Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Þingmaður segir Epstein hafa notað afmæli sín til að misnota stúlkur

Segir að kominn sé tími til að nefna nöfn úr Epstein-skjölunum

Suhas Subramanyam
Suhas Subramanyam Þing­mað­ur­inn heldur áfram að minna á Epstein-skjölin Mynd: KAYLA BARTKOWSKI / GETTY IMAGES VIA AFP

Samkvæmt einum þeirra þingmanna sem þrýsta á um birtingu mynda og skjala úr Epstein-málunum var afmælis­dagur hans lítið annað en enn eitt tilefni til að misnota ungar konur.

Hinn látni barna­níðingur hefði orðið 73 ára í gær, og segir bandaríski þing­maðurinn Suhas Subramanyam, demókrati frá Virginíu og nefndar­maður í eftirlits­nefnd fulltrúa­deildarinnar, í samtali við TMZ að afmælis­dagur Epstein sé „líklega mjög erfiður dagur fyrir margar konur“.

Afmæli Epstein hafa verið í brennidepli í svokölluðum Epstein-skjölum. Þar kemur meðal annars fram að Ghislaine Maxwell hafi sett saman bók í tilefni af 50 ára afmæli hans, með bréfum frá frægum vinum hans, þar á meðal klám­fengið bréf sem á að hafa komið frá Donald Trump, sem hefur neitað því að hafa skrifað það.

Subramanyam hefur áður sagt að tími sé kominn til að „nefna nöfn“ í skjölunum, en hingað til hefur birting gagna verið afar hæg, þrátt fyrir að lögbundinn skila­frestur hafi runnið út fyrir meira en mánuði síðan.

Þing­maðurinn segir skýra ástæðu fyrir áherslunni á afmæli Epstein og bætir við:

„Það er ljóst af sönnunar­gögnum að Epstein notaði afmælis­daginn sinn sem afsökun til að fremja mansal og misnota stúlkur.“

Í þeim hluta Epstein-skjala sem þegar hefur verið birtur eru meðal annars myndir af Epstein ásamt þremur ungum konum þar sem þau fagna 54 ára afmæli hans. Konurnar klæðast allar kjólum með tölunni 54 prentaðri á bakið.

Einnig hafa komið fram myndir af Epstein þar sem hann situr við borð með tveimur öðrum einstaklingum og afmælis­tertu. Hann er í sömu peysu og á myndunum með konunum, en óljóst er hverjir sitja með honum þar sem andlit þeirra hafa verið afmáð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Epstein-skjölin

Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.
Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.

Ísrael hefur nánast útrýmt ævafornum ólífu­trjám Gaza

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku