Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Sighvatur ver Jón Baldvin: „Hefur það miskunnarleysi, sem þeim er sýnt, valdið mér áhyggjum“

Sighvatur Björgvinsson
Sig­hvatur Björg­vins­son

„Þau eru orðin öldruð, hjónin. Eiga sér að baki langan og merkan starfs­feril. Hún á sviði menningar og listar. Hann sem foringi íslenskra jafnaðar­manna. Maðurinn, sem gerbreytti íslenska skatt­kerfinu á nokkrum mánuðum. Úr gömlu og úreltu kerfi sölu­skatts og eftir­áskattgreiðslu tekju­skatta. Í heim virðis­aukaskatts og stað­greiðslu­skatts . Maðurinn, sem náði í samningum að tryggja lands­mönnum mestu efnislegu og réttarfars­legu framfarir, sem orðið hafa í Íslands­sögunni.

EES-samninginn. Maðurinn, sem veitti þjáðum Eystrasalts­þjóðum mestan og bestan stuðning allra vestrænna þjóðar­leiðtoga.

Stuðning, sem þær hafa heiðrað Ísland og Íslendinga fyrir og nýlega var minnst með heimsókn helstu forystu­manna þessara þriggja þjóða hingað til Reykja­víkur, þar sem íslenskum ráða­mönnum þótti ekki henta, að maðurinn sjálfur fengi að vera viðstaddur. Þessi aldraði leiðtogi íslenskra jafnaðar­manna.“

Svona byrjar mikill varnarpistill Sighvatar Björgvins­sonar, fyrr­verandi Alþingis­manns til handa Jóni Baldvini Hannibals­syni. Í pistlinum segir hann að Ingibjörg Sólrún Gísla­dóttir hafi gert undirbúna atlögu að Jóni Baldvini í byrjun þessa mánaðar.

Vísar Sighvatur þar til færslu Ingibjargar Sólrúnar á Facebook þar sem hún talar um ásakanir á hendur Jóni Baldvini, um meint kynferðis­brot sem bornar hafa verið á hann. Ingibjörg Sólrún líkti þar Jóni við „rán­dýr sem velur bráð sína af kost­gæfni.“ Þá segir hún einnig frá því er hún bað hann að víkja úr heiðurs­sæti Samfylkingarinnar fyrir þing­kosningarnar 2007 en þá hafði hún heyrt af einu af þessum málum.

Hrun Samfylkingarinnar

Segir hann í pistlinum að Ingibjörg Sólrún hafi ekki átt nokkurn þátt í stofnun Samfylkingarinnar og lengi vel hafi hún haldið sér fjarri flokknum.

„Í fyrstu þing­kosningum Sam­fylkingarinnar náði hún 27% at­kvæða. Í næstu kosningum þar á eftir 32% at­kvæða. Í fjöl­miðlunum var þá talað um hina tvo turna í ís­lenskum stjórn­málum, hvar af Sam­fylkingin var annar. Það var við þessar að­stæður, sem manneskja sú, sem kvaddi sér hljóðs á fimmta degi ætt­jarðar­vistar hjónanna gömlu, gaf kost á sér til starfa fyrir Sam­fylkinguna. Svili hennar, sem þá var for­maður flokksins, bauð henni að styðja hana til for­sætis­ráð­herra, næði flokkurinn nægu fylgi með hennar liðsinni. Og þá sló hún til,“ skrifar Sig­hvatur.

Þá segir hinn aldni fyrrum Alþingis­maður að tveimur árum seinna hafi Ingibjörg Sólrún ráðist gegn svila sínum og fellt hann frá formennsku í flokknum.

„Settist sjálf í það sæti. Gekk svo til sinna fyrstu þing­kosninga sem flokks­for­maður. Sam­fylkingin fékk þar 16,8% at­kvæða. Hafði sem sé tapað því sem næst helmingi fylgisins frá næstu kosningum þar á undan,“ skrifar Sig­hvatur. Í kjöl­farið hafi Ingi­björg Sólrún á­kveðið að falla frá megin­stefnu jafnaðar­manna og ganga til stuðnings við Sjálf­stæðis­flokkinn í sam­steypu­stjórn undir hans for­ystu og með því fengið utan­ríkis­ráð­herra­stól. Sá hinn sama og Jón Bald­vin hafi sjálfur setið í áður með glæsi­brag. Sú veg­ferð, sem þessi nýi for­maður leiddi, endaði með mesta af­hroði, sem ís­lenskir jafnaðar­menn hafa orðið fyrir í meira en 100 ára sögu sinni.“ Þarna vísar Sighvatur í 5,7 prósenta fylgi sem Samfylkingin hlaut í kosningum það árið.

„Hver einn og einasti fram­bjóðandi flokksins féll í þeim kosningum, sem eftir var þá enn af þeim hópi, sem leiddur var til sam­starfs við Sjálf­stæðis­flokkinn og til eftir­leiksins, sem af því leiddi. Einn fram­bjóðandi náði kjöri, ungur Akur­eyringur sem engu hlut­verki hafði gegnt í veg­ferðinni sem hafin var fyrir til­stilli þess, sem lét sér sæma að lýsa for­vera sínum sem rán­dýri. Rán­dýr, var hann sagður vera,“ skrifar Sig­hvatur, og spyr:

„Hvaða heiti skyldi nafn­gefandinn velja þeirri mann­eskju, sem leiddi flokk sinn til veg­ferðar, sem nánast leiddi til slátrunar flokksins eins og varð um Sam­fylkinguna í kosningunum 2017?“

Ásakanirnar

Sighvatur minnist stuttlega á ásakanirnar á hendur Jóni Baldvini, um kynferðis­brot, í pistli sínum. „Ásakanir um fjölmörg brot, sem mörg eiga að hafa átt sér stað fyrir meira en hálfri öld. Ásakanir, sem aldrei hefur þó verið fylgt eftir með ákærum svo hið íslenska dómskerfi gæti fengið að fjalla þar um og ákveða refsingu fyrir, ef stæðust. Ásakendur hafa þannig tekið að sér bæði ákæru­valdið, dóms­valdið og refsivaldið – sem skal vera að gera þessi öldruðu hjón útlæg úr eigin samfélagi og eigin landi. Nei – afsakið. Ein ákæran hefur verið tekin upp af ákæru­valdinu.

Ákæran um, að sá ákærði hefði strokið um bak kvenmanns við matborðið á heimili hins ákærða. Var ákærði sýknaður í héraði. Handhafi ákæru­valdsins, kona, áfrýjaði sýknu­dómnum til Lands­réttar þar sem dóms er að vænta í nóvember.“

Rósemd elliáranna

Í lokaorðum sínum segist Sighvatur hafa þekkt Jón Baldvin og Bryndísi konu hans í fjöldi ára og aldrei hafa séð neitt athuga­vert við framkomu þeirra eða atgerfi.

„Það er aldraður maður, sem skrifar þessi orð. Á sinni löngu starfsævi hafði hann mikil samskipti við þau hjón. Átti í harka­legum átökum við þau .

Líka í miklum samskiptum og samvinnu. Hefur deilt með þeim bæði stríðum og stund, jafnt gleði­stundum sem erfiðum. Í öllum þeim samskiptum hefi ég aldrei orðið var við eða fengið pata af neinu af því mikla og neikvæða ásökunar­efni, sem þeim hjónum er ætlað að bera.

Aldrei! Í friði og rósemd elli­áranna, sem ég hef fengið að njóta, hefur það miskunnar­leysi, sem þeim er sýnt, valdið mér áhyggjum. Raskað ró minni. Vakið mig til samúðar. Að þurfa að flýja heimili sitt, ættingja, vini sína og vandamenn, sjálfa ættjörðina – vegna grímu­lausra, stöðugt ítrekaðra og vandlega undir­búinna árása.

Mælist eindregið til þess við þá þjóð, sem við öll tilheyrum, að hún leyfi öldruðu fólki að njóta síðustu hérvistar­daga í friðsemd og ró á ættjörðinni sinni, á heimili sínu og með vinum sínum og vanda­mönnum. Svo fer þeim að ljúka —-þessum skrifum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning