Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gefur ferðalöngum helgarinnar góð ráð

Lögreglan
Lög­reglan

Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu fer yfir komandi Verslunar­manna­helgi í frétta­tilkynningu.

Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu sendi fyrir stundu frá sér frétta­tilkynningu þar sem hún fer yfir komandi Verslunar­manna­helgi. Fer hún yfir öryggismál ökumanna enda ein stærsta ferða­helgi ársins framundan. Þá hvetur hún fólk til að líta til veðurs áður en lagt er af stað og láta lögreglu vita ef sést til grunsamlegra manna­ferða í íbúðar­hverfum.

Hér er frétta­tilkynningin í heild sinni:

Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu verður með hefð­bundið eftirlit um verslunar­manna­helgina eins og jafnan áður. Áherslan í sumar hefur m.a. verið á eftirlit með hrað­akstri, notkun farsíma við akstur án hand­frjáls búnaðar, ferða­vögnum/eftir­vögnum og hættu­legum fram­úrakstri. Það er ánægjulegt að sjaldnast hefur verið ástæða fyrir lögreglu til að kæra fyrir vanbúnað eftir­vagna/ferða­vagna, en í nokkrum tilvikum hefur ökumönnum verið bent á atriði sem þeir þurfa að laga, t.d. að fram­lengja hliðar­spegla þegar ökutæki draga breiða eftir­vagna. Því miður eru líka alltaf einhverjir sem leyfa sér að virða ekki reglur um hámarks­hraða, auk þess að nota farsíma án hand­frjáls búnaðar við akstur en ekki þarf að fjölyrða um þá hættu sem það skapar í umferðinni. Flestar aðfinnslur gátu ökumenn lagað á vettvangi eða ábendingarnar fóru með ferða­löngunum sem gott veganesti. Í flestum tilvikum virðast ferða­langar því huga vel að ástandi ferða­vagna/ökutækja og passa að fyllsta öryggis sé gætt. Ekki má heldur gleyma mikilvægi þess að þeir sem eru með ferða­vagna/eftir­vagna í eftir­dragi virði reglur um hámarks­hraða, en þeir geta nú ekið á allt að 90 km hraða þar sem slíkt er leyfilegt á þjóðvegi, en þá er miðað við bestu aðstæður og nauðsynlegt að hafa það í huga.

Veður­spáin fyrir þessa verslunar­manna­helgi er annars misgóð (eða misslæm!) eftir lands­hlutum, en ferða­langar eru hvattir til að kynna sér veðurspár í þaula áður en lagt er af stað. Auk aksturs á löglegum hraða er líka nauðsynlegt að ökumenn og farþegar spenni ávallt beltin, yngri börnin séu í þar til gerðum barna­bílstólum og að sjálfsögðu eiga allir ökumenn að vera allsgáðir. Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu hvetur alla vegfarendur til þess að sýna þolinmæði, sem er ómissandi í umferðinni, og gæta skal sérstakrar varúðar við fram­úrakstur. Með ósk um velfarnað í umferðinni.

Jafnframt þessu verður haldið úti eftirliti í hverfum í umdæminu og því vill lögreglan ítreka að fólk láti vita um grunsamlegar manna­ferðir (taki ljós­myndir ef slíkt er mögulegt) og að það skrifi líka hjá sér, t.d. bílnúmer eða jafnvel lýsingar á fólki, ef eitthvað óvenjulegt á sér stað í nánasta umhverfi þess. Innbrots­þjófar fylgjast gjarnan með húsum áður en þeir láta til skarar skríða, hringja jafnvel dyra­bjöllunni og þykjast vera að spyrja eftir einhverjum, og því er mikilvægt að hafa þessi atriði í huga. Munið að það er betra að hringja einu sinni of oft í lögregluna með upplýsingar af þessu tagi en einu sinni of sjaldan. Lögreglan vill ennfremur minna á mikilvægi þess að fólk gangi tryggilega frá heimilum sínum, t.d. að loka gluggum, þegar það fer að heiman og ekki er úr vegi að tilkynna nágrönnum um slíkt, en nágranna­varsla getur skipt sköpum þegar kemur að því að upplýsa innbrot eða koma í veg fyrir þau. Sérstak­lega er minnt á að útiljós séu kveikt þar sem þau eru til staðar, hvort sem um ræðir bakatil við hús eða að framan­verðu. Slíkt einfaldar nágrönnum að sjá umferð/manna­ferðir við húsin. Sömuleiðis er mikilvægt að fólk upplýsi ekki um fjarveru sína fyrir allra augum þegar farið er í frí, t.d. með tilkynningu á samfélags­miðlum. Lögreglan verður með hefð­bundið eftirlit um verslunar­manna­helgina, en áhersla verður lögð á að fylgjast með íbúðar­húsnæði eins og kostur er. Upplýsingum má koma á framfæri í síma 444 1000 eða í tölvu­pósti á netfangið [email protected] Ef óskað er eftir skjótri aðstoð lögreglu vegna yfir­standandi innbrots skal undan­tekningar­laust hringja í 112.

Við óskum ferða­löngum góðrar ferðar og minnum alla á að sýna þolinmæði og tillitssemi í umferðinni. Við munum að sjálfsögðu standa vaktina á höfuð­borgar­svæðinu nú sem endranær, en vonandi verður sem allra minnst að gera hjá lögreglu­mönnum í öllum umdæmum landsins!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið