Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Í góðum málum / Í slæmum málum

Í góðum málum

Óskar Hrafn Þorvaldsson

Breiða­blik tryggði sér Íslands­meistara­titilinn í knatt­spyrnu karla nýverið, í annað sinn; áður hefur Breiða­blik hampað titlinum góða árið 2010.

Í fyrra var liðið með pálmann í höndunum, en það gaf eftir í næst­síðustu umferð og Víkingar tóku Íslands­meistara­titilinn.

Í ár var engin eftirgjöf; engin grið gefin – enda uppskeran eftir því. Breiða­blik er með besta liðið á landinu.

Óskar Hrafn Þorvaldsson er þjálfari Breiða­bliks, og óhætt er að segja að hann sem þjálfari sé í raun ekkert annað en töfra­maður; slíkur er árangur Óskars eftir að hann hellti sér á fullt í meistara­flokks­þjálfun.

Hann tók við liði Gróttu á Seltjarnarnesi, sem þá var í 2. deildinni. Grótta er félag sem frekar lítið hefur farið fyrir í íslenskri knattspyrnu­sögu; það breyttist þegar Óskar tók við liðinu.

Á tveimur tímabilum flaug liðið upp um tvær deildir, spilaði skemmtilegan sóknar­bolta og árangurs­ríkan.

Þessi ótrúlega frammistaða Óskars sem þjálfara vakti athygli margra liða, og fór svo að Breiða­blik datt í lukku­pottinn og nældi í Óskar, sem gjör­breytti liðinu á svip­stundu.

Vel skipulagður og sókn­djarfur leikstíll Breiða­bliks hefur síðan glatt augað og mörkin hafa verið ófá. Og núna er uppskeran komin í hús – Íslands­meistara­titillinn 2022.

Toppteymi. Halldór Árnason og Óskar Hrafn Þor­valds­son.

Það sem einkennir Óskar er gríðar­legur dugnaður og lítill svefn. Hann nær ávallt að beisla sína svakalegu orku og hefur mikla yfirsýn. Óskar nær til samstarfs­fólks síns á góðan hátt – fólk vill vinna með honum þótt hann sé kröfu­harður, því hann er líka mjög hlýr yfirmaður sem nær því besta úr fólki. Og hann er alls ekki fyrir einhver dramaköst; trúir á vinnusemi og aga, en passar sig á að hafa líka gaman að hlutunum og njóta sigranna og læra af töpunum.

Vert er að geta þess að aðstoðar­þjálfari Breiða­bliks, Halldór Árnason, spilar stóra rullu í bæði velgengni Gróttu og Breiða­bliks. Hann og Óskar vinna afar vel saman og hafa í samvinnu við fólk innan knattspyrnu­deildarinnar komið Breiða­blik á nýjan leik í toppsætið með Íslands­meistara­bikarinn gljá­fægðan og gull­fallegan á góðum stað.

Til hamingju Breiða­blik!

Í slæmum málum

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra

Hryðjuverka­málið svokallaða hefur verið fyrir­ferðamikið í fŕéttum að undan­förnu. Svo virtist sem tveir ungir íslenskir menn væru í þann mun að fremja hryðju­verk – í fleirtölu – hér á Íslandi; sprengingar, skothríð og morð á þekktu fólki á Íslandi.

Eftir allan hasarinn og lætin í kringum handtöku mannanna kom í ljós að hér voru engir fagmenn á ferð; bara litlir pappa­kassar að reyna að gera sig stóra og breiða.

Vissulega er ekkert fyndið né gott þegar fólk er að hóta öðrum og ræða um að drepa þennan og drepa hinn – reyndar algjör viðbjóður.

En miðað við lætin sem urðu útaf þessu máli þá virðist þetta einfald­lega vera stormur í vatns­glasi; hafa enda margir rætt og ritað um að hér hafi verið gerður úlfaldi úr mýflugu.

Mýfluga þessi drakk úr vatns­glasinu hjá Jóni Gunnars­syni dómsmála­ráðherra; og stækkaði og stækkaði.

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra.

Og Jón var eins og hendi væri veifað tilbúinn með frumvarp þar sem efling lögreglunnar er á dagskrá; auka á vald­heimildir lögreglunnar og vopnaburð. Ætlunin er að lögreglan hér á landi fái rafbyssur og geti með forvirkum rannsóknar­heimildum hlerað og fylgst með einstaklingum sem hafa ekki framið glæp eða glæpi, en gætu það mögulega.

Öllum er það ljóst að hið svokallaða hryðjuverkamál var ekkert annað en tylliástæða til að þröngva í gegn úldnu vopna- og njósna­frumvarpi Jóns Gunnarsson dómsmála­ráðherra.

Málið var beinlínis notað til að vekja ótta í samfélaginu, og eina leiðin gegn ótta og mögulegum yfir­vofandi hættum er auðvitað byssur og hleranir. Það vita allir.

Þá hefur Jón enn á ný vakið reiði margra með ummælum sínum um flótta­menn í neyð sem hingað koma, og vill hann herða enn frekar – og gera þar með flótta­fólki í neyð lífið enn ömurlegra – útlendinga­löggjöfina.

Þessir undan­förnu dagar hafa varpað afar skýru ljósi á dómsmála­ráðherra; hver hans sýn er á samfélag okkar: Hann vill Ísland fyrir Íslendinga (hvað sem það nú þýðir) og að lögreglan hér hafi í það minnsta rafbyssur og afar rúmar heimildir til að njósna um fólk.

Sýn Jóns er ekki útópísk – hún er dystópísk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning