Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Seinfeld og samfélagsrýnin

Þau Kramer, George, Elaine og Jerry
Þau Kramer, George, Elaine og Jerry

Á Netflix kennir ýmissa misgrænna grasa þó úrvalið af kvik­myndum sé nú ekki til þess að hrópa húrra yfir á Íslandi. Annað má segja um þátta­úrvalið en magn þátta af allskonar tegundum er nánast yfir­þyrmandi. Þar er að finna heilan helling af stórgóðum spennu­þáttum, vönduðum heimildar­þáttum og drep­fyndnum grín­þáttum, svo eitthvað sé týnt til.

Ég og dóttir mín höfum haft það fyrir sið þetta árið að horfa á gömlu góðu Seinfeld-þættina á Netflix, þegar við borðum kvöld­matinn saman. Í fyrra voru það hinu súrrealísku Monthy Python´s Flying Circus þættir en nú er það „gáfumanna­grínið“ sem einkennir Seinfeld. Og ég get sagt það með vissu að dóttur minni finnst þetta alveg jafn mikil snilld og mér sem segir mér að það er eitthvað meira en lítið gott spunnið í þættina.

Þættirnir, fyrir þá sem búið hafa undir steini síðustu áratugina, fjalla um ekkert eða það er hugmyndin hjá þeim Larry David og Jerry Seinfeld sem skrifuðu þættina. Þar fylgjumst við með lífi vinanna Jerry, Elaine, George og Kramer sem öll eiga það sameiginlegt að vera nokkuð vont fólk og siðlaust, þó þau vilji vel, svona oftast. Auka­persónur þáttanna eru einnig kostulegar margar og sama má segja um foreldra Georgs og Jerry.

En þættirnir eru í raun ekki um ekkert, heldur allt.

Þættirnir eru nefnilega troðfullir af samfélagslegri gagnrýni sem eiga oftast jafn mikið erindi við áhorf­endur og þegar þeir voru fyrst sýndir frá 1988 til 1998. Tökum dæmi. Þátturinn „The Outing“ fjallar um það þegar Elaine tekur eftir því að kona er að hlera samtal hennar og Jerry á kaffihúsi og ákveður að ljúga einhverri vitleysu. Segir Elaine þannig að konan heyri vel, að þeir George Constanza og hinn frægi grínisti Jerry Seinfeld eigi í ástar­sambandi. Konan reynist blaðakona sem gerir frétt um þetta ástar­samband. Hvergi er minnst á homma­fordóma í þættinum en það er gefið sterklega í skyn með vandræða­leik George og Jerry og alltaf þegar þeir segja ekki vera hommar bæta þeir við „Ekki að það sé eitthvað að því!“ og í fyrsta skiptið segjast þeir þekkja marga homma og hinn lygasjúki George bætir við „pabbi minn er hommi!“

Annað dæmi er þátturinn um styttuna af frumbyggjanum. Þar er málefnið kynþátta­fordómar en Jerry ákveður að kaupa risastóra styttu af frum­byggja Ameríku og gefa Elaine sem sáttar­gjöf fyrir eitthvað sem hann hafði gert henni. Fyrir vikið er Jerry sakaður um rasisma. Á sama tíma er hann að deita konu af frumbyggja­ættum og missir út úr sér ítrekaðar athuga­semdir sem anga af pólitískri rang­hugsun. Að setja rasisma inn í grínþátt er afar viðkvæmt en ef það er gert með húmor og til þess fallið að láta áhorf­andann hugsa út í eigin hugmyndir um slík málefni, er það ekkert annað en snilld. Seinna í þættinum er George að velta því fyrir sér hvort það væri rétt af sér að spyrja asíska konu í hvaða átt nálægasta kínverska veitinga­húsið sé segir Jerry „Já, ég kippi mér ekki upp við það þegar ég er spurður að því í hvaða átt Ísrael er,“ en hann er gyðingur. Undir­strikar Jerry svo afstöðu sína og skilnings­leysi varðandi kynþátta­fordóma með því að segja „veistu, ég bara næ þessu ekki“ en fjölmargir Ameríkanar eru einmitt eins, þeir ná þessu bara ekki.

Ég gæti farið mun dýpra í Seinfeld þættina en lengdin á þessum pistli bíður ekki upp á það. Ég hvet lesendur til þess að skella þáttunum í gang og njóta, helst með krökkunum því þannig má læra til dæmis hvernig á ekki að bregðast við hinum ýmsu atvikum sem maður lendir í á lífs­leiðinni. Og hlæja í leiðinni.

Pistill þessi birtist í nýjasta hefti Mannlífs sem hægt er að lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt