Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar

„Vekur upp spurningar um hvort fundurinn sé að stuðla að hagsmunum Banda­ríkjanna eða einhvers konar einka­hagsmunum“

Kimberly Guilfoyle
Kimberly Guil­foyle Sendi­herra Banda­ríkj­anna í Grikk­landi hefur ekki setið auðum höndum und­an­farið Mynd: ANGELOS TZORTZINIS / AFP

Kimberly Guilfoyle, fyrr­verandi unnusta Donald Trump yngri, hefur haft dular­fullan kaup­sýslumann sér við hlið í starfi sínu sem sendi­herra Banda­ríkjanna í Grikk­landi, að því er fram kemur í frétt Yahoo! News.

Guilfoyle hefur í embætti sínu unnið að samningum við Evrópu­ríki um kaup á fljótandi jarðgasi frá Banda­ríkjunum, með það að markmiði að draga úr og að lokum hætta notkun á rússneskri orku.

Hin 57 ára Guilfoyle hefur ferðast víða um Evrópu og reynt að fá stjórn­málamenn til að kaupa bandarískt jarðgas fyrir milljarða Bandaríkja­dala.

Samkvæmt The Wall Street Journal hefur 39 ára kaup­sýslu­maðurinn Christos Marafatsos verið reglu­legur fylgdar­maður hennar í þessum ferðum.

Hann hefur verið viðstaddur svo marga mikilvæga fundi með Guilfoyle að sumir erlendir embættis­menn hafi að sögn talið að hann væri starfs­maður hennar.

Marafatsos er hins vegar hagsmuna­gæslumaður fyrir Aktor, grískt innviða- og orku­fyrirtæki sem nýlega gerði sex milljarða dala samning um að selja fljótandi jarðgas frá Banda­ríkjunum til Albaníu, þrátt fyrir að fyrir­tækið sé tiltölu­lega nýtt á þessum markaði.

Samkvæmt Wall Street Journal hefur Guilfoyle ítrekað kynnt fyrir­tækið.

Í Búlgaríu hafi hún til að mynda sagt stjórn­völdum þar að þau ættu að eiga viðskipti við Aktor.

Einstaklingur sem þekkir til viðræðnanna sagði samkvæmt miðlinum:

„Það er enginn vafi á því að þetta er nokkurs konar opinber afstaða bandarískra stjórn­valda.“

Embættis­menn sem hafa hitt Marafatsos og sendi­herrann segja að hann hafi ekki greint frá tengslum sínum við Aktor á fundunum.

Robin Brooks, starfs­maður bandarísku utan­ríkis­þjónustunnar sem var forstöðu­maður Balkans­kaga og Mið-Evrópu hjá þjóðar­öryggisráði Banda­ríkjanna í stjórnartíð Joe Biden, segir slíka kynningu „mjög vafasama“.

Að taka skráðan hagsmuna­gæslumann með á fundi með erlendum embættis­mönnum „vekur upp spurningar um hvort fundurinn sé að stuðla að hagsmunum Banda­ríkjanna eða einhvers konar einka­hagsmunum“, sagði hún.

Embættis­maður hjá bandaríska sendi­ráðinu í Grikk­landi sagði hins vegar að Guilfoyle hefði fylgt öllum leið­beiningum bandaríska utan­ríkis­ráðuneytisins í ferð sinni til Búlgaríu, þrátt fyrir ásakanir um hagsmuna­gæslu.

Þegar samningurinn við Albaníu var stað­festur í apríl sagði Guilfoyle:

„Það var mér heiður að ferðast til Tirana til að vinna að orkumála­stefnu POTUS [forseta Banda­ríkjanna] og taka þátt með Edi Rama forsætis­ráðherra í undir­ritun sögulegs samnings milli Albaníu, Venture Global og Aktor LNG USA um 20 ára samning um bandarískt LNG.“

Samningurinn er hluti af svokölluðum „lóðréttum gasgangi“ sem á að tryggja ríkjum í Mið-, Austur- og Suðaustur-Evrópu aðgangi að ríkulegu magni af jarðgasi frá öðrum uppsprettum en Rússlandi.

Donald Trump tilnefndi Guilfoyle, fyrr­verandi þátta­stjórnanda á Fox og lögfræðing, sem sendi­herra Banda­ríkjanna í Grikk­landi í desember 2024.

Á þeim tíma lýsti hann henni sem „náinni vinkonu og banda­manni“ og sagði hana „fullkomlega til þess fallna að efla sterk tvíhliða tengsl við Grikkland“ og vinna að bandarískum hagsmunum á sviðum allt frá varnar­samstarfi til viðskipta og efnahagslegrar nýsköpunar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs