og heilabilaðir geta ekki látið heyra í sér síðar og munu ekki krefjast sanngirnisbóta“

Ingibjörg Rósa Björnsdóttir.
Ingi­björg Rósa Björns­dóttir.

Ingibjörg Rósa Björns­dóttir, markaðs- og vefstjóri Háskóla­seturs Vestfjarða og dóttir heila­bilaðrar konu, skrifar athygli­verða grein sem ber yfir­skriftina: Heyrir einhver til mín?  sem byrjar á þessum orðum:

„Fyrir ekki svo löngu síðan var ill meðferð á börnum á vöggu­stofum uppúr miðri síðustu öld afhjúpuð í fjöl­miðlum og, eðlilega, krafist rann­sóknar og yfirbóta. Þar áður voru það barna­heimilis­málin alræmdu og þá hefur þjóðin stundum verið á innsoginu yfir fréttum af sláandi atvikum í skólum og leik­skólum landsins, enda krefjumst við þess sem velferðar­þjóð að vel sé komið fram við, og hugsað um börnin okkar því þau geta ekki varið sig eða séð um sig sjálf.

En hvað myndi fólk segja ef það frétti af því að nú, árið 2022, væru börn á stofnunum látin liggja í rúmi í allt upp í klukku­tíma áður en þeim er hjálpað á salerni eða klædd í föt? Eða að börn mæti ítrekað í skólann í óhreinum fötum, gangi jafnvel í sömu fötunum í marga daga, ótannburstuð og ógreidd, með tilheyrandi líkams­lykt?“

Bætir við:

„Hvað finnst ykkur um að barn sem á erfitt með hreyfingar sé látið afskipt á matar­tímum, hipsum haps hvort maturinn er bitaður niður eða barninu hjálpað við að lyfta gaffli eða skeið, og borði því aldrei nægju sína? Hvað með börnin sem eru látin sitja á óþægilegum stól við matar­borðið upp í tvo tíma eftir að borðið er hreinsað, vegna þess að þau komast ekki sjálf frá borðinu? Jafnvel látin dotta þar í dágóða stund, meðan starfs­fólkið situr skammt frá á spjalli eða í símunum sínum?“

Og hún spyr einnig:

„Hafið þið heyrt af börnum sem fá ekki nægilega mikinn vökva og eru því alltaf með þurra, flagnandi húð með tilheyrandi kláða,eða bjúg og almennt slen? Og vissuð þið að ef stofnunin sem hýsir börnin ákveður að skipta um lyf eða aðra meðferð hjá barninu, lætur hún nánustu aðstand­endur ekki nærri alltaf vita, og að starfs­fólk kynnir sér ekki endilega sjúkra­sögu viðkomandi barns og getur því ekki aðlagað umönnun sína að því?

Þannig veit ég um barn sem rifbeins­brotnaði í umsjá stofnunarinnar, en þremur dögum síðar var drifið í sturtu af starfs­manni sem hafði ekki hugmynd um það, sýndi enga aðgætni og ómálga barnið gat ekki látið vita þegar það kenndi til.

Eruð þið ekki orðin hneyksluð? Alveg á innsoginu? Fingurnir titrandi því þið ætlið að henda í einn kjarnyrtan Facebook status og deila þessari grein með frösum eins og „SKYLDULESNING“ eða „HEYR HEYR“?

Breytir það einhverju þótt ég hafi ekki verið að segja aaaalveg satt, þar sem ekki er um börn að ræða heldur gamalt fólk?“

Ingibjörg segir einnig:

„Að öðru leyti er allt hér að ofantöldu dagsatt, og fleiri sláandi sögur til, ég læt bara duga það sem snýr að móður minni sem er bæði öldruð og með heila­bilun. Hún fékk pláss á einu fínasta hjúkrunar­heimili landsins þar sem húsa­kynnin eru hin glæsilegustu og aðstaðan til fyrir­myndar en eitthvað vantar upp á gæða­eftirlitið í starfinu sjálfu. Þar er bæði undir­mannað og mikið róterí á almennu starfs­fólki og þau sem eru ráðin virðast ekki fá mikla þjálfun og sum virðast ekki hafa til að bera það sem þarf til að starfa við umönnun.“

Færir í tal að „það liggur nefnilega ekki vel fyrir öllum og því mikilvægt í ráðningar­ferlinu að sía inn gott fólk með þroska og innsæi sem sýnir af sér umhyggju og sjálf­stæða hugsun. Það þarf einnig að fá almennilega fræðslu og þjálfun um helstu sjúkdóma og einkenni hjá öldruðum og heila­biluðum, hvers sé krafist af þeim og að þau séu ekki yfirkeyrð af vakta­vinnu á svo stuttum tíma og lélegum launum að þau gefist upp eftir örfáar vikur.

Það er nefnilega ekki gott fyrir umhverfi aldraðra og heila­bilaðra að þurfa alltaf að vera að læra ný nöfn og sjá sjaldan kunnugleg andlit. Eins þarf starfs­fólk að fá tíma til að kynnast og læra inn á hvern einstakling. Þetta er fólkið sem við treystum til þess að hugsa um foreldra okkar, afa og ömmur, frænkur og frændur. Það er alveg jafn­mikilvægt að hlúa vel að þeim hópi og börnum, eini munurinn á þeim er sá að aldraðir og heila­bilaðir geta ekki látið heyra í sér síðar meir, þau geta ekki afhjúpað slæma meðferð eftir nokkra áratugi með tilheyrandi fjölmiðla­fári og munu ekki krefjast sanngirnis­bóta.“

Segir að „þau hafa stritað og borgað skatta og gjöld öll sín fullorðinsár, þau treystu því alla ævi að velferðar­samfélagið á Íslandi myndi sinna þeim almennilega á efri árum og að þau fengju mannúð­lega umönnun ef að heilsan bilaði. Þau treystu því að þeim yrði sýnd virðing um leið og þeim yrði þakkað fyrir framlag sitt til samfélagsins, að við sem yngri erum myndum gæta að hag þeirra þegar þau yrðu ófær um það sjálf, að við hin myndum ljá þeim rödd þegar þeirra rödd brysti. Hér er mín rödd, er ég að hrópa úti í auðninni? Heyrir einhver? Getum við virkilega ekki gert betur?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning