Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Neytandi vikunnar: Geirdís býr í hjólhýsi í Laugardalnum og dreymir um að rækta sitt eigið grænmeti

Geirdís Hanna Kristjánsdóttir
Geirdís Hanna Krist­jáns­dóttir

Neytandi vikunnar heitir Geirdís Hanna Kristjáns­dóttir og er 48 ára öryrki móðir dásamlegra drengja og eigandi Tinnu sem er tæplega fjagra ára blanda af Border Collie og Íslenskum fjárhundi.  Hún sinnir hinum ýmsu félaga­störfum auk þess að vera í námi til viðurkennds bókara.  Hefur félags­starfið sem hún sinnir haft gríðar­lega jákvæð áhrif á líðan hennar þrátt fyrir bága fjárhags­stöðu.  Því félagsleg einangrun er fylgi­fiskur þess að búa við fátækt.

Hvernig ferðu að ná endum saman?

Það er frekar erfitt og yfirleitt í lok mánaðar eru allir reikningar tómir og búið að selja þær flöskur sem safnast hafa saman yfir mánuðinn til að geta keypt nauð­synjar.

Hvað gerir þú þegar neyðin er stærst?

Það sem hefur hjálpað mér mest er að hafa Pepp í Arnar­bakka, þar get ég komið
og fengið frítt brauð og kaffi, eins er boðið upp á heitan mat í hádeginu á
miðvikudögum. Ég er líka einstak­lega heppin með fólkið í kringum mig sem er
boðið og búið til að rétta mér hjálpar­hönd þegar sem mest þrengir að.

Telur þú álagningu verslana sann­gjarna og gerir þú verð­samanburð á vörum
og þjónustu?

Mér finnst álagning hafa hækkað langt umfram það sem eðlilegt getur talist
undan­farið og ég geri reglulega verð­samanburð á þeim vörum sem ég nota hvað mest.

Hvað með sparnað í matarinnkaupum og hverju vilt þú breyta sem neytandi?

Ég sker allt við nögl þegar kemur að matar­innkaupum, sem þýðir að ég fæ alls ekki eins næringa­ríkan mat og ég helst þyrfti.
Það mætti oftar bjóða uppá hærri afslætti á nauðsynja­vörum, það sem Krónan
hefur verið að gera er mjög flott framtak en betur má ef duga skal, sérstak­lega
fyrir þá sem þurfa að skrapa saman klinki eftir aðra viku mánaðarins.

Leggur þú fyrir, og hvaða leiðir notar þú ef svo er?

Ég er með sameiginlegan sparnaðar­reikning með vinkonu minni og legg fyrir 5 þúsund krónur á mánuði. En ef mig langar í ferðalög erlendis þá dugar það frekar skammt og tekur langan tíma að safna fyrir því. Seinasta ferð sem ég fór í tók mig tvö ár að safna fyrir og dugði þó ekki til að dekka allan kostnað. Ef ekki hefði verið fyrir góða vini hefði ég ekki komist í þessa ferð.

Hve miklu eyðir fjölskyldan í mat og aðrar rekstrarvörur heimilisins á mánuði?

Ég er ein í heimili með hund og eyði að meðaltali 50 þúsund krónur í mat og rekstrar­vörur á mánuði. Sem myndi teljast frekar lág upphæð?

Umhverfisvernd, skiptir hún þig máli ?

Já hún gerir það. Minn draumur er að geta verið sjálfbær að mestu leiti, að geta ræktað mitt eigið grænmeti án mikils auka­kostnaðar, en þeir reitir sem boðið er uppá eru fáir og yfirleitt þó nokkur spotti að ferðast þangað, sem getur reynst þeim sem ekki hafa bíl til umráða frekar erfitt.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað, gjafir?

Ég reyni að versla alltaf sem ódýrast inn þar sem ekki er mikið úr að moða af 270 þúsund króna  ráðstöfunar­tekjum. Gjafir eru ævinlega eitthvað sem situr á hakanum og skorið við nögl. Fatnað fæ ég yfirleitt notaðan eða kaupi erlendis þegar ég hef haft tök á að ferðast.

Endurnýtir þú?

Ég endurnýti allt sem hægt er, notaðan fatnað sem enn er heill kem ég áfram til annarra sem gætu nýtt hann.

Hvaða ráð hefur þú til annarra?

Það er mjög erfitt að gefa öðrum ráð í svona aðstæðum, flestir eru orðnir lang­þreyttir og uppgjöfin algjör. En mér finnst mjög mikilvægt að fólk í fátækt skili skömminni því þetta er ekki sjálf­skaparvíti, heldur afleiðing af pólitískum ákvörðunum. Til dæmis hefur örorku­lífeyrir dregist verulega aftur úr lágmarks­launum og er bilið núna að minnsta kosti 100 þúsund krónur á mánuði. Eins hafa frítekjumörk ekki hækkað í 14 ár sem gerir það að verkum að þeir sem reyna að bæta kjör sín með vinnu verða fyrir gríðar­legum skerðingum og nánast enginn ávinningur er af því að fara út á vinnu­markaðinn.
Þetta þarf að laga!

Annað sem þú vilt taka fram?

Ég bý í hjólhýsi í Laugar­dalnum og höfum við sem kjósum að búa á þennan hátt verið að reyna fá borgina til að útvega okkur svæði til langtíma uppbyggingar. Við erum venjulegt fólk sem kjósum að búa á óhefðbundinn hátt í okkar eigin heimilum. En þar sem við erum núna getum við ekki skráð heimilsfang heima hjá okkur og ég sem öryrki fæ þar af leiðandi ekki heimilis­uppbót, en það eitt og sér myndi auka ráðstöfunar­tekjur mínar töluvert í hverjum mánuði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning