Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Óþol Íslendinga á nektardansstöðum: „Við stúlkurnar erum engar klámstjörnur“

Myndin er samsett
Myndin er sam­sett

 „Ég fer úr öllu. Fyrir mér, er sá felu­gangur, að skilja eina eða fleiri flík eftir, óeðli­legur, því að nektin er það sem fólk borgar sig inn fyrir og nektina fær það. Mér fyndist óþægilegt að standa eftir á nærbuxunum og þess vegna fer ég úr öllum fötum við sýningar okkar. Þrátt fyrir það, geng ég ekki upp og glenni mig fyrir gestum okkar. Slíkt er klám, sem ég býð ekki upp á, og það fólk sem óskar þess að líta kynfæri augum, nú, það getur einfald­lega rölt sér út í næstu bókabúð og keypt sér klámrit. Við stúlkurnar erum engar klám­stjörnur. Mitt daglega líf á ekkert skylt við það sem ég geri á kvöldin og þess vegna er líf dansarans á vissan hátt einmanalegt, því í þessu starfi lærir maður að tortryggja náungann og á endanum finnst manni allir karlmenn vilja það eitt og sama,“ sagði Caroline, 25 ára gömul sænsk nektar­dansmær á Café Bóhem, í samtali við Helgar­póstinn 11. maí 1995.

Miklar og háværar óánægju­raddir ólmuðu á tíunda áratuginum vegna fjölda starf­ræktra nektar­dansstaða. Í kjölfar afhjúpunar og frétta Helgarpóstins, í mars 1995, um starfsemi nektar­dansstaða á Íslandi birtist um miðjan maí mánuð 1995 ítarleg grein í Helgar­póstinum þar sem rætt var við nokkra dansara sem störfuðu á Café Bohem. Staðurinn var stað­settur á þeim tíma í Klappar­stígnum í miðbæ Reykja­víkur. 

„Þær mótmælaraddir er hafa ómað hvað öflugast hérlendis, koma frá fólki sem enga hugmynd hefur um raun­verulegt eðli starfa okkar og þjáist af kreddum,“[…] og kvaðst eilítið undrandi yfir þeim mótmæla­röddum og blaða­skrifum er hafa fylgt á eftir starfi þeirra á Klappar­stígnum, en Caroline hefur unnið töluvert við þjálfun stúlknanna sem þar vinna. 

Sjá nánar https://gamla.mannlif.is/frettir/atjan-ara-nektardansmaer-leyfdu-theim-ad-thukla-sig-ad-vild-baedi-um-brjostin-og-milli-fotanna/

Í viðtali Helgarpóstins tjáir Caroline sig um upplifun sína á þeim menningarmun að starfa sem nektar­dansmær, í landi þar sem ekki voru fordæmi fyrir slíkum sýningum. Caroline hafði á þessum tíma rúmlega fimm ára reynslu og hafði unnið víða um Evrópu. 

„Þessi hroki hefur komið mér í opna skjöldu, því í raun og veru stundum við erótískar kabarett­sýningar, þrátt fyrir að dans­stúlkurnar hafi hver sína tækni og vissulega hafi maður séð klám­fengna takta af og til í starfi, það viðurkenni ég fúslega. En slíkt á ekki við um okkur. Sjálf hef ég starfað við greinina í fjölmörgum Evrópu­löndum í yfir fimm ár, og aldrei orðið fyrir slíkri óvirðingu sem stúlkurnar máttu þola í byrjun starfa okkar hér í Reykjavík fyrr á þessu ári. Ég tel Ísland afskaplega aftarlega á merinni í þessum efnum, og jafnvel mörgum árum á eftir öðrum Evrópu­löndum hvað frjáls­ræði varðar.“ 

Gestirnir ekki bara graðir kallar

Sterkar hugmyndir voru um sýningarnar, áhorfenda­hópinn og tilganginn en þær hugmyndir einskoruðust þær helst af gröðum köllum, sem illa gengi að næla sér bólfélaga og stunduðu því nektar­dansstaðina. Caroline fannst vert að leiðrétta þessar hugmyndir og sagði: „Um þriðjungur gesta okkar hvert kvöld eru konur. Oftlega hefur maður mætt óblíðu augnaráði frá stúlkum og konum sem hafa komið niður eftir, og sumar þeirra virðast jafnvel óttast að við ætlum að stinga kærastanum undan þeim. Oftlega sest ég niður hjá þeim að lokinni sýningu minni og útskýri eðli málsins fyrir þeim og leiðrétti þann misskilning ef einhver er. Við stúlkurnar erum í okkar vinnu, sem er að dansa, og reyni ég að útskýra það fyrir þeim.“

Fordómunum mætt með mennsku

Eins og flestum er kunnugt er bein tenging milli fordóma og þekkingar­leysis. Caroline greindi í viðtalinu frá atviki sem opnaði ekki einungs augu umræddrar konu heldur margra lesenda.

„Ég hef oft átt skemmtilegt spjall við þær konur er koma til okkar, og þegar spilin hafa verið lögð á borðið léttist á þeim brúnin. Reyndar svo mikið, að við höfum endað með nokkrar konur uppi á sviði, þar sem þær slíta hreinlega utan af sér spjarirnar. En fyrir nokkrum dögum kom á staðinn til okkar maður, sem hafði talað móður sína, sem var snyrtileg og vel klædd kona um sextugt, á að koma til okkar og njóta þess sem við bjóðum upp á. Konan sú átti erfitt með sig fyrsta hálf­tímann, en þegar ég hafði sest niður með henni og átt samtal við hana um raun­verulegt eðli starfa okkar, var sem hún öðlaðist annan skilning og slakaði á. Hún fór þó stuttu seinna út aftur, en sonur hennar varð eftir.“

Tala bara við gesti gegn gjaldi

Caroline tjáði sig um kjörin og starfið. Hún lýsti starfinu sem menningar- og félags­legu er ætti ekkert skylt við vændi. Hún útskýrði jafnframt að helmingur launa hennar væru skatt­frjálsar greiðslur sem kæmu beint úr vasa kúnnans, svokallað þjórfé. 

„Hér eru engin baksviðspartý þar sem menn fá inngöngu gegn greiðslu og svo sannarlega kaupa þeir sér ekki blíðu okkar sem störfum á staðnum. Við spjöllum oftlega við mennina, því hluti okkar vinnu flokkast undir sósíaleringu. Þó gerum við það aðeins gegn þjórfé. Við getum ekki haft tengsl við menn sem eiga engan pening og vilja ólmir spjalla við okkur um tíma, við barborðið. Um fimmtíu prósenta launa okkar er þjórfé, og höfum við alveg nóg upp úr krafsinu fyrir vikið. En að við seljum okkur, það er helber misskilningur. Hins vegar snýr svo við að hafi maðurinn ekki fjármagn á sér til að greiða okkur fyrir spjallið, snúum við okkur annað. Við getum ekki verið að eyða tíma okkar í fólk sem ekki getur reitt fram þjórfé, vegna þess að við gætum verið að þéna peninga annars staðar.“

Líkt og fram kom í tengdum Baksýnis­spegli Mannlífs var lögbann sett á nektar­dansstaði á Íslandi 2010. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning