Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Minnast Eiríks Guðmundssonar: „Ég og þú munum aldrei vita hvað hann vildi segja og hvernig“

Eiríkur Guðmundsson, Mynd/skjáskot: Rúv
Eiríkur Guð­munds­son, Mynd/skjá­skot: Rúv

Ýmsir vinir og samstarfs­menn Eiríks Guðmunds­sonar minnast hans í dag en hann er látinn, 52 ára að aldri.

Einn þeirra er Egill Helgason, menningar­rýnir og þátta­stjórnandi á Rúv. Egill skrifaði fallega færslu um Eirík þar sem hann fer yfir mannkosti hans. „Við starfs­fólk RÚV erum harmi slegin að heyra fréttir af föllnum félaga. Kolla vinkona mín segir að Eiríkur hafi verið svo byronískur og sjarmerandi, honum hefði fundist það spaugilegt, en hann var líka sérlega skemmtilegur, alúðlegur, gáfaður, fallegur, örvandi félag­skapur – jú og rithöfundur, pistla­höfundur og einn okkar allrabesti útvarps­maður. Í dag fellir maður tár yfir dauða Eiríks en maður finnur líka fullt af góðum minningum sem veita smá huggun og kalla jafnvel fram bros. Farðu vel kæri.“

Gunnar Smári Egilsson, fyrrum fjölmiðla­maður og foringi Sósíal­ista á Íslandi skrifaði einnig fallegan pistil en þeir voru málkunnugir. Minnist Gunnar Smári á þörf Eiríks til að tjá sig en eftir að hann missti starfið hjá Rúv, hafi hann í raun misst sviðið.

„Ég samhryggist öllum sem elskuðu Eirík. Þetta er svo sorglegt. Ég rendi áðan yfir samskipti okkar undan­farið árið og sé að það er ekki bara gjöf að eiga ríkt innra líf, að hafa í sér deiglu og átök. Þegar ég horfi yfir skeytin er eins og maðurinn á bak við orðin sé að brenna upp.

Við Eiríkur vorum það sem kalla má vel málkunnugir. Ég leitaði ráða hjá honum eða fletti upp í honum, hann sendi mér hvatningu og ég honum þakkir. Þannig er bandalag manna sem ganga með þá grillu að þeim beri að laga samfélagið, benda á það sem betur mætti fara, kasta inn einhverri hugmynd sem kannski hreyfir við einhverjum í von um að eitthvað gerist. Ekki veit ég hvaðan þessi þráhyggja kemur. Kannski er þetta mein fólks úr litlum samfélögum, þar sem ábyrgð hvers og eins er hlutfalls­lega stór.

Þessi bæklun veldur því að það er illt að missa tjáningar­frelsið. Það henti Eirík að einhverju leyti þegar hann missti starfið hjá Ríkis­útvarpinu og var á vissan hátt slaufaður út úr menningar­umræðunni. Ég kannast við svipað, en ekki jafn illt. Maður getur ekki lengur hugsað neitt til enda, orðinn of vanur að leika sér með hálfkaraður hugmyndir í almanna­rýminu, þarf á öðrum að halda, er orðinn háður því að hugsa upphátt í samfélagi.

Síðasta sem Eiríkur skrifaði mér var að hann langaði að taka til máls, hann taldi sig geta sagt eitthvað öðruvísi en aðrir höfðu sagt hingað til. Ef það væri eftirsókn eftir því, bætti hann við. Ég hef margt að segja, bætti hann enn við.

Það varð ekkert úr þessu. Atvik voru bara þannig, tilefnið rann hjá. Og nú er Eiríkur þagnaður að eilífu og ég og þú munum aldrei vita hvað hann vildi segja og hvernig. Og þó við teljum okkur geta gert okkur það í hugarlund munum við aldrei geta galdrað það fram. Upplifun okkar, skynjun og tjáning er einstök og einkanleg, sérstakur heimur. Hann deyr með fólki, tortímist.

Heimur Eiríks var svo stór að hann gat gefið okkur hinum allskonar sem við áttum ekki fyrir. Slíkir heimar hafa mörg skúmaskot og sum myrk. Sá sem hitti Eirík fann það vel, að mennska hann var líka byggð upp af sársauka og angist. Þannig er það hjá öllu góðu fólki.

Hjartans kveðjur til Kolbeins og alls fólksins hans Eiríks, ástvina og allra sem elskuðu þennan fallega mann. Dauðinn drepur allt sem lifir. Við erum sífellt áminnt um það, stundum harkalega.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið