Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Ólöglegir landnemar sakaðir um íkveikju í mosku

Mótmæli gegn ofbeldi ólöglegra landnema á götum Tel Aviv

Frá brunanum
Frá brun­anum Ísra­elskir land­ræn­ingjar eru grun­aðir um verkn­að­inn Mynd: Skjáskot

Ísraelskir landnemar eru sakaðir um að hafa kveikt í al-Rahma-moskunni í bænum Qusra á hernumda Vestur­bakkanum, á sama tíma og hundruð Ísraela söfnuðust saman í Tel Aviv til að mótmæla vaxandi ofbeldi landnema og hernámi Ísraels á palestínsku landsvæði.

Myndskeið sem Al Jazeera hefur staðfest sýna moskuna loga en palestínskar heimildir segja landnema bera ábyrgð á íkveikjunni. Atvikið átti sér stað skömmu eftir að ísraelskar öryggis­sveitir hófu umfangs­miklar aðgerðir á Vestur­bakkanum í kjölfar nýlegra árása þar sem fjórir Palestínu­menn og tveir ísraelskir hermenn létust.

Samkvæmt palestínsku frétta­stofunni Wafa voru um 80 Palestínu­menn hand­teknir í húsleitum og aðgerðum víða um Vestur­bakkann, meðal annars í Ramallah, Jenin, Hebron, Betlehem og Tulkarem. Þá var gerð umfangs­mikil innrás í Jenin og fjölda bæja og þorpa í nágrenninu.

Ísraelski ríkis­fjöl­miðillinn Kan greindi jafnframt frá því að hertar umferðar­takmarkanir og fjölmargir öryggis­eftirlits­staðir hefðu verið settir upp á helstu vegum og við innganga þorpa á Vestur­bakkanum.

Samkvæmt palestínskum upplýsingum hafa ísraelskir hermenn og landnemar frá 7. október 2023 banað að minnsta kosti 1.185 Palestínu­mönnum á Vestur­bakkanum, þar af um 250 börnum. Yfir 12.600 hafa særst og meira en 24.000 verið hand­teknir. Talið er að rúmlega 9.200 Palestínu­menn séu nú í ísraelskum fangelsum, þar af um 3.200 án þess að hafa verið ákærðir.

Sameinuðu þjóðirnar og mann­réttinda­samtök hafa ítrekað gagnrýnt Ísrael fyrir að bregðast ekki við ofbeldi landnema með fullnægjandi hætti og segja að sjaldan sé ákært í slíkum málum.

Á sama tíma mótmæltu hundruðir Ísraela á Kaplan-götu í Tel Aviv vaxandi ofbeldi landnema og herstjórn Ísraels á Vestur­bakkanum. Lögreglan handtók níu mótmælendur og sagði samkomuna hafa farið fram án leyfis og raskað umferð og allsherjar­reglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs