Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Dagbók Önnu: „Íslendingar sem koma hingað væla eins og stungnir grísir yfir hlýindunum“

Anna Kristjánsdóttir.
Anna Krist­jáns­dóttir.

Anna Kristjándsdóttir er tíðrætt um hita í nýjustu dagbókar­færslu sinni.

Ein vinsælasta dagbók internetsins, fyrir utan kannski dagbók Önnu Frank, er dagbók Önnu Kristjáns­dóttur vélstjóra, en hún birtir eina blaðsíðu á hverjum einasta degi ársins. Í nýjustu færslunni hælir hún veðrinu á Tenerife, sem hún kallar Paradís. Segir hún þó að Íslendingar á eyjunni „væli“ yfir hitanum, bæði ferðamenn og þeir sem búið hafa í Paradís í nokkur ár. Minnist Anna á hitann sem oft var óbærilegur inni í vélarrúmi skipa þar sem hún vann á sínum yngri árum. Svo mikill var hitinn eitt sinn að henni sveið í andlitið.

Í niðurlagi færslunnar skiptir Anna skyndi­lega um stefnu og talar um Íslands­bankamálið og er greini­lega með sterkar skoðanir á því. Afsakar hún sig svo í blálokin: „Afsakið mínar kæru lesendur, en þegar spillingin er svona augljós, þá á ég til að missa mig sem var ekki ætlunin, enda þekki ég marga heiðar­lega og góða hægrimenn, þótt ég sé þeim ósammála í pólitík.“

Færsluna má lesa hér að neðan:

„Dagur 1416 – Veðrið í Paradís.

Undan­farna daga hefur verið hið ágætasta veður í Paradís. Hitinn á daginn hefur farið upp í 33°C og vart farið niður fyrir 21°C á á nóttunni. Það hefur verið glaðasól­skin flesta daga og ekki yfir neinu að kvarta.Og þó.Íslendingar sem koma hingað væla eins og stungnir grísir yfir hlýindunum og óska þess að það kólni sem fyrst. Jafnvel Íslendingar sem hafa búið hér um nokkurra ára skeið eru líka farnir að kvarta yfir hitanum. Þeir gera sér enga grein fyrir því að það er bara hollt að svitna aðeins sem bendir á að líkams­starfsemin og stærsta líffærið, húðin er í góðu lagi og vinnur eðlilega.—–Ég var einu sinni á mt Esso Aalborg, gömlu dönsku tankskipi á milli bekkja í Vélskólanum með 13.700 hestafla Burmeister&Wain aðalvél. (fyrir eldri vélstjóra, þá var mynd af henni í dönsku Christian Knak vélfræði­bókinni). Ég var aðstoðar­vélstjóri þarna um borð, í dagvinnu á siglingum en á dæluvakt í höfnum og var mikið að vinna á verk­stæðinu sem var ofan við aðal­vélina og hitinn fór iðulega yfir 40°C á verk­stæðinu. Þá var dálítið erfitt að vera í erfiðis­vinnu.Löngu síðar var ég vélstjóri á Laxfossi (III) ex City of Hartlepool með furðulegustu aðalvél sem ég hefi komið nálægt, Doxford 58SJ3 og var stærðar kæli­vatnstankur niðri á neðsta gólfi í véla­rúminu. Sá virkaði eins og 40 fermetra ofn og þegar siglt var á Ameríku að sumri til fór hitinn í vélarúmi upp í 50°C svo að manni sveið í andlitið af hitanum. Svo var tankurinn einangraður og hitinn varð bærilegur eftir það.Eftir reynsluna af þessum tveimur skipum verður 30°C hitinn eins og lélegur brandari. En látum Íslendingana kvarta. Þeir munu hinsvegar ekki kvarta þegar kemur að næstu kosningum, reyna að telja sjálfum sér trú um að gjör­spillt Banka­sýsla ríkisins hafi gert best heppuðu sölu ríkis­eigna sem þekkist í gjörvallri Íslands­sögunni þegar hluti Íslands­banka var seldur vildar­vinum Flokksins og nánustu ættingjum fjármála­ráðherrans í lokuðu útboði til vildar­vinanna, mæta svo á kjörstað og kjósa sömu spillinguna og frændhyglina aftur yfir sig.—–Afsakið mínar kæru lesendur, en þegar spillingin er svona augljós, þá á ég til að missa mig sem var ekki ætlunin, enda þekki ég marga heiðar­lega og góða hægrimenn, þótt ég sé þeim ósammála í pólitík.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt