Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Vilhjálmur hefur fengið nóg og bara eitt í stöðunni: „Þvílíkt djöfulsins rugl og kjaftæði“

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfs­greina­sambandsins, segir á Facebook að nú sé mælirinn fullur og kominn tími á almenningur svari fyrir sig. Hann segir að Seðla­bankann standa með  fjármála­elítunni á Íslandi, meðan Alþingis­menn fylgast með og gera ekkert. Afleiðingar þess eru að búið sé að þurrka upp allan ávinninginn sem hefur náðst í síðasta kjara­samningi.

„Eina sem stýri­vaxta­hækkanir hafa gert er að færa fé frá skuld­settum heimilum og fyrir­tækjum yfir til fjármála­kerfisins og ofurríkra fjármagns­eigenda.  Munum að frá banka­hruninu hafa viðskipta­bankarnir þrír skilað yfir 1000 milljörðum í hagnað!,“ segir Vilhjálmur.

„Gríðarlegar vaxta­hækkanir Seðla­bankans að undan­förnu hafa lent af fullum þunga á  heimilum og hafa þúsundir heimila og leigjenda þurft að þola tugþúsunda hækkun á greiðslu­byrgði á mánuði. Það er með ólíkindum að almenningur, heimili og fyrirtæki láti það viðgangast að verið sé að færa gríðar­lega fjárhæðir í hverjum mánuði frá skuld­settum heimilum og fyrir­tækja yfir til fjármála­elítunnar.“

Vilhjálmur segist ekki geta látið þetta yfir sig ganga, nú muni verkalýðs­hreyfingin svara með sömu hörku. „Aðgerða­leysi stjórn­valda og þingmanna er hrópandi þegar verið er að níðast heimilum með slíkum okur­vaxta­hækkunum mánuð eftir mánuð. Nú er ekkert annað í stöðunni fyrir verkalýðs­hreyfinguna en að byrja að undirbúa verkfalls­aðgerðir og vera klár í slaginn í haust þegar kjara­samningar renna út. Það er allavega eitt víst að ekki er hægt að horfa aðgerða­laus á Seðla­bankann þurrka upp allan ávinninginn sem við náðum í síðasta kjara­samningi og færa þann ávinning yfir til fjár­málkerfisins,“ segir Vilhjálmur.

Hann bætir við að þetta snúist um hagsmuni alls eðlilegs fólks. „Nú er komið að samstöðu alls launa­fólks og vinna bug á þessu ofbeldi sem heimili og launafólk hafa þurft að búa við áratug eftir áratug. Það er þyngra en tárum taki að hlusta á rök Seðla­bankans að þessar vaxta­hækkanir séu gerðir með hagsmuni heimila og fyrir­tækja að leiðar­ljósi, þvílíkt djöfulsins rugl og kjaftæði.“

Að lokum  segir hann vígareifur: „Við launafólk vil ég segja, það reynir á okkur að brjóta þetta vaxta­ofbeldi á bak aftur í komandi kjara­samningum og ef það þarf verkfalls­aðgerðir til þess, þá verður svo að vera, enda ekki hægt að horfa uppá þetta átölu­laust stundinni lengur! Ég ítreka að allur ávinningur af síðasta kjara­samningi hefur verið færður frá launa­fólki yfir til fjármála­elítunnar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið