Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

„Svört skýrsla“ um slökkvilið Fjarðabyggðar – Einelti og kynferðisleg áreitni í æðstu stöðum

Bæjarskrifstofa Fjarðabyggðar Mynd / Fjardabyggd.is
Bæj­ar­skrif­stofa Fjarða­byggðar Mynd / Fjar­da­byggd.is

Yfirmenn í slökkviliðinu í Fjarða­byggð hafa verið til skoðunar hjá mannauðs- og ráðgjafa­fyrirtækinu Attentus ehf. vegna meintra alvarlegra eineltis­mála innan slökkviliðsins. Þá hafa tveir starfs­menn einnig kvartað undan meintu kynferðis­legu áreiti af hendi aðstoðar­slökkviliðs­stjóra Fjarða­byggðar.

Svört skýrsla

Attentus ehf. hefur nú skilað af sér skýrslu til bæjar­stjórnar Fjarða­byggðar, vegna erfiðra starfs­mannamála innan slökkviliðisins. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Mannlífs snúa starfs­mannamálin að alvarlegum eineltis­tilburðum slökkviliðs­stjóra Fjarða­byggðar og aðstoðar­slökkviliðs­stjórans gagnvart undir­mönnum sínum. Þá hefur annar tveggja starfs­manna sem orðið hafa fyrir meintu kynferðis­legu áreiti aðstoðar­slökkviliðs­stjórans, farið í veikinda­leyfi. Einnig er annar starfs­maður í veikinda­leyfi vegna meints eineltis frá yfir­mönnunum. Mannlíf spurði aðila, sem ekki vill láta nafn síns getið, hvað honum fyndist um skýrsluna. „Þetta er svört skýrsla,“ sagði aðilinn.

Slökkviliðs­stjóri Fjarða­byggðar vildi ekkert tjá sig um málið er Mannlíf heyrði í honum. Sama var uppi á tengingnum hjá aðstoðar­slökkviliðs­stjóranum en hann hefur verið í leyfi frá störfum síðan Attentus tók málið að sér. „Ég hef bara ekki séð skýrsluna,“ svaraði hann er Mannlíf bauð honum að svara ásökunum um kynferðis­lega áreitni, en sagðist kannast við þær. „Nei, ég ætla ekkert að tjá mig um þetta. Þetta mál er ennþá í vinnslu.“

Kvartaði og fær ekki vinnu

Mannlíf hefur áreiðanlegar heimildir fyrir því að slökkviliðs­kona sem kvartaði við slökkviliðs­stjóra vegna eineltis sem hún varð vitni að hjá slökkviliði Fjarða­byggðar, hafi lent í vandræðum með að fá frekari vinnu hjá slökkviliðinu, þrátt fyrir að hafa mestu menntun allra sem sóttu um en konan er menntaður slökkviliðs- og sjúkra­flutnings­maður. Hún hefur sótt um frekari störf hjá slökkviliðinu, bæði á sömu starfsstöð og hún var á áður, sem og í álverinu á Reyðar­firði en ráðningar hafa alltaf stoppað hjá slökkviliðs­stjóranum sem hefur neitað að skrifa undir. Nýlega var henni boðið í starfs­viðtal vegna sumar­starfs hjá slökkviliðinu en samkvæmt heimildum Mannlífs var um að ræða einhvers konar yfirheyrslu slökkviliðs­stjórans vegna skýrslunnar sem verið var að vinna af hálfu Attentus en hún hafði gefið vitnis­burð í málinu. Hún fékk ekki vinnuna.

Í svari Fjarða­byggðar við spurningu Mannlífs um téða skýrslu stóð: „Fjarða­byggð hefur nýlega fengið í hendur skýrslu sem snýr að starfs­mannamálum stofnunar innan Fjarða­byggðar. Enn er verið að rýna niður­stöðurnar og málefnið er því ennþá til vinnslu. Að svo stöddu getur Fjarða­byggð því ekki tjáð sig um niður­stöður skýrslunnar. Yfir­lýsingu er að vænta fljótlega í kjölfar þess að niður­stöðurnar hafa verið rýndar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp