Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Guðmundur: „Stuttu fyrir hnífsstunguna hafði Tómas dregið dóttur mína á hárinu niður tröppurnar“

„Mér finnst ég knúinn til að skýra frá aðdrag­anda áður­nefndra „hnífs­tungu“ sem var í rauninni smá rispa á bringu Tómasar, eigin­manns dóttur minnar. „Stuttu fyrir hnífs­stunguna hafði Tómas dregið dóttur mína á hárinu niður tröppurnar“í íbúð þeirra og lamið hana síðan.“

Þetta segir Guðmundur Sigurður Guðmundsson, tengda­faðir Tómasar Waagfjörð, sem var stunginn til bana á Ólafs­firði á dögunum. Líkt og Mannlíf hefur áður greint frá þá sakar ættingi Tómasar eiginkonu hans um að hafa stungið hann áður með hníf. Guðmundur segir að þá hafi dóttir sín einungis verið að verja sig. Hann segir það einnig hafa verið sjálfs­vörn þegar Tómas var stungin til bana. Í seinna skiptið hafi þó vinur sambýlis­konunnar skorist í leikinn, með þeim afleiðingum að Tómas hlaut stungusár sem dró hann til dauða.

Áður hefur komið fram að sambúð Tómasar heitins Waagfjörð og eiginkonu hans hafi verið stormasöm. Guðmundur segir að dóttir sín hafi verið beitt hrotta­legu ofbeldi trekk í trekk. Guðmundur segir að í fyrra skiptið hafi dóttir hans dregið upp hnífinn til að verja sig eftir að Tómas dró hana á hárinu niður tröppurnar.

„Dóttir mín tekur fram hníf og heldur hnífnum fyrir framan sig til þess að reyna að hræða Tómas og reyna með þeim hætti að aftra honum frá að hann réðist á sig. Tómas er hins vegar æfur að reiði og ræðst á dóttur mína með þeim afleiðingum að hnífurinn stingst inn í bringu Tómasar um einn centimeter, og virðist hafa gengið á hnífinn í æsingnum og slær dóttir mína í höfuðið mörgum sinnum og brýtur í henni rifbein, síðan hendir hann henni á útihurð þar nálægt og höfuðið á dóttur minni stingst í gegnum glerrúðu á hurðinni og hrundu glerbrot út um allt.“

Guðmundur segir að það hafi verið heppni að dóttir hans hafi lifað þetta af. „Það var mesta mildi að hún slapp við að skera sig á gler­brotunum. Strax á eftir kom sjúkra­bíll og lögregla á vettfang. Hinsvegar stór sá á dóttir minni á enni hennar kinn­beinum og nefi,og foss­blæddi frá sárum hennar. Í dag er hún með ör í andlitinu eftir misþyrminguna,“ segir Guðmundur.

Lögregla rannsakar enn andlát Tómasar en dóttir Guðmundar hefur verið látin laus úr gæslu­varðhaldi. Vinur hennar, sem kom henni til varnar að sögn Guðmundar, var á dögunum úrskurðaður í fjögurra vikna gæslu­arðhald.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning