Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Ríkið okrar á landsbyggðarfólki – Gríðarlegur kostnaðarmunur á bálförum eftir búsetu

Þegar staðið er frammi fyrir andláti náins ættingja eða ástvinar ber að huga að ýmsum ákvarðana­tökum er varðar útförina. Kostnaður hennar getur hlaupið á háum upphæðum og spurningar hafa vaknað er varðar kostnaðar­liði útfara. 

Íslenskir skatt­greiðendur greiða að hluta til fyrir þennan kostnað með kirkju­sjóðsgjaldi og má þar nefna legstað í kirkju­garði og bálför. 

Í nýjasta blaði Mannlífs er ítarlega farið yfir kostnað jarðar­fara.

Hér er brot úr greininni:

Líkflutningur af landsbyggðinni

Þeir látnu sem búsettir voru fyrir utan höfuð­borgar­svæðið, þarf að flytja til Reykja­víkur hafi þeir óskað eftir bálför.  Líkflutningur innanlands er ekki nýmæli en greiða þarf sérstak­lega fyrir hann. Útfarar­stjóri rukkar aukalega fyrir lengri flutning, að jafnaði yfir 100 kílómetra eða skilar kistunni til flutnings­aðila innanlands en vert er að athuga að gera þarf ráðstafanir á áfanga­stað. Mannlíf kynnti sér viðmiðunar­kostnað fyrir flutning á kistu og er hann um það bil 35 þúsund frá Akureyri en 45 þúsund fyrir flutning frá Egils­stöðum. Mikilvægt er að aðstand­endur geri viðeigandi ráðstafanir og kynni sér vel skilyrði flutnings­fyrir­tækjanna áður en lagt er í slíkan flutning.

Bálfarir

Aukin aðsókn er í bálfarir en á síðastliðnum 30 árum hafa bálfarir aukist úr 15 prósent upp í 58 prósent allra látinna. 60 prósent höfuð­borgarbúa velur nú til dags að brenna jarðneskar leifar sínar. Hlutfall látinna á lands­byggðinni sem óska eftir bálför er töluvert lægra. Auka kostnaður leggst á lands­byggðar­fólk þar sem líkflutningur er ekki inni­falinn.

Íslenska ríkið hefur fengið á sig harða gagnrýni þar sem líkbrennslu­ofnarnir eru úreltir og orðnir 80 ára gamlir. Sökum þessa þá verða hinir látnu að vera brenndir í kistu. Er það gert þar sem ofnarnir ná ekki nægilegum hita og kistan gegnir því hlutverki eldsmatar. Hvað varðar núverandi lög og reglu­gerðir þá standast ofnarnir ekki mengunar­varnir.

Ofnarnir eru tveir og eru stað­settir í Foss­vogskirkju. Sinna þeir öllum bálförum á landinu. Ofnarnir brenna aldrei samtímis heldur til skiptis. Um fimm bálfarir eru á virkum dögum að frátöldum föstu­dögum vegna styttingu vinnu­vikunnar. Reykur kemur úr skorsteini kirkjunnar í einhverjar þrjár mínútur á meðan kistan er að brenna. Það tekur lík um það bil eina til eina og hálfa klukku­stund að brenna.

Að lokinni bálför er öskunni komið fyrir í duftkeri og er kostnaður kersins um það bil 14 þúsund krónur. Líkt og með líkkistu þá er aðstand­endum frjálst að skaffa kerið að því gefnu að það sé úr umhverfis­vænu efni.

Í saman­burði eru 80 prósent útfara á Norður­löndunum bálfarir og þrátt fyrir mikla aukningu hérlendis er engin pressa sett á fólk að velja slíka leið.

Hægt er að lesa greinina í heild sinni í nýjasta blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning