Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Afplánar 14 ára fangelsisdóm – lést í örmum dóttur sinnar: „Drap hana út af 19 þúsund krónum“

Mynd/skjáskot. Stöð2
Mynd/skjá­skot. Stöð2

24 ára Íslend­ingur var dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir morð sem hann framdi í smábæ skammt frá Horsens í Danmörku í byrjun mars árið 2010. Hann og samverka­maður hans, sem fékk 12 ára fangelsi, áfrýjuðu dómnum.

Lést í örmum dóttur sinnar

Chanette Sörensen var skotin til bana á heimili sínu í Horsens. Sá sem skaut hana stóð fyrir utan húsið hennar og skaut fimm skotum í gegnum borstofugluggann. Eitt skotið hæfði Chanette í höfuðið og lést hún skömmu síðar í örmum dóttur sinnar Sandie.

Lögreglan handók manninn daginn eftir, en vitni sáu hann flýja af vettvang andar­tökum eftir að skotunum var hleypt af. Hann var kunnugur hinni látnu og hafði áður átt í sambandi við dóttur hennar, en hann skuldaði þeim peninga vegna fíkniefna­viðskipta.

Af hverju drap hann hana útaf 19 þúsund krónum?

„Það var mikið uppistand. Hann fékk víst 19 þúsund krónur danskar lánaðar hjá mömmu fyrir innborgun. Ég skil ekki af hverju hann drap hana út af 19 þúsund krónum,“ segir Sandie.

Ástæðan fyrir morðinu var fíkniefna­skuld en samkvæmt dóttur Chanette skuldaði maðurinn henni 19 þúsund danskar krónur. Chanette var úr fjöl­skyldu sem tengdist fíkniefna­viðskiptum, eigin­maður, systir og mágur hennar höfðu öll fengið margra ára fangelsisdóm vegna fíkniefna­lagabrota.

Íslendingnum vísað úr landi

Samverka­maður mannsins fékk tólf ára fangelsisdóm. Báðir áfrýjuðu dómum sínum. Dómi samverka­mannsins var breytt í fjögur og hálft ár, en dómur mannsins stað­festur. Maðurinn hafði búið í Danmörku frá barna­skólaaldri, en fram kom í dómnum að honum skyldi vísað úr landi að afplánun lokinni.

Kom til Íslands í afplánun og handtekinn að nýju

Í byrjun árs 2020 voru sexmenningar hnepptir í gæslu­varðhald eftir samræmdar aðgerðir lögreglu.  Voru mennirnir grunaðir um stór­fellda amfetamín­framleiðslu í bústað rétt ofan við Reykjavík. Tveir þeirra höfðu hlotið þunga dóma hvor í sínu smyglskútu­málinu og sá þriðji afplánar fjórtán ára dóm fyrir morð.

Aðgerðir lögreglu voru mjög umfangs­miklar, rann­sóknin sneri meðal annars að fram­leiðslu fíkniefna og peninga­þvætti, ráðist hefði verið í húsleitir víða og hald lagt á fíkniefni, vopn og fjármuni.

Einn af þessum mönnum var dæmdur í 14 ára fangelsi í Danmörku, eins og fyrr segir, fyrir að skjóta móður fyrr­verandi unnustu sína til bana í smábæ fyrir utan borgina Horsens. Maðurinn kom til Íslands í afplánun og fékk reynslu­lausn sumarið 2019. Hann rauf skilyrði hennar um jólin 2019 og var færður aftur í afplánun. Þá var leitað í húsnæði sem hann hafði til umráða og þar fundust íblöndunar­efni fyrir hörð fíkniefni og var maðurinn hand­tekinn á Litla-Hrauni.

Bæði tengd fíkniefnaheiminum

Vestari Lands­réttur í Danmörku staðfesti 14 ára fangelsisdóm héraðs­dóms yfir manninum, fyrir morð á fertugri konu.

Sannað þótti að maðurinn hefði skotið af byssunni úr bíl sem félagi hans ók. Danskir fjöl­miðlar segja að ákærði og fórnar­lambið hafa þekkst og bæði tengst fíkniefna­heiminum í Horsens.

Fé­lagi hans, 31 árs maður, var dæmd­ur í 3½ árs fang­elsi en héraðsdóm­ur hafði dæmt hann í 12 ára fang­elsi. Sýknaði lands­rétt­ur félagann af ákæru fyr­ir mann­dráp en fann hann sek­an um brot á vopna­lög­um og fyr­ir að setja kon­una í hættu. Félaginn hefur nú afplánað sinn dóm og er laus úr fangelsi. Ritzau-frétta­stof­an sagði, að dóm­ur­inn hafi ekki verið ein­róma og ein­hverj­ir dóm­ar­ar hafi viljað sýkna Íslendinginn af mann­dráps­ákæru.

Bíll­inn fannst síðar og hafði verið kveikt í hon­um

Chanette Søren­sen lést þegar skotið var fimm skot­um inn um glugga á húsi henn­ar í bæn­um Lund, norður af Hor­sens, í byrj­un mars árið 2010.  Eitt skotið lenti í and­liti kon­unn­ar sem lést sam­stund­is. Skotið var á húsið úr bíl sem ekið var fram­hjá en tveir menn voru í bíln­um. Bíll­inn fannst síðar og hafði verið kveikt í hon­um. Upp­tök­ur úr ör­ygg­is­mynda­vél versl­un­ar sýndu, að ann­ar mann­anna keypti þar eld­fim­an vökva.

Ákærði hélt því fram, að hann hefði aðeins skotið af byssu í átt á hús­inu til að hræða tengda­son Søren­sen. Eft­ir morðið fund­ust fíkni­efni graf­in í garði kon­unn­ar og töldu sak­sókn­ar­ar að rekja mætti skotárás­ina til fíkni­efna­viðskipta. Fram kom, að maðurinn hafi átt í sam­bandi við dótt­ur kon­unn­ar og hafi búið þar um tíma í húsi henn­ar. Hann viður­kenndi við rétt­ar­höld­in að hafa skuldað Søren­sen pen­inga en neitaði að hafa ráðið henni bana.

Maðurinn sem skaut konuna er ís­lensk­ur í aðra ætt­ina og hef­ur búið í Hor­sens stór­an hluta æv­inn­ar. Hann var m.a. í sama barna­skóla og dótt­ir kon­unn­ar.

Heimildir:

Innlent. 4. janúar 2012. 14 ára fangelsis­dómur yfir Íslendingi stað­festur. MBL.

Innlent. 6. apríl 2011. Ég skil ekki af hverju hann drap hana út af 19 þúsund krónum. Vísir.

Jón Þór Stef­ánsson. 8. ágúst 2021. Íslendingar í aðal­hlutverkum í erlendum morðmálum – Fjölskyldu­harmleikur, aflimað lík og skotárás. DV.

Stígur Helgason. 23. janúar 2020. Þrír hinna handteknu með dóma fyrir skútu­smygl og morð. RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá