Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Bjarni rís gegn meirihlutanum

Bjarni Jónsson alþingismaður
Bjarni Jónsson alþing­is­maður Mynd: Bragi Thor Josefsson

Bjarni Jónsson, alþingis­maður Vinstri-grænna, þarf að standa í undarlegri baráttu innan ríkis­stjórnar­meirihlutans sem hann styður. Nokkur flokks­systkini hans, ásamt Sjálfstæðis­flokknum og Framsóknar­flokknum, hafa komið sér saman um að færa mögulega virkjun Héraðs­vatna úr verndar­flokki í nýtingar­flokk. Bjarni andmælir þessu kröftug­lega og segist aldrei fallast á neitt slíkt sem geti ógnað jökuls­ánum í Skaga­firði.

Hann neitar að undirrita álit meirihluta umhverfis- og samgöngu­nefndar sem opnar á virkjun á þessum viðkvæmu slóðum. Greinilegt er að þarna er kominn eldhugi á sviði umhverfis­mála og öldungis óvíst að virkjana­fólkið nái að koma tillögu sinni í gegnum þingið. Bjarni er reyndar sonur baráttu­mannsins Jóns Bjarna­sonar, fyrr­verandi sjávar­útvegs­ráðherra, sem gjarnan fór ótroðnar slóðir og kom meðal annars á strandveiði­kerfi í þágu sjómanna, við mikinn kurr og harmagrát stórutgerðarinnar.

VG er stofnað með það að leiðar­ljósi að standa vörð um náttúruna og spyrna gegn hvers­konar óþurftar­verkum sem valdið geta skaða. Það er þó allur gangur á einlægni flokks­manna. Sem dæmi  má nefna að Lilja Rafney Magnúsdóttir, fyrr­verandi alþingis­maður, var einlægur stuðnings­maður þess að Hvalá á Ströndum yrði virkjuð með tilheyrandi umhverfis­spjöllum og fór þannig gegn skoðunum Katrínar Jakobs­dóttir, formanns VG. Þá studdi Lilja eindregið fiskeldi í sjó á Vestfjörðum sem að mati margra umhverfis­sinna felur í sér gríðar­lega mikinn sóðaskap. Það er allur gangur á umhverfis­málunum hjá VG …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Slúður