Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Þór sakar Egil um spillingu: „Með ólíkindum að Egill skuli hafa gengið fram með þessum hætti“

Egill Helgason.
Egill Helgason.

Þór Saari, fyrr­verandi þingmaður, segir að viðtal Egils Helga­sonar við Hannes Hólmstein Gissurarson í Silfrinu í gær hafi verið fyrir neðan allar hellur. Þór segist ekkert botna í Agli og grunar helst að spilling hafi ráðið för. Egill og Hannes ræddu það þegar Geir H. Haarde var dæmdur í Landsdómi en Þór segir þetta vera enn eina tilraun til að hvítþvo Geir.

„Það var alveg með ólíkindum að sjá enn eina hvítþvotta­tilraunina á Geir H. Haarde fyrr­verandi formanni Sjálfstæðis­flokksins á RÚV í gær. Sann­leikurinn í málinu er að Geir var dæmdur í Landsdómi af meirihluta dómsins með vel rökstuddu áliti. Það nákvæmlega sama átti við um dóm Manndréttindadómstóls Evrópu í málinu. Það nákvæmlega sama á við um niður­stöðu þing­nefndarinnar sem ákvað að höfða ætti mál gegn Geir,“ skrifar Þór innan Facebook-hóps Sósíal­ista.

„Það er því alveg með ólíkindum að Egill Helgason annar stjórn­enda Silfursins á RÚV, þáttar sem er helsti umræðu­þáttur um stjórnmál hér á landi, skuli hafa gengið fram með þessum hætti og fengið í lið með sér dæmdan fræðimann sem hefur verið helsti áróðurspési hægri öfgaafla hér á landi í áratugi, til að hjálpa sér við þennan hvítþvott.“

Þór segir að viðtalið hafi einfald­lega verið áróður frá upphafi til enda. „Hvað Agli Helgasyni, manninum sem svo sannarlega stóð vaktina með prýði í Hruninu og eftir­málum þess, gengur til er ekki gott að segja. Það er þó varla hægt að draga aðra ályktum af þessum gjörningi hans en að hann sé að „leggja inn“ eins og sagt er, hjá Sjálfstæðis­flokknum, og eigi í staðin von á einhverjum brauð­molum í eigin faðm.

Slíkt þvaður viðmælanda og mæring spyrjanda sem þarna átti sér stað hefur sjaldan sést og þetta spjall var beinlínis skilgreining á þvi hvernig á að dreifa fals­fréttum á sem trúverðugastan hátt. Það er svo að sjálfsöðgu grafal­varlegt ef þátta­stjórnendur hjá RÚV komast upp með slíkt á þessum tímum þar sem sannreyning upplýsinga hefur sjaldan skipt meira máli.“

Að lokum segir Þór að Sjálfstæðis­menn ættu að líta sér nær hvað þetta mál varðar. „Það fyndna, en samt sorglega við þetta mál er, að það voru Sjálfstæðis­menn á þingi sem sjálfir með atkvæðum sínum tryggðu það að Geir H. Haarde fór einn fyrir Landsdóm, í stað þess að fá þrjá aðra með sér. Einmitt, þingmenn Sjálfstæðis­flokksins sjálfir.

Þegar þetta varð ljóst í lok atkvæða­greiðslurnar urðu svo Sjálfstæðis­menn alveg brjálaðir, „taktíkin“ hafði snúist upp í klúður og þeirra eigin aðför að formanninum sínum fyrr­verandi. Ég benti HHG á þetta þegar hann gerði liðs­könnunina um hvort ég væri enn í „óvina­liðinu“ fyrir þessa blessuðu „bók“ og hann hummaði bara. Þeim tókst þó að kaupa Magnús Orra Scram til að skipta um skoðun með einhverju bygginga­leyfi fyrir heita potta í Þjórs­árdal, og líklega einhverja fleiri líka. Iss“

Viðtalið má sjá hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis