Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Dísella hlaut Grammy-verðlaunin: „Þetta er hin fullkomna saga um réttan tíma og réttan stað“

Dísella Lárusdóttir
Dísella Lár­us­dóttir Mynd: Kazuma Takigawa – búið er að klippa myndina til

Dísella Lárusdóttir hefur í mörg ár starfað hjá Metropolitanóperuhúsinu í New York og fékk í vor ásamt Grammy-verðlaun ásamt samstarfs­fólki fyrir uppsetningu Metropolitan-óperunnar á verki Philips Glass, Akhnaten. Dísella hefur þó mest verið heima frá því að Covid-faraldurinn skall á og hér býr fjöl­skyldan. Í viðtali við Reyni Traustason talar hún meðal annars um tónlistina, verð­launin, ráðlegg­inginum sem hún vildi ekki fara eftir og skrýtna tímabilið. Hér er brot úr viðtalinu.

Grammy-verð­launin

Lulu.

„Þetta áttu að vera átta sýningar og það voru tvær sýningar lausar fyrir stað­gengilinn.“ Hún segist hafa verið mjög spennt. Svo var hringt í Dísellu í árslok 2018 og var henni tjáð að það yrðu bara fimm sýningar á Lulu. „Það var búið að kippa mínum tveimur sýningum út. En sem mála­miðlun af því að þeir vildu ekki að ég yrði fúl þá ákváðu þeir að bjóða mér annað hlutverk. Ég var ferlega svekkt af því að Lulu er svo flott hlutverk.“ Henni var boðið hlutverk Queen Tye í óperunni Akhnaten eftir Philip Glass. „Þetta var eiginlega bara heppni vegna þess að það átti að sýna Lulu frá janúar til mars 2021 en þá var Met lokað vegna Covid þannig að sýningin var aldrei sett upp. Hins vegar var það Akhnaten sem við fengum Grammy-verð­launin fyrir. Þetta er hin fullkomna saga um réttan tíma og réttan stað. Þannig að ég er mjög sátt eftir á að hyggja.“

Jú, Dísella hlaut Grammy-verð­launin ásamt samstarfs­fólki fyrir uppsetningu Metropolitan-óperunnar á verki Philips Glass, Akhnaten. Verð­launin eru fyrir bestu óperu­upptökuna en Dísella lék burðar­mikið hlutverk í óperunni, einmitt hlutverk Queen Tye eins og þegar hefur komið fram.

Hvernig er að vinna svona stór verðlaun?

„Þetta er bara súrrealískt. Ég held ég átti mig ekki á því ennþá. Maður er allt í einu kominn inn í eitthvað „society“ og farinn að fá tilkynningar um hvar næstu Grammy-verðlaun verða tilkynnt. Maður er kominn í einhverja lúppu. Það er skrýtið. Það er verið að tala um mann sem kollega. Æ, ég veit það ekki. Þetta er bara súrrealískt. Þetta er dásamlega skemmtilegt en ég læt þetta ekkert stíga mér til höfuðs. Ég er alveg með fæturna á jörðinni. Mér finnst ég ekki vera búin að sýna allt sem í mér býr þannig að ég er ennþá að reyna að bæta mig.“

Fussaði við þessu

Dísella er spurð hvort hún hafi snúið bakinu við dægur­lögunum þegar hún varð klassísk söngkona.

„Mér var ráðlögð alls konar vitleysa þegar ég var í skóla. Þetta var fyrir allar þessar byltingar eins og MeeToo. Heimurinn er búinn að breyast svo svakalega; ég tala nú ekki um eftir Covid. Á þessum tíma var mér ráðlagt að tala ekki um það ef ég ætti mann og tala ekki um að ég vildi fjöl­skyldu.“

Það var verið að gera út á kvenímyndina. „Algjör­lega. Ég fussaði við þessu; einhver íslensk remba í mér. Og ég tók ekki þátt í þessu. Ég eignaðist barn þegar ég var að byrja minn frama og var opinber­lega gift og tók son minn með mér hvar sem ég söng.“ Eigin­maðurinn á þeim tíma var Teddy Kernizan en þau Dísella skildu síðar. Lárus Bjartur, sem er 12 ára, er sonur þeirra. „Við erum ennþá í góðu sambandi og erum „coparenting“. Þetta er erfitt á milli landa en við erum að reyna að skiptast á.“ Sonur þeirra er önnur hver jól hjá föður sínum og segir Dísella að hann hitti föður sinn alltaf á sumrin. Maður Dísellu í dag er Bragi Jónsson og eiga þau tvö börn saman. Jökull Orri er sjö ára og Snædís Lind er að verða tveggja ára. „Með báða strákana var meðgangan ekkert mál en svo kom stelpan. Ég veit ekki hvort það sé af því að hún er stelpa eða af því að ég er aðeins eldri; ég gat ekki setið síðustu þrjá mánuðina. Ég varð ýmist að standa eða liggja. Það var mjög erfitt. Ég er vön að eiga við brjósklos og yfirleitt þegar ég fæ verk í bakið þá fer ég út að labba og labba verkinn af mér en í þetta skipti var þetta ekki það. Þetta var einhver tauga­verkur og hann versnaði með því að ganga. Ég vissi það ekki fyrr en ég fór til sjúkra­þjálfara að ég væri að gera þetta verra með því.

Hægt er að lesa forsíðu­viðtalið í heild sinni í vefútgáfu blaðsins með því að klikka hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis