Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Tvö varðskip sem börðust í þorskastríðunum seld: „Hin mestu happafley“

Búið er að afhenda nýjum eiganda hin fornfrægu varðskip, Tý og Ægi.

Hin sögulegu tímamót urðu hjá Landhelgis­gæslu Íslands á mánudaginn er gengið var formlega frá sölu varð­skipanna Týs og Ægis og þau afhent nýjum eiganda.

Samkvæmt vef Landhelgis­gæslunnar var afsal vegna sölu skipanna undir­ritað á skrif­stofu Gæslunnar í Skógar­hlíð en að lokun undir­ritun, fór fram virðuleg kveðju­athöfn um borð í Ægi og Tý við Sundahöfn. Fyrr­verandi skip­verjar drógu skut­fánann niður á meðan starfs­menn Gæslunnar stóðu heiðurs­vörð. Tók Georg Kr. Lárusson, forstjóri Gæslunnar við fána Ægis og Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdar­stjóri aðgerða­svið, tók við fána Týs. Lauk þar með áratuga farsælli sögu skipanna í þágu íslensku þjóðarinnar en bæði skiptin reyndust þjóðinni vel í Þorska­stríðinu við Breta.

Ægir var smíðaður í Álaborg í Danmörku árið 1968 og var í rekstri Gæslunnar til ársins 2015. Tók Ægir þátt í 50 og 200 mílna þorska­stríðunum og var það áhöfn hans sem beitti leyni­vopni flotans, togvíra­klippunum frægu, á breskan togara í fyrsta sinn þann 5. september árið 1972.

Varð­skipið Týr var afhent Landhelgis­gæslu Íslands í mars árið 1975 og kom mikið við sögu í 200 mílna þorska­stríðinu. Klippti áhöfn Týs á togvíra fjölda togara, bæði breskra og þýskra. Fór Týr nánast alveg á hliðina er breska freigátan Falmouth sigldi tvívegis á Tý og laskaði verulega.

Þá tóku áhafnir beggja skipa þátt í fjölmörgum eftir­minnilegum björgunarafrekum að því er segir á vef Gæslunnar. „Ægis og Týs bíður nú nýtt hlutverk og óhætt er að segja að þau hafi reynst hin mestu happafley,“ segir á vef Landhelgis­gæslunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið