Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Orkukreppan kostar þig 86 þúsund á ári – Almennar bensínstöðvar með nánast algjörlega samræmt verð

Gríðarlegar hækkanir á eldsneytis­verði kom mjög við fjárhag fjöl­skyldna. Frá því í ágúst 2021 og fram í september í ár hefur líterinn af bensíni hækkað um 34 prósent. En frá því að
lífs­kjara­samningurinn var gerður í apríl 2019 hefur bensínið hækkað um 41 prósent.

Í ágúst 2021 eyddi sá sem ók að meðaltali 1200 kílómetra á mánuði rúmum 29 þúsund krónum sem er rúmlega 7 þúsund króna hækkun frá því í ágúst í fyrra þegar sá hinn sami lagði út kr. 22 þúsund krónur. Á ársgrundvelli er munurinn um 84 þúsund krónur. Þetta miðast við bíl sem eyðir 10 lítrum á hundraði. Þetta er gríðrleg hækkun sem þýðir að fjöl­skylda sem heldur úti teimur bílum þarf að greiða 168 þúsund á ári aukalega vegna orku­kreppunnar.

Samkeppni milli fyrir­tækjanna sem selja bensín er sáralítil ef marka má skyndi­könnun Mannlífs á orkuverði um miðjan september. Aðeins ein bensínstöð, Costco í Garðabæ, sker sig úr. Þar er þó aðeins um að ræða eina bensínstöð og flestir þurfa að leggja lykkju á leið sína með tilheyrandi kostnaðiog  aka langar leiðir til að ná sér í ódýrara eldsneyti. Lægsta verð á bensíni hjá Costco er 296 krónur.

Langódýrasta bens­ínið fæst í Costco.

Ef þú ert með aðild hjá Costco og verslar allt bensín þar og keyrir 1200 kílómetra mánuði miðað við eyðslu 10 lítra á hundraði á mánuði þá er sparnaðurinn krónur 3.624 krónur á mánuði eða rúmlega 43 þúsund krónur á ári. Þegar tekið hefur verið tilllit til kostnaðar vegna aðildar að Costco, 4800 krónur á ári, er sparnaður 39 þúsund krónur.

Hæsta bensín­verðið er hjá N1. Almennt verð þar er 326 krónur á lítrann. Þar munar því rúmum 30 krónum á hvern líter ef litið er til Costco. Það þýðir að sá sem fyllir 60 lítra tank þarf að greiða 1800 krónum meira en hjá Costco. Ef litið er almennt bensín­verð á öllum stöðvum er munurinn aðeins 2 til 3 krónur. Það þýðir að viðskipta­vinurinn sem ber sig eftir lægsta verðinu sparar innan við 200 krónur á tankinum, í besta falli.

Lægsta verð hjá Orkunni er á Bústaða­vegi, Dalvegi, Reykja­víkurvegi og Mýrarvegi. Með Orkulykli færðu 12 kr afslátt en þó ekki hjá ódýrustu stöðunum. Með því að nota lykil hjá Orkunni í Njarðvík þar sem verðið er 311 krónur færðu líterinn á 299 krónur sem er ódýrara en á ódýrustu stöðvunum. Ódýrasta bensínið hjá Olís er á Akureyri. Ódýrasta bensínið hjá hjá ÓB er á Hlíðar­braut Akureyri, Arnar­smára, Bæjarlind, Fjarðar­kaup og Hamraborg
Ódýrasta bensínið hjá N1 er á Tryggva­braut Akureyri, Skógar­lind, Reykja­víkurvegi og Norður­hellu.

Hjá Atlantsolíu fá félagar í FÍB 16 kr afslátt en þó ekki af þeim stöðvum sem eru ódýrastar. Almennur afsláttur er 5 krónur á líter ef greitt er með lykli. Lægsta verð hjá Atlantsolíu er í Kapla­krika, Sprengis­andi og Baldursnesi Akureyri. Margir nýta sér lykla hjá stöðvunum og ná hagstæðara verði.

Það er vandséð hvernig fólk getur haldið niðri kostnaði á eldsneyti með verð­samanburði. Verð­lagning olíu­félaganna er þannig að sára­lítill munur er almennt á verðinu. Afslættir á einstökum stöðvum eru tilviljana­kenndir og engin leið að elta slíkt til að ná fram sparnaði í raun.

Box: 13 leiðir til að spara bensín

1. Veldu bíl sem er sparneytinn.

2. Allt sem gert er til að draga úr bensín­eyðslu sparar peninga

3. Hafðu í huga að hægt er að fá hjólbarða sem draga úr núnings­mótstöðu vegar.

4. Gakktu eða hjólaðu styttri vega­lengdir.

5. Skipuleggðu samflot í bíl með öðrum.

6. Skipuleggðu útréttingar.

7. Hrað­akstur eykur bensín­eyðslu. Aktu á löglegum hraða.

8. Sparaðu inngjöfina og forðastu snögg­hemlun. Þú sparar bensín og dregur úr mengun.

9. Skiptu reglulega um olíu, loft- og olíusíu.

10. Hafðu loft­þrýsting í hjól­börðunum sem næst því hámarki sem fram­leiðandi gefur
upp. Það dregur úr bensín­eyðslu og eykur endingu hjól­barðanna.

11. Mjög mikilvægt er að stilla gang bílsins.

12. Aktu ekki með óþarfa hluti sem auka þyngd bílsins. Hvert aukakíló í bílnum þýðir aukna bensín­notkun.

13. Forðastu að aka um með tóma farangurs­grind eða opna glugga, það eykur
verulega loft­mótstöðu og þar með bensín­eyðslu og mengun.

*Sparnaðarráð FÍB. Upplýsingar um verðþróun frá ASÍ *Eldsneytis­verð 13.09.22 *Aðild að FÍB kostar kr 9.180 en þar eru ýmis fleiri fríðindi í boði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning