Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Brynjar segir vegið að tjáningarfrelsi sínu: „Ég skrifaði saklausa færslu“

Brynjar Níelsson.
Brynjar Níelsson.

Brynjar Níelsson, vara­þingmaður Sjálfstæðis­flokksins og aðstoðar­maður dómsmála­ráðherra, segir ósann­gjarnt að tengja saman starf hans og skoðanir. Hann megi tjá sig eins og honum sýnist þó hann sé aðstoðar­maður dómsmála­ráðherra, það tryggi stjórnar­skráin. Þetta segir Brynjar á Facebook en færsla sem hann birti um helgina hefur verið harðlega fordæmd af morgum. Þó Brynjar sé vanur úlfúð þá hefur hún sjaldan verið svo mikil.

Í stuttu máli þá sagðist Brynjar sammála niður­stöðu hæstaréttar Banda­ríkjanna um að banna þungunarrof. Það eitt og sér er vissulega óvinsælt meðal flestra Íslendinga en það bætti ekki úr skák að Brynjar var fyrst og fremst að gera grín að málinu í færslunni umdeildu, en hana má sjá í heild sinni hér. Rétt í þessu skrifar Brynjar svo á Facebook:

„Ég skrifaði saklausa færslu um lögfræði og lýðræði í gær í tengslum við dóm hæstaréttar BNA um að réttindi til þungunar­rofs ætti að afgreiða á vettvangi lýðræðis­lega kjörinna fulltrúa fólksins. Þannig virkaði lýðræðið. Menn geta haft ýmsar skoðanir í þessum efnum og jafnvel fundist eðlilegt að umboðs­lausir dómarar setji lög og reglur um þungunarrof með því að skyggnast inn í líklegan hugarheim bandaríska stjórnar­skrár­gjafans fyrir 250 árum til að finna út vilja hans til þungunar­rofs. Mér finnst bara eðlilegra að kjörnir fulltrúar fólksins taki ákvörðun um þetta efni með lýðræðis­legum hætti en ekki umboðs­lausir dómarar. Þannig er það á Íslandi.“

Líkt og fyrr segir finnst honum að sér vegið.  „Ólíkt mörgum er ég hvorki hneykslaður né misboðið þótt einhver sé annarrar skoðunar en ég. Áberandi er, einkum hjá þeim sem kenna sig við víðsýni og umburðar­lyndi, að það verður gjarnan misboðið og hneykslað yfir andstæðum skoðunum. Þær eru ýmist til skammar eða haturs­orðræða. Að auki eru þeir sem eru með andstæðar skoðanir ógeðs­legir, sérstak­lega Jordan Peterson. Því þarf að beita viðurlögum í glímunni við slíkar skoðanir að mati víðsýna og umburðar­lynda fólksin,“ skrifar Brynjar.

Hann segist svo vilja senda fólkið í endur­menntun. Fólkið  sem gagnrýni hann geti ekki kennt sig við umburðar­lyndi nema það umberi hann. „Ég held að þetta ágæta fólk þyrfti að fara á námskeið þar sem farið er yfir merkingu á helstu hugtökum, eins og víðsýni, frjáls­lyndi umburðar­lyndi og ekki síst fasisma. Þá væri örugglega til bóta að kenna í skólum hugmynda­fræðina á bak við vestrænt lýðræði, þrískiptingu ríkis­valdsins og stjórn­skipunina almennt. Og bjóða stjórn­málamönnum, blaða­mönnum og forkólfum í lista- og menningar­lífinu að sitja í þeim tímum með unga fólkinu, endurgjalds­laust að sjálfsögðu,“ segir Brynjar og bætir við að lokum:

„Þá virðist það trufla víðsýna og umburðar­lynda fólkið sérstak­lega að pólitískur aðstoðar­maður dómsmála­ráðherra viðri skoðanir sínar í málum sem eru til umræðu í samfélaginu. Virðingin fyrir tjáninga­frelsi annarra er ekki mikil hjá þessu fólki. Pólitíski aðstoðar­maðurinn er nú vara­þingmaður auk þess sem hann hefur ekki afsalað sér tjáningar­frelsinu, sem vel að merkja er stjórnar­skrár­varið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá