Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Sólrún Diego: „Finnst vera kominn tími á að nýta menntunina mína í eitthvað almennilegt“

Sólrún Diego.
Sólrún Diego.

Viðskipta­blaðið greinir frá því að samfélags­miðla­stjarnan og metsölu­höfundurinn Sólrún Diego hafi verið ráðin markaðs­stjóri barna­vöru­verslananna Vonar verslunar og Bíum Bíum:

„Ég er mjög spennt að spreyta mig á þessu sviði og að vinna með þeim Eyrúnu og Olgu. Ég er búin að vera með minn miðil í sjö ár og finnst vera kominn tími á að nýta menntunina mína í eitthvað almennilegt,“ segir Sólrún.

Hún útskrifast sem viðskipta­fræðingur um jólin; hún lagði áherslu á markaðs­samskipti og samfélags­miðla í námi sínu við Háskólann á Bifröst.

Vinkonurnar Eyrún Anna Tryggva­dóttir og Olga Helena Ólafs­dóttir, eigendur Vonar verslunar, gengu nú á dögunum frá kaupum á fyrir­tækinu Bíum Bíum.

Verslunin Von hefur boðið upp á leikföng, húsgögn, föt sem og aðrar barna­vörur, á meðan Bíum bíum hefur sérhæft sig í flottu og miklu úrvali af barna­fötum fyrir breiðari aldurs­hópa.

Verslunin er með einka­dreifingar­samning við vörumerki frá Danmörku sem hafa notið vinsælda hér á Íslandi:

„Ég er búin að vera mikill viðskipta­vinur Bíum Bíum síðan ég eignaðist börn, og hefur hún verið mín uppáhalds barna­vöruverslun hér á landi. Ég hef auk þess brennandi áhuga á markaðs­setningu og barna­vörum. Þá hef ég átt í góðum samskiptum við þær Eyrúnu og Olgu, en eftir að þær kaupa Bíum Bíum fengum við þessa hugmynd að ég myndi sjá um markaðs­setningu verslunarinnar,“ segir Sólrún.

Kemur fram í frétt blaðsins að þŕ Eyrún og Olga hyggjast reka verslanirnar áfram undir sitt hvoru nafninu; en markmiðið sé að verða sér úti um stærra húsnæði sem rúmi báðar verslanirnar undir sama þakinu. Þŕ vilja einnig styrkja netverslunina og hafa verslanirnar sýnilegar á samfélags­miðlum.

Og Sólrún segir ýmis konar tækifæri liggja í netverslun og samfélags­miðlum:

„Ég ætla að leggja áherslu á að aðgengi að netversluninni sé gott og að fólk úr öllum lands­hlutum geti skoðað og pantað sér vörur, að þú þurfir ekki að koma í búðina. Það eru því mörg tækifæri framundan að gera alls konar nýtt og ég er spennt að fá að koma öllum mínum hugmyndum á framfæri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning