Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Hjalti Úrsus er mjög ósáttur út í ákæruvaldið: „Bíddu; er Árni rétthentur eða örvhentur?“

Hjalti Úrsus
Hjalti Úrsus Mynd: Skjáskot úr heimildarmyndinni Fall risans

Hjalti Úrsus talar við Hildi Maríu Sævars­dóttur um mál sonar síns, Árna Gils Hjalta­sonar, sem sat saklaus í fangelsi á sínum tíma í 277 daga, en hann hafði verið dæmdur í Héraðs­dómi Reykja­víkur til fjögurra ára fangelsis­vistar fyrir tilraun til manndráps árið 2017. Lands­réttur sýknaði svo Árni Gils í fyrra. Árni Gils lést daginn eftir að viðtalið var tekið. Hér er brot úr viðtalinu.

Passar ekkert saman

Hjalti Úrsus segir að tækni­deild lögreglunnar hafi aldrei farið á vettvang glæpsins eða meints glæps. „Hefðu þeir bara tekið þessa þrjá blóðdropa og séð að þeir voru úr Árna sjálfum, þá hefði verið ólíklegt að hinn hefði orðið fyrir miklum skaða þarna. Hann er stór, hann er 2,05 metrar og sennilega 190 kíló. Rosalega stór og sterkur.“ Þegar Oddgeir lögmaður [innsk. blm. Oddgeir Einarsson var verjandi Árna] sagði að það væru engar blóð­prufur, þá sagði ákæru­valdið að það skipti ekki máli úr hverjum blóðið væri. Ég bara: ha? Skiptir ekki máli? Ákæru­valdið fór í allt of mikinn ham einhvern veginn.“ Tækni­deildin var ekki kölluð til að sögn Hjalta Úrsus og engar ljós­myndir teknar af áverkunum. „Það var ekkert blóð, ekkert DNA, það var ekkert vopn. Þeir náðu að fela það allt. Öll rann­sóknin var í þvílíkum molum. Og svo líka spítalinn. Ég var að djöflast í spítalanum og kona þar, sem sá um samskipti, sagði að í kjölfar þessa máls myndu þau breyta starfs­reglum og ef um væri að ræða ofbeldismál þá yrðu teknar myndir. En þarna voru ekki teknar myndir og þau segja að það verði að taka mynd af svona áverka með kvarða; þá hefðu þeir kannski séð að sárið var eftir skósóla eða ekki hníf. Áverkinn sem hann kom með á spítalann var um fjögurra sentí­metra breiður en dýptin á sárinu var 0,8 milli­metrar, ef hann hefði stungið hann hefði dýptin verið um þrír milli­metrar. Eða fimm milli­metrar. Þetta er svo einfalt; dýptin á sárinu – þetta passar ekkert saman.

Við áfrýjuðum til Hæstaréttar og Hæstiréttur sagði að í fyrsta lagi væri einn dómari og að það þyrfti að hafa fjöl­skipaðan dóm. Svo tóku þeir út smátexta úr dómnum; þar stendur að ákærða hefði mátt vera ljóst með því að slást við brotaþola með svo hættulegu vopni að þá gæti illa farið, hvort sem hann héldi sjálfur á hnífnum eða hann héldi um hníf brotaþola, sem var með hnífinn, og þarna segir bara Hæstiréttur að maðurinn sé ekki að fara í fangelsi ef þið vitið ekki einu sinni hvort það var hann sem hélt á hnífnum eða hinn. Svo segja þeir: Hver er staða brotaþola annars vegar og ákærða hins vegar?

Og svo átti Árni að hafa stungið hann með vinstri. Bíddu; er Árni rétt­hentur eða örvhentur?“

Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá