Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Umræða á villigötum

Hamraendar.
Hamra­endar. Mynd: Aðsend

Grein Mannlífs – Nýjar rann­sóknir blása á full­yrðingar um hættuna vegna framræsts lands.

Þann 29. nóvember skrifaði ritstjórn Mannlífs grein undir heitinu Nýjar rann­sóknir blása á full­yrðingar um hættuna vegna framræsts lands og vitnað þar til skrifa Bænda­blaðsins og umfjöllunar um skýrslu Land­búnaðar­háskóla Íslands, LBHÍ.  „Lang­tímatap kolefnis í framræstu ræktar­landi“ sem stýrt var af Þóroddi Sveins­syni.

Undir­ritaður hefur þegar svarað full­yrðingum sem fram komu í umræddri skýrslu með skrifum í Bænda­blaðið. Skýrslan fær því miður fall­einkunn og það er dapurlegt Land­búnaðar­háskóli Íslands bregðist ekki við þegar Bænda­blaðið og Mannlíf nú birta umfjöllun um skýrsluna – kannski vill skólinn afneita skýrslunni. 

Rannsókna­markmið hópsins hjá LBHÍ voru þrjú: 

  1. Að greina  breyti­leika  í  langtíma  kolefnis­losun  framræsts  lands  eftir  jarðvegs­gerðum. 
  2. Að þróa viðurkennda íslenska losunar­stuðla fyrir framræst ræktar­land. 
  3. Að greina  mögulegan breyti­leika  í  kolefnis­búskap  eftir  öðrum  umhverfis­þáttum og ræktunar­aðferðum. 

Í rannsókn Land­búnaðar­háskólans eru aðeins borin saman tvö svæði innan sama lands­hluta sem hvort um sig eru afar ólík, bæði hvað varðar ræktun sem og land­nýtingu. Ekki er heldur ljóst um hvers­konar votlendis­jarðveg er að ræða sem hefur í upphafi verið ræstur fram, svæðin tvö eru því ósamanburðarhæf. Þetta atriði eitt og sér veldur því að útilokað er að draga einhverjar ályktanir af þessum niður­stöðum sem væri hægt að nýta til að áætla núverandi loftslags­áhrif vegna ræktunar. Til viðbótar reyndist ekki unnt að mæla jarðvegs­þykkt framræsta landsins og einnig kom í ljós að jarðvegur hafði verið fluttur inn á annað rannsókna­svæðið. Niður­stöður rann­sóknarinnar og ályktanir byggðar á þeim eru því vafasamar, í besta falli. 

Í stuttu máli þá nær þessi rannsókn tæplega neinu þriggja megin­markmiða sinna: Hún gefur engar upplýsingar um breyti­leika í langtíma­kolefnis­losun, niður­stöðurnar er ekki hægt að nota til að reikna viðurkennda losunar­stuðla og hún gefur ekki neinar upplýsingar sem má nota til að meta breyti­leika eftir öðrum umhverfis­þáttum. 

Rann­sóknir vegna loftlags­bókhalds.

Votlendis­jarðvegur á Íslandi skiptist í þrjá megin­flokka og hver þessara megin­flokka er mismun­andi að eigin­leikum og ef gera á marktæka rannsókn til að varpa ljósi á þessa eigin­leika, þá verður að miða fjölda sýnatöku­svæða við það, þ.e. sýna­fjöldi þarf að vera í tugum talið úr hverri landgerð. 

Megin­áhersla í rann­sóknum Íslands vegna loftslags­bókhaldsins er á tvær land­gerðir, mólendi og votlendi sem samanlagt þekja tæplega 70% landgerða skv. þeim skilgreiningum sem notaðar eru í loftslags­bókhaldinu. Þessar tvær land­gerðir eru jafnframt ábyrgar fyrir tæplega 85% losunar miðað við stöðuna í dag. Land­gerðin ræktar­land tekur einungis til um 1% af heildar­flatarmáli landgerða sem falla undir land­nýtingar­hluta loftslags­samningsins, þess vegna eru þær rann­sóknir ekki fjár­magnaðar af rannsókna­áætlun loftlags­bókhaldsins. 

Breyti­leiki.

Einstakar mælingar á votlendis­svæðum sýna á köldum rigningar­degi í mesta lagi eins til tveggja tonna losun á hektara og þegar jörð er frosin sýna mælingar enga losun. Á þurrum sólardegi sýna mælingar yfir 100 tonna losun á hektara. Jarðvegur er mjög fjöl­breytilegur og mikilvægt að sá breyti­leiki sé endur­speglaður og að rann­sóknir standi yfir í nokkur ár til að endur­spegla mismun­andi veðurfar.  

Þær rann­sóknir sem nauðsynlegar eru til að meta breyti­leika jarðvegs til notkunar í loftslags­bókhaldi Íslands LULUCF (land­notkun, breytt land­notkun og skógrækt) kallar einfald­lega á stórt sýnaúrtak og gríðar­lega mikla vinnu – hjá því verður ekki komist.

Dr. Árni Bragason, landgræðslu­stjóri

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis