Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Guðrún og PCOS: „Það er ekki í lagi að hunsa heilsu okkar þó við séum ekki í barneignahugleiðingum“

Guðrún Rútsdóttir.
Guðrún Rúts­dóttir.

Hún er afdráttar­laus yfir­skrift greinar sem Guðrún Rúts­dóttir vara­formaður PCOS samtaka Íslands og doktor í prótein­efnafræði ritaði:

„Konur eru ekki bara útungunar­vélar.“

Og hún segir:

„Undan­farin misseri hafa réttindi kvenna yfir eigin líkama verið skert á dramatískan hátt víðsvegar um heiminn. Það kann því að skjóta skökku við að hér ætli ég að kvarta yfir skertum réttindum kvenna á Íslandi. En það ætla ég nú samt að gera.“

Hún bendir á þá staðreynd að „við konur erum nefnilega ekki bara útungunar­vélar og það er ekki í lagi að hunsa heilsu okkar þó við séum ekki í barneigna­hugleiðingum. Við eigum okkur líf bæði fyrir og eftir barn­eignir og sumum hugnast ekki barn­eignir. Það er mikilvægt að það sé hugað að heilsu okkar líka á þeim tímabilum.“

Guðrún segir að „ykkur finnst ég kannski full­dramatísk en hér kemur ástæðan. Ég er með PCOS. PCOS stendur fyrir polycystic ovary syndrome eða fjöl­blöðru­eggjastokka­heilkenni.“

Hún bendir á að „allt að 20% kvenna eru með þetta heilkenni sem hefur áhrif á efna­skipti líkamans, frjósemi og hormóna­kerfið. Heilkennið hefur áhrif á heilsu kvenna á barneignar­aldri. Það er nokkuð vangreint og algengt að það uppgötvist ekki fyrr en upp koma ófrjósemis­vandamál. Þannig var raunin hjá mér og við tóku ár þar sem allt snerist um barn­eignir og frjósemis­meðferðir.“

Hún segir að „það var því kærkomið þegar ég var búin að eignast bæði börnin mín að geta útskrifað sjálfa mig frá PCOS heilkenninu. Ég vissi ekki betur en að PCOS hefði bara áhrif á frjósemi og ekkert væri hægt að gera við þeim einkennum sem ég fyndi fyrir annað en að harka af sér og halda áfram. Það voru klárlega skila­boðin sem ég fékk frá heilbrigðis­geiranum,“ segir hún og bætir við:

„Ég var því í hálfgerðu sjokki þegar ég kom út frá kven­sjúkdóma­lækni 39 ára gömul með þær upplýsingar að ég væri með aukið insúlín­viðnám, beintengt PCOS, sem getur þróast yfir í sykursýki týpu 2. Ég fékk fullt af fínum fróðleik í þessari læknis­heimsókn og fór líka upp úr þessu að bera mig eftir upplýsingum aftur. Ég hafði ekki gert mér neina grein fyrir hvað PCOS var að hafa mikil áhrif á heilsu mína, jafnvel þó ég væri löngu hætt að eiga börn.“

Guðrún hefði óskað þess að hún hefði fengið þessar upplýsingar fyrr:

„Ég vildi óska þess að ég hefði fengið þessar upplýsingar þegar ég var yngri og hélt að PCOS væri bara frjósemis­vandamál sem væri úr sögunni um leið og ég væri búin að eignast börnin mín. Þess vegna kemur hér stuttur listi fyrir þig lesandi góður sem mér finnst mikil­vægur:

Listinn yfir einkenni PCOS er mjög langur. Það hjálpaði mér að lesa hann og sjá að margir heilsufars­legir kvillar sem ég var að harka af mér tengdust PCOS. Það var ákveðin viðurkenning fyrir mig á minni líðan.“

Hún nefnir að „það eru stór­auknar líkur á sykursýki 2 og hjarta- og æðasjúkdómum hjá konum með PCOS, óháð þyngd. Það er mikilvægt að fylgjast með insúlíni og blóðsykri. Konur með PCOS eiga margar erfitt með þyngdar­stjórnun. Það tengist ekki skorti á sjálf­stjórn eða öðrum aumingja­skap, heldur efna­skiptum. Konur með PCOS eru mun líklegri til að þróa með sér átraskanir en aðrar konur. Það hefur ekki góð áhrif að fá endalaust að heyra að það sé bannað að borða þetta og hitt og að maður eigi nú bara að borða minna og hreyfa sig meira.“

Guðrún færir í tal að „þessi lífs­reynsla gaf mér kraft sem ég nýtti mér til að taka þátt í að stofna PCOS samtök Íslands. Væntanlega hefur hækkaða testósterónið (einn af fylgi­kvillum PCOS) líka leitt mig áfram í barátt­unni. Ég tók þátt í að stofna PCOS samtökin því ég vil að upplýsingar um PCOS og allt sem því fylgir, alveg óháð barneignar­hugleiðingum, sé aðgengilegra. Ég vil að allir læknar átti sig á því að PCOS hefur áhrif á meira en frjósemi og að við sem erum með PCOS fáum viðurkenningu á því sem við erum að upplifa.

September er alþjóð­legur vitundar­vakningar­mánuður um PCOS og þann 29. september erum við með fræðslu­fyrirlestra um PCOS.

PCOS samtök Íslands voru stofnuð haustið 2021. Tilgangur félagsins er að veita fólki með einkenni PCOS og aðstand­endum þeirra stuðning og fræðslu, auk þess að bæta aðgengi einstaklinga sem greinast með PCOS að upplýsingum um réttindi þeirra og möguleg meðferðar­úrræði. Þá er markmið félagsins að stuðla að aukinni almennri þekkingu á PCOS meðal almennings og fagaðila/yfirvalda. Samtökin eru með heimasíðu og eru á Facebook og Instagram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning