Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Íslensk börn mæta vannærð í skólann vegna tískubólu foreldra

Lára G. Sigurðardóttir læknir
Lára G. Sig­urð­ar­dóttir læknir

Lára G. Sigurðar­dóttir læknir segir í Bakþanka Frétta­blaðsins að sífellt fleiri börn mæti ónærð í skólann. Það sé þó ekki vegna peninga­skorts heldur vegna tískubólu, börnin séu að fasta líkt og foreldrar þeirra. Hún segir þetta gegndar­lausa heimsku.

Lára skrifar: „Á dögunum var kynningar­fundur í gagn­fræðaskóla yngsta drengsins. Kennarinn hafði á orði að allt of margir nemendur væru að fasta líkt og foreldrarnir. Skömmu síðar barst tölvu­póstur frá skóla­stjóranum þar sem ítrekað var að of margir nemendur mættu illa nærðir og borðuðu jafnvel ekkert fyrr en eftir skóla.“

Hún segir að svo virðist sem tíska valdi þessu. „Hér áður voru það fátæku börnin sem komu ónærð í skólann. Nú virðist sem tíma­skortur eða tíska valdi því að morgun­matnum sé sleppt. Rann­sóknir hafa verið gerðar á börnum sem fasta og sýna að náms­árangur er nátengdur næringu. Í skóla einum var byrjað á því að gefa börnunum hafra­graut í upphafi skóladags. Í ljós kom að börnin áttu auðveldara með að einbeita sér og þeim gekk betur í náminu. Fleiri rann­sóknir sýna hið sama,“ segir Lára.

Hún segir það algjöra þvælu að sleppa morgunmat, í það minnsta hvað varðar börn. „Þó svo að við fullorðna fólkið þolum það að fasta fram eftir degi gildir annað um börnin. Fyrir utan að þurfa góða næringu til að vaxa og þroskast, þá getur það að sleppa morgunmat haft þær afleiðingar að börnin verða þreytt, eirðar­laus og skapstygg. Síðla dags geta þau orðið leið og orkulítil. Þá eru þau líklegri til að sækja í næringar­snautt fæði sem inni­heldur tóm kolvetni og óholla fitu,“ segir Lára.

Hún gefur svo skóla­stjóranum orðið. „Ég ætla að gefa skóla­stjóranum lokaorðið því ég hefði ekki orðað þetta betur: „Hvernig haldið þið að það sé að vera illa nærður og ætla að meðtaka og tileinka sér nýja þekkingu? Hvernig haldið þið að það sé að kenna börnum sem geta varla hugsað fyrir hungri? Við hljótum að vera öll sammála um að frum­forsenda þess að ná árangri í námi og að eiga jákvæð og gefandi félagsleg samskipti sé að vera vel sofinn og vel nærður. Vinsamlegast hugið vel að þessu kæra forráða­fólk. Það þarf alveg enn þá að senda krakka með nesti í skólann þó þau séu unglingar.““

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning