Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

„Tveir þeirra hafa nú skeinzt til að skila, en frá þeim þriðja er ókomið enn“

Myndin er tekin í þingsal Alþingis, neðri deild, árið 1918. Þingskrifarar sitja fyrir miðju. Sigríður Zoega / Ljósmyndasafn Íslands.
Myndin er tekin í þing­sal Alþingis, neðri deild, árið 1918. Þing­skrif­arar sitja fyrir miðju. Sigríður Zoega / Ljós­mynda­safn Íslands.

Sú var tíðin að ræður þingmanna voru skrifaðar upp af ritara, en síðan eru liðin mörg ár; en nú eru 70 ár frá því að Alþingi hóf að nota hljóð­upptökur til að skrásetja ræður þingmanna.

Varð Alþingi þar með fyrst þinga í gjörvallri Evrópu til að treysta nær eingöngu á hljóð­upptökur í stað þing­skrifara við útgáfu ræðuhluta Alþingis­tíðinda.

Upp­töku­tækin fornu og bylt­ing­ar­kenndu.

Og varð þá sú breyting á í þing­salnum að þingmenn gátu ekki lengur talað úr sæti sínu;  urðu að fara í ræðustól til að flytja ræður sínar – svo unnt væri að hljóðrita þær.

„Áður en Alþingi hóf að nota hljóð­upptökur til að skrásetja ræður þingmanna var ráðið fólk til að taka niður ræður þingmanna. Þurftu þessir svokölluðu þing­skrifarar að standast sérstakt próf í hraðritun,“ segir á Facebook-síðu Alþingis okkar Íslendinga.

Hér er meira:

„Eftir­farandi tilvitnun er frá árinu 1947 þar sem Páll Zóphóníasson, þingmaður Norður-Múlasýslu, gerir athugasemd við hversu lengi þingræður hans skila sér til þingsins:

Páll Zóphóníasson.

„Herra forseti. Ég hef haft þann sið, síðan ég kom á Alþing, að reyna að lesa yfir þingræður mínar. Ég reyndi þetta líka í sumar, og þótt nú sé komið þing, eru ekki enn komnar til þingsins allar þingræður frá í fyrra. Nú hef ég heyrt, að forsetar hafi „honorerað“ alla þing­skrifarana með því að ráða þá aftur, en ég veit, að frá þrem skrifurum voru ókomnar ræður í ágúst. Tveir þeirra hafa nú skeinzt til að skila, en frá þeim þriðja er ókomið enn. Ég vildi mælast til þess, að forsetar sæju um það, að þm. ættu þess sem fyrst kost að leiðrétta ræður sínar og að það þyrfti ekki að bíða alveg milli þinga, að þm. fengju að sjá þær, heldur gætu gert það, meðan á þingi stendur.“

Myndin er tekin í þingsal Alþingis, neðri deild, árið 1918. Þing­skrifarar sitja fyrir miðju. Sigríður Zoega / Ljós­myndasafn Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning