Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Héraðsdómur neitar að leita til EFTA í tveimur vaxtamálum

Héraðs­dómur Reykja­víkur hafnaði þeim kröfum Neytenda­samtakanna að leita ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins í tveimur af þremur málum, í vaxta­málinu svokallaða. Einu vafa­atriði hefur þó verið vísað til dómstólsins. RÚV greinir frá þessu.

Neytenda­samtökin höfðuðu þrjú mál á hendur Arion banka og Lands­banka, til þess að láta reyna á lögmæti skilmála lána með breyti­lega vexti. Um er að ræða neytendalán sem tekin voru á mismun­andi tímum þegar mismun­andi lög voru í gildi. Neytenda­samtökin óskuðu til að byrja með eftir ráðgefandi áliti EFTA-dómstólsins, þar sem lögin sem reynir á í málinu eru innleiðing Evrópu­tilskipunar. Héraðs­dómur hafnaði þeim kröfum í tveimur af þremur málum. Í þriðja málinu ákvað dómari þó að óska eftir ráðgefandi áliti EFTA-dómstólsins vegna eins vafa­atriðis er varðar lán sem var tekið eftir að lög um fasteignalán tóku gildi árið 2017.

Sú spurning sem dómari varpar til EFTA-dómstólsins fjallar um það hvort skilmálar Lands­bankans um breyti­lega vexti samræmist ákvæði sem mælir fyrir um að viðmiðunar­vextir lána sem bera breyti­lega vexti, þurfi að vera skýrir, aðgengi­legir, hlutlægir og sann­prófanlegir fyrir neytandann.

Í hinum tveimur málunum telur dómurinn fyrir­liggjandi dæmi hjá dómstólnum nægilega leiðsögn.

„Það er mikilvægt að taka fram að í hvorugri afstöðu dómsins, það er að segja að hafna ósk um álit eða spurningu hans til EFTA dómstólsins, felst afstaða til megin­krafna í málinu, um að skilmálarnir verði dæmdir ólöglegir,“ segir Breki Karlsson, formaður Neytenda­samtakanna. „Málunum verður haldið áfram í héraðs­dómi eins og ekkert hafi í skorist í þeim málum sem ekki þarfnast leið­beiningar EFTA dómstólsins. Hinu málinu er frestað þar til niður­staða fæst hjá EFTA dómstólnum.“

Neytenda­samtökin héldu í mála­ferlin vegna mats þeirra á að skilmálar lána með breyti­legum vöxtum séu ólöglegir. Það sé vegna þess að ákvarðanir bankanna um vaxta­breytingar séu mats­kenndar og ógagn­sæjar.

„Það sem er svo mikilvægt við að fá ráðgefandi álit EFTA dómstólsins er að við teljum þann dómstól hafa yfirburðar­þekkingu á þessum lögum þar sem margoft hefur reynt á þau og niður­staðan þar verið á þá leið sem samtökin hafa haldið fram í Vaxta­málinu,“ segir Breki.

Afborganir lána á óverðtryggðum, breyti­legum vöxtum hafa farið hratt hækkandi að undan­förnu, í kjölfar verðbólgu og hækkun stýri­vaxta Seðla­banka Íslands.

Mannlíf ræddi við Breka Karlsson, formann Neytenda­samtakanna, um þetta og tengd mál, í febrúar síðastliðnum. Þá talaði hann meðal annars um óskýrar vaxta­ákvarðanir bankanna.

„Það væri nú ágætt ef það væri, eins og lög gera ráð fyrir, skýrt hvernig vextir bankanna tækju breytingum. En það er því miður ekki þannig. Þess vegna þurftum við að fara í þetta dómsmál,“ sagði Breki.

Eins og þekkt er orðið hafa viðskipta­bankarnir skilað ofur­hagnaði undan­farið.

Í viðtalinu í febrúar sagði Breki meðal annars að nú sem aldrei fyrr væri þörf á því að bæði bankarnir og önnur fyrirtæki myndu draga úr arðsemis­kröfum. Hann sagði ársreikninga sýna að það væru fleiri en bankarnir sem væru að skila miklum hagnaði, það ætti við um ótal fyrirtæki líka.

„Nú er bara komið að því að atvinnu­lífið sýni þá stillingu sem atvinnu­lífið krefst alltaf af launþegum þegar launþegar eru að semja um laun og kjör. Það er það sem við getum gert; að krefja fyrirtæki um ráðdeild og að þau rói sig aðeins í arðsemis­kröfum.“

Breki sagði að ef fyrir­tækin og bankarnir svöruðu þessu kalli væri vel hægt að halda út þetta tíma­bundna ástand sem nú væri uppi.

„Annað er ávísun á óróa í haust þegar kjara­samningar eru lausir – ef það á að velta þessu endalaust inn í verðlagið og halda í þessar háu arðsemis­kröfur. Slíkt höfrunga­hlaup hefur aldrei skilað neinu nema aukinni vansæld,“ sagði hann. „Það vill enginn þann óstöðug­leika sem þessu mun fylgja. Hann er engum til góðs.“

Fréttin hefur verið uppfærð.

Í fyrri útgáfu þessarar fréttar var því haldið fram að Héraðs­dómur Reykja­víkur hefði hafnað kröfum Neytenda­samtakanna í Vaxta­málinu svokallaða. Þetta er ekki rétt, heldur hafnaði dómurinn þeirri ósk lögmanna að leitað yrði ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins í öllum málunum þremur. Í einu málanna ákvað þó héraðs­dómur að leita til dómstólsins vegna eins vafa­atriðis er varðar lán sem var tekið eftir að lög um fasteignalán tóku gildi árið 2017. Vaxta­málið heldur áfram fyrir héraðs­dómi og þriðja málið bíður álits EFTA-dómstólsins áður en áfram verður haldið. Fréttin hefur verið leiðrétt í samræmi við þetta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá