Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Ber saman skæruliðadeild Samherja við meinta hryðjuverkamenn: „Aðgangur að vopnum var staðfestur“

Kristinn Hrafnsson ber saman skæruliða­sveit Samherja og meinta hryðju­verkamenn sem hand­teknir voru hér á landi á dögunum.

Kristinn Hrafns­son.

Í nýrri færslu á Facebook ber Wikileaks-ritstjórinn saman samtal skæruliða­deildar Samherja þar sem rætt var um að valda hópi nafn­greindra blaða­manna líkamlegum skaða, stungu­sárum og jafnvel skotsárum og svo meinta hryðjuverkaógn sem skapaðist að sögn lögreglu um daginn.

Þá gefur hann sterklega í skyn að lögreglan hafi ýkt hryðjuverka­ógnina í þeim tilgangi að fá aukna njósna­heimild og aukinn vopnaburð.

Færslan er maríneruð í kaldhæðni sem Kristinn er frægur fyrir:

„Hópur manna sem kallaði sig skæruliða­sveit átti í samskiptum þar sem rætt var um að valda hópi tilgreindra blaða­manna líkamlegum skaða, aðallega stungusár en auk þess var rætt um að beita skotvopum og hvaða kúlna­stærð hentaði best í verkið.

Aðgangur að vopnum var stað­festur. Meðlimur hópsins njósnaði um heimili eins blaða­mannsins og gerði sér far um að fylgjast með ferðum hans.

Þegar athygli var vakin á þessum samskiptum brást lögreglan með því að beina sjónum að blaða­mönnunum, heimta þá í yfirheyrslu með stöðu grunaðra undir því yfirvarpi að þeir væru grunaðir um brot á lögum sem bannar dreifingu á klámefni af fólki án samþykkis viðkomandi – án þess að nokkru slíku hafi verið dreift og yfirhöfuð ekki nokkur einasta vísbending um að glæpur hefði verið framinn.

Ráðherrar Sjálfstæðis­flokksins fögnuðu þessari vendingu málsins.

Tveir strákar röfla um það sín á milli að þeir íhugi að drepa þingmenn og lögreglu­menn.

Þeir hafa fjölda vopna undir höndum. Þeir eru hand­teknir, blaðamanna­fundur boðaður til að auglýsa að hryðjuverkaógn hafi verið afstýrt og gæslu­varðhalds krafist yfir þeim. Tilefnið var notað til að kalla eftir auknum njósna­heimildum lögreglu og vopnaburð en þá vildi svo skemmtilega til að ráðherrar Sjálfstæðis­flokksins áttu akkúrat frumvarp um slíkt tilbúið í handraðanum.

Dómarar fallast á gæslu­varðhald yfir þessum tveimur eða allt þar til í ljós kemur að þeir röfluðu líka um að drepa einn sósíal­ista og einn verkalýðs­foringja. Þá var gæslu­varðhaldið stytt.

Röklegt framhald er að sleppa strákunum tveimur, veita þeim styrk úr Nýsköpunar­sjóði til vopna­þróunar, bjóða þeim í kokteil til ráðherra Sjálfstæðisflokksis en kalla sósíal­istann og verkalýðsforingjan til lögreglu vegna gruns um brot á dýraverndar­lögum.

Láta síðan lögregluna hafa rafbyssur með þeim rökum að þær séu svans­vottaðar enda knúnar innlendri grænni orku sem sé miklu umhverfis­vænni leið til að drepa en með innfluttum byssu­kúlum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning