Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Eggert Þór fær 76 milljóna króna starfslokasamning – Malaði gull og var rekinn frá Festi

Mynd/samsett
Mynd/sam­sett

Eggert Þór Krist­ófersson forstjóri Festis fær 76 milljóna króna starfsloka­samning eftir því sem greint er frá í skýrslu stjórnar með nýbirtu árshluta­uppgjöri fyrir­tækisins.

Mannlíf greindi fyrst fjölmiðla frá því í júní að Eggerti hefði verið rekinn og hafi ekki sjálfur óskað eftir starfs­lokum eins og fyrir­tækið fullyrti í tilkynningu til Kaup­hallar Íslands. Brott­rekstur hans hefur verið rakinn til stuðnings hans við Vitalíu Lazereva sem ásakaði Þórð Má Jóhannesson, þáverandi stjórnar­formann Festar, og Hreggvið Jónsson hluthafa í félaginu um kynferðislegt áreiti. Stjórn félagsins hefur ekki upplýst um raun­verulega ástæðu brott­rekstrarins.

Eggert hefur verið í hópi farsælustu forstjóra á íslenskum hlutabréfa­markaði og skilað hluthöfum Festis og forvera gríðarlegri ávöxtun undan­farin ár. Fyrir­tækið tilkynnti uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung í gær og nam hagnaður Festis 1,3 milljörðum króna á tíma­bilinu. Auk þess var afkomuspá uppfærð og því ljóst að fyrir­tækið mun áfram mala gull, þrátt fyrir hækkandi verðbólgu og yfir­vofandi verkföll á íslenskum vinnu­markaði. Fullyrða má að rekstur Festis hafa aldrei verið eins sterkur og um þessar mundir.

Þrátt fyrir að Eggert hafi malað gull fyrir eigendur sínar árum saman, var hann rekinn. Nú liggur fyrir að starfsloka­samningur hans var 76 milljónir króna. Eggert hefur verið í hópi launa­hæstu forstjóra landsins og ætla má að ákvæði í ráðninga­samningi hans hafi kveðið á um 12 mánaða laun, auk orlofs ef miðað er við uppgefin laun forstjórans. Stjórn fyrir­tækisins segir í skýrslu með uppgjörinu að Festi sé nú á kross­götum eftir farsælt tímabil undan­farinna ára. Nú blasi við nýjar áskoranir og leitað sé að nýjum forstjóra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið