Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Heimir Guðjónsson talinn líklegastur til að taka við FH: „Svarið við spurningunni er já“

Eins og Mannlíf greindi fyrst allra fjölmiðla frá þá liggur knattspyrnu­þjálfarinn Eiður Smári Guðjohnsen undir grun um að hafa ekið undir áhrifum áfengis í nótt.

Í gærkvöld tapaði FH gegn ÍBV í úrslita­keppni neðri liða efstu deildarinnar í knatt­spyrnu. Ljóst var eftir leikinn að sæti Eiðs Smára var orðið sjóðandi heitt, enda á gamla stór­veldið FH á hættu að falla niður í næstefstu deild og liðið er nýbúið að tapa bikar­úrslitaleik gegn Víkingi; fékk FH liðið reyndar mikið hrós fyrir þann leik; þeir velgdu Íslands­meisturnum úr Fossvogi undir uggum – en allt kom fyrir ekki.

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Mannlífs er það nánast öruggt að Eiður Smári muni þurfa að taka pokann sinn í dag.

Ef svo er, þá telja sömu heimildar­menn Mannlífs einungis tvo leiki vera í stöðunni í Kapla­krika; að ráða Heimi Guðjónsson, sem vann ótal titla með FH bæði sem leikmaður, en þó mest sem þjálfari liðsins, frá árinu 2008 til 2017, og er sem stendur án samnings eftir að hann var látinn fjúka frá Hlíðar­enda í sumar.

Heimir var gestur í hlaðvarps­þættinum Chess After Dark í gær. Áður en fréttir dagsins um Eið Smára birtust; var Heimir einmitt spurður í þættinum hvort það kæmi til greina hjá honum að taka á nýjan leik við starfi þjálfara karlaliðs FH á næstu leiktíð:

„FH gaf mér mjög mikið. Ég var átján ár hjá; félagið gaf mér rosalega mikið. Ég held ég hafi náð að borga það þokkalega til baka. Þegar þú ert í félagi í 18 ár þá eignast þú fullt af vinum og það er geggjað að vera þarna. Margir af þessum mönnum eru enn góðir vinir mínir í dag. Ég fer oft þarna, dóttir mín er að æfa fótbolta í FH. Ég fer oft að spjalla við Vidda Halldórs og þessa kónga sem eru þarna. Svarið við spurningunni er já,“ sagði Heimir.

Hinn kosturinn er sá að aðstoðar­maður Eiðs Smára, Sigurvin Ólafsson, taki við liðinu ásamt Davíð Þór Viðars­syni.

Flestir sem blaða­maður Mannlífs talaði við töldu að Heimir væri mun ákjósanlegri kostur, en að ráðning Siguvins og Davíðs Þórs sé allt eins líkleg; enda er Davíð Þór yfirmaður knattspyrnu­mála í Kapla­krika og hefur mikið að segja um hver taki við af Eiði Smára verði hann rekinn, eins og allt bendir nú til.

Sama hvað verður þá er ljóst að staða FH er afar erfið, og að stjórnin félagsins verður að bregðast fljótt við breyttri stöðu, enda er sæti í efstu deild í húfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning