Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

„Útlendingahatararnir eru ekki á 20 milljóna króna jeppum“

Séra Davíð Þór Jónsson er í framboði
Séra Davíð Þór Jónsson er í fram­boði

Séra Davíð Þór Jónsson, sóknar­prestur í Laugar­neskirkju, hristi upp í mörgum nýverið þegar hann á Facebook-síðu sinni skaut hörðum skotum að ríki­stjórninni vegna málefna flótta­manna og hælis­leitenda og notaði meðal annars orðið „helvíti“ í þeim pælingum. Hann fékk í kjölfarið tiltals­bréf frá biskupi sem hann líkir við gula spjaldið. Í viðtali við Mannlífið með Reyni Trausta­syni ræðir hann meðal annars um þessar pælingar sínar, tiltals­bréfið og flótta­menn. Þá ræðir hann einnig um Radíus­bræður og húmor og svo er það dauðinn.

Davíð Þór segir mikilvægt að muna að útlendinga­hatarar tilheyra sjaldnast elítunni. Samfélagið er á yfir­borðinu slétt og fellt og dýru jepparnir eru komnir aftur og menn eru farnir að gambla í verð­bréfum. Sérð þú einhvern allt annan veruleika? Er mikil neyð undir? Er mikil fátækt hjá fleirum kannski en hælis­leitendum?

„Já, og það er það sem er svo hættulegt. Rasistarnir og útlendinga­hatararnir eru ekki keyrandi um á 20 milljóna króna jeppum. Þeir eru að draga fram lífið á bótum, sveltandi og horfandi í hverja einustu krónu. Við búum í samfélagi þar sem ríkasta prósentið er með allan auðinn fyrir framan sig, allar kökurnar nema eina: Sá sem verka­maðurinn er með. Og ríki maðurinn segir við verka­manninn: „Passaðu þig á útlend­ingnum, hann ætlar að taka kökuna af þér.“

Og þannig nær hann að sitja á toppnum og vera í friði og egna þessum hópum hvorum gegn öðrum. Maður skilur það ósköp vel. Þú átt ekki fyrir salti í grautinn, þú átt ekki fyrir tómstundum fyrir börnin þín og þú átt ekki fyrir vetrar­flíkum handa þeim og svo sérðu í fréttum að það er verið að flytja hingað inn fólk frá Sýrlandi, flótta­menn, og Ellingsen eru svo góðir að þeir gefa litlu flótta­börnunum fínar Didriksons-vetrar­úlpur sem þú getur ekki látið þig dreyma um að þú getir klætt börnin þín í.“

Þarna liggur kannski hluti af meininu.

„Þarna liggur meinið. Nákvæmlega þarna. Ég verð alltaf róttækari og róttækari og rauðari og rauðari í pólitík eftir því sem ég er prestur lenegur og sé betur og kynnist betur fólkinu sem okkar kapítalíska hagkerfi er að skilja út undan.“

Viðtalið við Davíð Þór má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá