Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Túristi kærir gagnaleynd: „Umhugsunarvert að meiri upplýsingar séu veittar í öðrum löndum“

samsett mynd
sam­sett mynd

Einu upplýsingarnar sem til eru um flug­umferð til og frá Kefla­víkur­flugvelli á Íslandi, eftir flug­félögum og flug­leiðum, eru saman­tektir Túrista, því sem Mannlíf kemst best að. Fjöl­miðillinn hefur birt upplýsingar þess efnis mánaðarleg allt frá árinu 2011, en upplýsingarnar ná þó aðeins yfir fjölda brottfara, en ekki fjölda farþega. Á þeim upplýsingum situr Isavia á meðan flugmála­yfirvöld í mörgum öðrum löndum, t.d. Banda­ríkjunum, Bretlandi og Danmörku birta þær mánaðar­lega.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa­dóttir, utan­ríkis­ráðherra og fyrr­verandi ráðherra ferðamála sagði í samtali við Túrista árið 2018, þegar fjöl­miðillinn óskaði eftir minni leynd og auknu upplýsinga­flæði, að hún teldi að almenna reglan ætti að gilda í þessu sem öðru. Þórdís talaði um að það ætti að veita eins miklar upplýsingar og hægt er að teknu tilliti til réttmætra hagsmuna þeirra sem hlut eiga að máli.

„Þess ber þó að gæta að strangar reglur gilda um upplýsinga­gjöf fyrir­tækja á markaði enda geta þær haft mikil áhrif á verðmæti hluta­bréfa fyrtækjanna. Svipuð sjónarmið geta gilt um óskráð félög. Mér finnst umhugsunar­vert að meiri upplýsingar skuli vera veittar í ýmsum öðrum löndum og það gæti verið vísbending um að við ættum að endur­skoða okkar nálgun. Hugsanlega eru að einhverju leyti eðlilegar skýringar á þessu en ég hallast að því að við getum gert betur í upplýsinga­gjöf en við gerum í dag og ég tel eðlilegt að ræða það. Eins og til dæmis hvort unnt sé að birta mánaðar­lega tölur um fjölda farþega á milli Íslands og hvers og eins flug­vallar, eins og er gert í Bretlandi.“

Enn í dag þarf að leita út fyrir landsteinana eftir þessum upplýsingum, en Túristi hefur árangurs­laust kært þessa leynd sem ríkir um gögnin. Úrskurðar­nefnd um upplýsingamál komst að þeirri niður­stöðu árið 2019 að Isavia bæri ekki skylda til að birta upplýsingar um flug­umferð til og frá landinu. Öfugt við það sem tíðkast til að mynda í Banda­ríkjunum og Bretlandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið