Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Segir íslenska rjúpnaveiðimenn hjartalausa: „Limlesta eða drepa saklausa fugla sér til gleði“

Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd / Skjáskot RÚV.
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd / Skjáskot RÚV.

Ole Anton Bieltvedt, stofnandi og formaður Jarðar­vina, segir að gráðugir og hjarta­lausir skot­veiðimenn séu búnir að koma rjúpu­stofninum í útrýmingar­hættu. Þeir vaði upp um fjöll og firnindi í þúsunda tali til að limlesta eða drepa saklausa og varnar­lausa fugla, og önnur dýr, sér til ánægju og gleði. Þennan hóp kallar Ole dauða­sveitina.

Skoðun sína setur Ole fram í aðsendri grein í Morgun­blaðinu. „Árið 2002 var svo komið fyrir íslenzku rjúpunni að hún var, vegna óbilgirni veiði­manna og undanlátssemi stjórn­valda, komin á útrýmingar­stig. Guði sé lof, tók þáverandi umhverfis­ráðherra, Siv Friðleifs­dóttir, af skarið og bjargaði rjúpna­stofninum með friðun. En gráðugir veiðimenn óðu uppi og þrýstu á um veiðar, sem hófust aftur með nokkru skipulegri og skaplegri hætti,“ segir Ole.

„Sársauki og þján­ing fugls­ins, sumir liggja lengi særðir og lim­lestir – bíða jafn­vel eftir, að blóð­eitrun og drep ljúki kvöl­inni og líkni í lokin – er auð­vitað hvergi tekin með í reikn­ing­inn“

Ole bendir á að rjúpan sé einfald­lega á válista yfir þá fugla sem teljast í yfir­vofandi hættu. Stofninn hafi hreinlega dregist saman um allt að 70 prósent. „En hvern varðar um það? Greini­lega ekki Náttúru­fræði­stofnun Íslands, hvað þá umhverfis­ráðherra, svo að ekki sé talað um hjarta­lausa veiðimenn, sem vaða um fjöll og firnindi til að limlesta eða drepa saklausa og varnar­lausa fugla og dýr, sér til gleði og ánægju. Umhverfis­ráðherra heimilaði veiðar á 72.000 fuglum í fyrra, án þess að með þessum veiðum sé nokkurt eftirlit; treyst er á heiðar­leika veiði­manna og „virðingu fyrir nátt­úrunni og fuglinum“. Allt gott og fínt – sársauki og þjáning ekkert mál,“ segir Ole harðorður og bætir við:

„Sársauki og þjáning fuglsins, sumir liggja lengi særðir og limlestir – bíða jafnvel eftir, að blóð­eitrun og drep ljúki kvölinni og líkni í lokin – er auðvitað hvergi tekin með í reikninginn. Hvað varðar NÍ, galvaska veiðimenn og ráðherra um slíkt!?“

Þá vindur Ole talinu að þessum skotvetri þar sem hann segir gildandi samþykkt vera algjöran brandara í ljósi þess hversu veikur rjúpna­stofninn er. „Hvað gerðu stjórn­völd? Nú kom NÍ með plan um, að hver veiði­maður skyldi veiða 4-5 fugla, og, að þetta yrði allt bara gott og fínt aftur. Þetta fannst umhverfis­ráðherra skynsamlegt, raunsætt og fínt plan, og lagði blessun sína yfir það í hvelli. Til fjalla fyrir fjóra fugla? Tillagan, sem forstjóri NÍ lagði fyrir ráðherra og hann samþykkti án þess að blikka augum, að því er virðist, er auðvitað bara eins og hver annar „skíta­brandari“. Hver heilvita maður sér, að „5.000-6.000 manna dauða­sveitin“ mun ekki hafa unnt sér friðar eða hvíldar fyrr en 70.000 til 90.000 fuglar lágu í valnum. Er ég þá að tala um þá fugla, sem náðust og taldir verða. Til viðbótar koma svokölluð „afföll“, þeir fuglar, sem særast og limlestast, en komast undan veiði­manni, sem gætu verið 20-30.000 fuglar,“ segir Ole.

Ofan á allt saman furðar Ole sig á viðhorfum skot­veiðimanna sem hafi einnig farið fram á stórlengt veiði­tímabil á rjúpunni. Hann vonast þó til að Covid-faraldrurinn hafi mögulega bjargað rjúpunni. „Hver skilur þessa menn og þeirra afstöðu til lífríkisins og nátt­úrunnar? Bjargaði Covid rjúpunni í bili? Veiðitími 2020 er nú afstaðinn, og það veit enginn, hvernig þetta fór, en kannski bjargaði Covid rjúpunni, þar sem botninn datt nokkuð úr veiði­mönnum með flandur og ferðalög vegna faraldursins, auk þess sem það fréttist fljótt, að það fyndist varla fugl, sem sló nokkuð á veiði­gleði. Vonandi tekur sannur dýra­verndunar­sinni við umhverfis­ráðherra­embættinu því eina von rjúpunnar og íslenzka dýra- og lífríkisins virðist nú vera að ný umhverfisvæn ríkis­stjórn og raun­verulegur dýra­verndunar­sinni, með bein í nefinu, taki við embættinu 2021,“ segir Ole.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið