Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Hvetur landsmenn að sniðganga landslið þar til Aron Einar fer: „Ekki minn fyrirliði“

Aron Einar Gunnarsson.
Aron Einar Gunn­ars­son.

„Merki KSÍ er fyrir mér merkingar­laust fyrirbæri sem snertir mig ekki, ég finn engan samhljóm með því sem þau gera. Fyrir mér er það þannig að þau sem spila undir þessu merki eru að samþykkja þann gjörning sem hefur klofið hluta þjóðarinnar frá lands­liðinu. Sjálfur hef ég engan áhuga á að fylgja Knattspyrnu­sambandi gerenda sem heitir fyrir mér KG, héðan í frá.“

Þetta segir Valur Arnarson, verk­fræðingur og tónlistar­maður, en hann kallar eftir því að landsmenn hundsi lands­liðið í fótbolta meðan Aron Einar Gunnarsson er hluti af liðinu. Aron Einar var kærður fyrir nauðgun en Hérað­saksóknari felldi niður málið á dögunum. Valur segir í pistli sem hann birtir innan Facebook-hópsins Baráttu­hópur gegn ofbeldis­menningu að nauðsynlegt sé að sýna samstöðu með þolendum kynferðis­brota. Margir taka undir með honum og vilja sýna óánægju sína í verki. Nokkrir segja það sama: „Ekki minn fyrirliði.“

„Það er á ábyrgð Arnars Þórs Viðar­sonar að velja mann í lands­liðið sem hefur verið kærður fyrir hópnauðgun. Það er á ábyrgð KSÍ, stjórn og þá sérstak­lega formanns, að landsliðs­þjálfari geti gert þetta. Með þessum gjörningi er verið að segja. Heillindi knattspyrnu­fólks skipta engu máli, bara geta. Ekkert annað. Árangur á vellinum er númer eitt, tvö og þrjú. Ég geri mér grein fyrir því að þessi ábyrgð er ekki á öðrum lands­liðum KSÍ. Það er mikill heiður að fá að spila landsleik fyrir lands­liðið sitt og þannig heiður vekur athygli á leik­mönnum. Leik­mönnum yngri landsliða og A-lands­liðum. En þetta ábyrgðar­leysi Arnars Þórs og stjórnar KSÍ er nefnilega ekkert þeirra einkamál og önnur landslið geta því miður ekki horft fram hjá þessari yfirsjón, vegna þess að hún er mikil og alvarleg,“ segir Valur.

Hann biður fólk um að setja sig í spor fjöl­skyldu þess sem kærði Aron fyrir nauðgun. „Þarna er einstaklingur sem hefur verið kærður fyrir hópnauðgun fengin, ekki bara til að spila leikina, heldur leiða liðið. Hann fær sitt plattform, hann er hylltur af áhorf­endum þegar vel gengur. Honum er troðið framan í andlitið á okkur í tíma og ótíma, í auglýsingum vegna lands­leika, í promo verkefnum á vegum KSÍ og svona mætti lengi halda áfram. Við áhorf­endur getum sýnt þolanda hans stuðning með því að horfa ekki á leikina, deila engu um leikina á samfélags­miðlum, gera aldrei læk á neitt sem tengist A-landslið karla. En við sem tengjumst ekki málinu og erum ekki sjálf þolendur erum í raun í forréttinda­stöðu. Það á t.d. við um mig sjálfan. Ég get sett á mute þegar það eru íþrótta­fréttir um A-lands­liðið, slökkt þegar leikir byrja. Það er lítið mál. En ímyndið ykkur hvernig þetta er fyrir þolanda þessa manns, fjöl­skyldu hennar og vini sem hafa fylgst með því hvernig þetta mál hefur farið með hana nú í meira en áratug,“ segir Valur.

Hann segir að öllum ætti að vera ljóst að þetta landslið verði aldrei landslið allra Íslendinga. „Það er ekki léttvægt fyrir hana þegar þessum manni er stöðugt hampað sem hetju og hann gerður að einhverskonar fyrirmynd fyrir yngri iðkendur, þrátt fyrir það sem hann gerði og hvernig hann hefur svo hagað sér. Hann hefur gaslýst þolanda sinn og logið að stuðnings­mönnum og það eru auðvitað margir sem styðja hann og lifa fyrir það að sjá gömlu „hetjuna“ sína aftur í búningnum en það á alls ekki við um alla. Aron Einar er því ekki fyrirliði allra Íslendinga á svo djúp­stæðan hátt að því verður vart lýst með orðum. Fyrirliði með þessa stöðu gerir það líka að verkum að lands­liðið er alls ekkert landslið allra Íslendinga. Alls ekki. En þetta er það sem landsliðs­þjálfari A-landsliðs karla og stjórn KSÍ hefur valið að gera. Svona vilja þau nákvæmlega hafa hlutina,“ segir Valur.

„Það að einhver smápartur af þjóðinni yfirgefi skútuna hefur mjög lítið að segja en ef t.d. önnur landslið innan KSÍ myndu standa upp og segja; við spilum ekki fyrir Knattspyrnu­samband sem kemur svona fram við þolendur. Þá hefði það alvöru áhrif og alvöru afleiðingar fyrir KSÍ. Þó að ég geri það með efablöndnum tilfinningum að þá hef ég ákveðið að hunsa öll landslið KSÍ, ekki bara A-landslið karla og er það vegna alls þess sem sagt hefur verið í þessum pistli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning