Lögreglan á Austurlandi brýnir fyrir fólki lokunum á vegum þar eystra. Lokað hefur verið fyrir þjóðveginn frá Fáskrúðsfirði að Kirkjubæjarklaustri. Öxi er lokuð og verið er að loka Fagradal og BreiðdalsheiðiHáflóð verður í kvöld á milli klukkan 11 og 12 og eru smábátaeigendur hvattir til að huga að þeim en bætt hefur vel í vind.Björgunarsveitir eru í viðbragðsstöðu og eru byrjaðir að sinna útköllum.„Aðgerðastjórn þakkar þau góðu viðbrögð sem hún hefur fengið við tilmælum um að tryggja lausamuni og vera ekki á ferðinni meðan veðrið gengur yfir.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir