Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Edda lætur föður Gylfa heyra það: „Einhvern vatnsgreiddan fótboltamann“

Femínistar á Twitter eru ekki allskosta sáttar með frétt sem birtist á Vísi í dag þar sem fjallað var um stöðu Gylfa Þórs Sigurðs­sonar fótbolta­manns. Hann hefur verið í farbanni í um fimmtán mánuði eftir að hafa verið hand­tekinn í tengslum við rannsókn á kynferðis­broti gegn einstaklingi undir lögaldri.

Í þeirri frétt er meðal annars rætt við Sigurð Aðal­steinsson, föður Gylfa, en hann segir Gylfa hafa lagt sig fram fyrir Íslands hönd í tíu til fimmtán ár.„Aldrei dregið af sér. Verið topp­íþrótta­maður. Lagt sig fram fyrir land og þjóð. Þetta eru þakkirnar. Hann fær ekkert,“ er haft eftir Sigurði.

Edda Falak vekur sérstak­lega athygli á þessum bút og skrifar á Twitter: „Samfélagið krefst þess að kynferðis­brotamönnum sé refsað fyrir brot sín, en um leið minnir það brotaþola á að ef þú ætlar að kæra að þá er eins gott að þú getir sýnt fram á alvöru skrímsli en ekki einhvern vatns­greiddan fótbolta­mann sem hefur FÓRNAÐ SÉR FYRIR LAND OG ÞJÓÐ.“

Annar femínisti og meðlimur hópsins Öfgar, Tanja Ísfjörð, stingur líka niður penna vegna fréttar Vísis. Hún gagnrýnir þó sérstak­lega Gauta B. Eggertsson, prófessor í hagfræði við Brown-háskóla í Banda­ríkjunum. Hann telur bresk yfirvöld brjóta á mann­réttindum Gylfa með því að draga málið svo á langinn.

Tanja skrifar: „Myndi frekar hafa áhyggjur af stöðu þolenda á Íslandi (sem og annarsstaðar) og þeirra málum heldur en stöðu manns sem lögreglan í Bretlandi er með í haldi vegna þess að þau telja hann sekan um brot.“

Maður nokkur segir að þetta tvennt útiloki ekki hvort annað. Því svarar Tanja: „Geri mér fulla grein fyrir því. Myndi kjósa að frekar sé orkunni eytt í þolendur en meinta gerendur þegar hallar svona rosalega á þolendur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning