Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Einn lést og lögreglumaður særðist í skotárás á iðnaðarsvæði í Álaborg

Árásar­maðurinn liggur þungt haldinn á spítala

Álaborg
Álaborg Þrír voru skotnir í árásinni Mynd: Absent Wall á Unsplash

Lögregla í dönsku borginni Álaborg hvatti almenning í dag til að halda sig fjarri iðnaðar­svæði í Nørresundby-hverfi vegna skot­árásar sem þar átti sér stað.

Samkvæmt danska miðlinum Ekstra Bladet heyrðust mörg skothljóð á svæðinu og svartur reykur steig til lofts. Fjölmennt lið þung­vopnaðra lögreglu­manna, slökkviliðs og sjúkra­flutninga­manna var sent á vettvang.

Lögreglan í Norður-Jótlandi sagði síðar að tilkynning hefði fyrst borist um eld í iðnaðar­hverfinu skömmu fyrir klukkan tvö síðdegis. Þegar fyrstu lögreglu­mennirnir komu á vettvang var skotið á þá og þeir svöruðu skot­hríðinni.

Grunaður árásar­maður varð fyrir skotum og er sagður alvarlega slasaður.

Einn lögreglu­maður var einnig skotinn en ástand hans er sagt stöðugt.

Þriðji einstaklingurinn, sem lögregla segir hafa verið óbreyttan borgara, varð einnig fyrir skoti. Um klukkan fjögur síðdegis staðfesti lögregla að viðkomandi hefði látist af sárum sínum.

„Við getum ekki tjáð okkur frekar um atvik málsins að svo stöddu,“ sagði Søren Pejtersen, talsmaður lögreglunnar í Norður-Jótlandi, í tilkynningu.

Lögreglan hefur hvatt almenning til að halda sig fjarri svæðinu á meðan rannsókn stendur yfir og segir búast megi við að umfangs­mikil vettvangs­vinna muni standa yfir um nokkurt skeið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Heimur

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár

„Ég elska þig, Cher. Ég elska þig svo mikið.“

Lík fannst í klettum á Lanzarote eftir umfangs­mikla leit

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ísrael hefur nánast útrýmt ævafornum ólífu­trjám Gaza

Rússar sagðir undirbúa kjarnorku­vopn á braut um jörðu