Sögufrægt sýslumannshús að Kornsá í Vatnsdal í Austur Húnavatnssýslu hefur verið sett á sölu. Húsið, sem var reist árið 1879, er 213,7 fermetrar að stærð og er söluverðið 110 milljónir króna.
Það var Lárus Blöndal sýslumaður sem lét reisa húsið, sem stendur á fallegum stað með útsýni yfir Vatnsdal og Vatnsdalsá. Á lóðinni er einnig steinhlaðin laug.
Húsið var endurnýjað að stórum hluta á árunum 2000 til 2014 í samvinnu við Minjastofnun.
Tengist einu þekktasta sakamáli Íslandssögunnar
Kornsá tengist jafnframt sögunni um síðustu aftökuna á Íslandi. Agnes Magnúsdóttir dvaldi á Kornsá síðasta vetur ævi sinnar áður en hún og Friðrik Sigurðsson voru tekin af lífi á Þrístöpum árið 1830.
Sagan af Agnesi og Friðriki hefur orðið efniviður fjölmargra verka. Þar á meðal er kvikmyndin Agnes, þar sem Baltasar Kormákur fór með eitt aðalhlutverkanna, auk þess sem Bubbi Morthens hefur samið lag sem tengist sögunni.






Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir